Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Síða 22
22 Umræða Vikublað 10.–12. júní 2014 Á jaðrinum Umsjón: Henry Þór Baldursson Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni Hugmynd um breytingar á kosningalögum Svavar Gestsson Höfundur var heilbrigðisráðherra 1980-1983 Kjallari „Aðalgallinn við núverandi kerfi er reyndar sá að heilu lands- hlutarnir fá jafnvel ekki þingmann. Það er galli sem við sáum ekki fyrir. N ú eru liðin 15 ár frá því að kosningalögunum var breytt síðast. Það er komin skýr reynsla á notk­ un þeirra. Þau hafa náð að tryggja nokkurn veginn jafnvægi milli flokka. Það var líka tilgangur­ inn. Í rauninni er svo góð sátt um kjördæmakerfið að engin mark­ tæk breytingartillaga hefur kom­ ið fram. Það að gera landið að einu kjördæmi sem margir nefna næst ekki vegna þess að það verður ekki meirihluti fyrir því á Alþingi. Óá­ nægjan með kosningakerfið frá 1999 stafar kannski helst af því að þar er ekki svigrúm fyrir persónukjör. Besta leiðin til að tryggja persónu­ kjör væri sú að taka upp einmenn­ ingskjördæmi. En um þá leið er engin og verður engin sátt. Aðalgallinn við núverandi kerfi er reyndar sá að heilu landshlutarn­ ir fá jafnvel ekki þingmann. Það er galli sem við sáum ekki fyrir þegar kosningalögunum var breytt síðast. Er það hugsanlegt að koma á kosn­ ingakerfi sem stuðlar að skýrara persónu kjöri annars vegar og um leið að stuðla að því að lands­ hlutarnir hafi sína þingmenn án þess að raska jöfnuði milli flokka? Svarið er já. Það er hægt með því að taka upp danska kosningakerfið sem hefur verið við lýði í meira en hálfa öld – og það er svo haganlega gert að engar tillögur eru um að breyta því. Hvernig gætum við tekið upp hlið­ stætt kerfi? Það gæti gerst svona: Skýrara persónukjör og minna flokksvald Hluti þingmanna væri kosinn í ein­ menningskjördæmum til dæmis 25–30 þingmenn. Helst ekki færri en helmingur allra þingmanna. Þing­ sætum væri úthlutað til þeirra fram­ bjóðenda, ekki flokka, sem fengju flest atkvæði og þingsætum deilt út með D‘hondt eins og nú er gert. Markmið þessa áfanga er að tryggt verði að allir landshlutar eigi þing­ mann og að persónukjör ráði að minnsta kosti helmingi þingmanna. Þetta markmiðsákvæði um búsetu þingmanna mætti jafnvel setja í stjórnarskrána. Þarna mætti raða á lista í stafrófsröð nafna, eða ákveða að flokkurinn sem býður fram við­ komandi, geti ráðið því nafni sem efst er á listanum, en að öðru leyti verði nafnalistinn óraðaður. Við þennan áfanga yrði hins vegar aug­ ljóslega misvægi milli flokka og landsvæða sem verður þá að leið­ rétta í næsta áfanga. Allir landshlutar eigi fulltrúa á Alþingi Annar þáttur úthlutunar væru upp­ bótarþingsæti sem væru bundin við kjördæmi og því úthlutað eftir svæðum til flokka. Það mætti hugsa sér að núverandi kjördæmi væru slík kjördæmasvæði. 15–20 þing­ sætum væri til dæmis úthlutað til jöfnunar milli flokka eftir úrslitum i kjördæmunum einum og án tillits til landsúrslita. Jafnvægi milli flokka Þriðji þátturinn væri síðan út­ hlutun til flokka á landsvísu til þess að stuðla að jöfnun milli flokka eins og nú er gert. Hér væri um að ræða 10–15 þingsæti. Hugsanlegt væri að þessi þingsæti gætu orðið færri, jafnvel að sett yrði ákvæði í kosningalögin um að þingsæt­ um ætti að ekki að úthluta lengur en til þess að fullt jafnvægi næðist. Þannig væri heildartala þingmanna mismunandi, kannski 63 eitt árið, annað 59, en varla færri. Með þessum breytingum næst fernt: 1 Enginn landshluti verður án þingmanns eins og nú getur hent. 2 Kjósendur kjósa helming þing­manna persónukjöri. 3 Flokksvald innkar. 4 Kerfið stuðlar engu að síður að jafnvægi milli flokka. Núna er það svo að langflestir þing­ menn eða 25 eiga heima í Reykjavík, 15 í hinu gamla Reykjaneskjördæmi eða alls 40. Það eru þrír þingmenn á Vestfjörðum og einn á Austurfjörð­ um svo dæmi séu tekin. Þrír sýnist mér á Vesturlandi. Tveir í Norður­ landi vestra. Í núverandi kerfi gætu allir þingmenn átt heima í Reykja­ vík. Það er ástæða til að staldra við þetta. Í danska kerfinu er þingsæt­ unum skipt í tvo flokka. Það eru í fyrsta lagi 135 „kredsmandater“ kjördæmasæti og svo 40 uppbótar­ sæti (sjá : wahlrecht.de/ausland/ daenemark.html og heimasíðu danska þjóðþingsins folketinget. dk). Í dæmunum hér að ofan var gengið lengra í að fækka kjördæma­ sætum hlutfallslega en í danska kerfinu og því eru uppbótarsæti alls fleiri en væri miðað við danska kerf­ ið. Ákvörðun um slíkt er hins vegar pólitískt samkomulagsatriði sem þarf ekki að ráða til lykta fyrr en fyrir liggur hvernig samkomulagið yrði sem meirihluti Alþingis gengi út frá við afgreiðslu málsins. Þetta er sett fram sem hugmynd til umhugsunar; kjördæmamálið kemst á dagskrá á nýjan leik áður en langt um líður. n Höfundur sat í tveimur stjórnarskrárnefnd- um sem gerðu tillögur sem samþykktar voru áAlþingi og í þjóðaratkvæðagreiðslum um breytingu á kjördæmaskipan 1983 og 1999. Alþingi „Núna er það svo að langflestir þingmenn eða 25 eiga heima í Reykjavík, 15 í hinu gamla Reykjaneskjördæmi eða alls 40.“ Mynd SiGtryGGUr Ari „Ef þú vilt standa vörð um norræna menningu, mættu þá á kvæðamannafund hjá Iðunni eða dansaðu með þjóðdansafélaginu, taktu slátur, farðu í víkingaslag og berðu niðursetning (djók). Það er allt gott og gilt. En maður varðveitir ekki sína eigin menningu með því að hefta menningu annarra.“ Svavar Knútur gerði gys að hugmyndum Jarls Gunnars Ólafssonar um nauðsyn þess að standa vörð um „norræna menningu“. „Það er ekki hægt annað en að dást að hugrekki og þreki Sturlu í baráttunni við banka og kerfið, aldrei vol eða víl áfram skal haldið og barið á bankakerfinu. Ég votta þessum manni virðingu mína og aðdáun.“ Sigurlaugur Þorsteinsson sendi Sturlu Jónssyni bar- áttukveðjur en hann hefur kært fulltrúa sýslumannsins í Reykjavík vegna nauðungarsölu. „Mér finnst þetta ekki beint góð viðbrögð hjá stætóbílstjóranum en Guð veit hvað hann hefur kannski mátt þola á sínum vinnuferli, allskonar dónaskap og yfirgang og jafnvel á þessum sama degi. Kannski fékk hann bara nóg.“ Ajna Pidzo kom strætis- vagnastjóra, sem hellti sér yfir farþega, til varnar. „Erum við Íslendingar svo miklir aumingjar að ein mosku bygging fyrir 500 manna söfnuð stefni „menningararfleifð“ og samfélagsgildum okkar í hættu? Þá er nú lítið varið í þetta blessaða þjóðerni …“ Eldur Ísidór deildi ekki áhyggj- um Írisar Lind Verudóttur, frambjóðanda Framsóknar- flokksins í Kópavogi, af þeirri hættu sem hún telur stafa af mosku í Reykjavík. 55 44 28 68 Könnun Hver er sýning ársins að þínu mati? n Stóru börnin n Ragnheiður n Gullna hliðið n Furðulegt háttalag hunds um nótt n Eldraunin 74 AtKVÆÐi 9,5% 21,6% 17,6% 35,1% 16,2%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.