Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Side 24
Vikublað 10.–12. júní 201424 Neytendur Drekkum 6 sundlaugar af dýrum bjór árlega n Verðhækkun áfengis og tóbaks síðustu ár n Bjórdós hækkað um 88% A ðeins koníak hefur hækkað meira í verði en bjór síðan árið 2007 samkvæmt út- tekt DV á söluverði áfeng- is hjá ÁTVR. Allt áfengi og tóbak hefur hækkað umtalsvert umfram almennt verðlag á sama tímabili. Ítrekaðar hækkanir ríkisins á bæði áfengis- og tóbaksgjöldum á undangengnum árum hafa þar ýmislegt að segja. Þrátt fyrir þetta drekka Íslendingar enn sem nemur rúmlega fimm og hálfri Laugardals- laug af bjór á ári hverju. Dýrari en hann ætti að vera DV óskaði eftir upplýsingum um verðþróun algengra áfengistegunda í Vínbúðunum. Athyglisvert er að rýna í þær tölur en þar má meðal annars sjá að 1. janúar 2007 kost- aði ein dós af 5% hálfslítra bjór í Vínbúðum 204 krónur. 1. janúar 2014 var verðið komið í 364 krón- ur. Verðið hefur hækkað um 78,4 prósent á meðan vísitala neyslu- verðs hefur hækkað um 55,8 pró- sent á sama tíma. Bjórdósin hefur því hækkað um 46 krónur umfram almennt verðlag. Hefði bjórverð fylgt verðlagi ætti dósin að kosta 318 krónur í dag. Að nafnvirði er kippan 960 krónum dýrari en hún var árið 2007 en 276 krónum dýrari að raun- virði. Milljónir lítra Þótt sala á bjór hafi dregist saman um tæp 9 prósent frá árinu 2008 þá drukku Íslendingar 14,4 millj- ónir lítra af bjór á síðasta ári sam- kvæmt ársskýrslu ÁTVR. Samkvæmt upplýsingum sem fengust í Laugar- dalslaug tekur útilaugin 2,6 millj- ónir lítra. Íslendingar drekka því sem nemur fimm og hálfri Laugar- dalslaug af bjór á ári. Heldur hefur þó dregið úr bjórdrykkju Íslendinga síðan 2008 þegar ÁTVR seldi 15,9 milljónir lítra. Koníak hækkar grimmt Mest hefur hækkunin orðið á 700 millilítra flösku af 40 prósenta koníaki. Flaskan hefur hækkað um 88 prósent á tímabilinu, kostaði 4.890 krónur árið 2007 en var komin í 9.199 í byrjun þessa árs. Hefði kon- íaksflaskan fylgt verðlagi ætti hún að kosta 7.618 krónur og hefur því hækkað um 1.581 krónu umfram al- mennt verðlag. Flaska af rauðvíni hefur á þess- um tíma hækkað um 76,9 prósent, heldur meira en þriggja lítra kútur af því rauða sem hefur hækkað um 57,5 prósent. Vodkaflaskan hefur hækkað um 67 prósent eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Spurð um þessar hækkanir bend- ir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að- stoðarforstjóri ÁTVR, á að þar á bæ sé áfengi keypt af innlendum birgjum og eru áfengisgjöld partur af innkaupsverðinu. Ofan á það bæt- ist smásöluálagning ÁTVR og virðis- aukaskattur samkvæmt lögum. Hundruð prósenta hækkun tóbaks Eins og fram kom í umfjöllun um nef- tóbak í síðasta helgarblaði DV hefur heildsöluverð á kílóinu af neftóbaki hækkað um 326 prósent á þessu tímabili. Til samanburðar er athygl- isvert að heildsöluverð á kartoni af sígarettum hefur „aðeins“ hækkað um hundrað prósent. Kartonið kost- aði 4.731 krónu 2007 en kostar í dag í heildsölu 9.471. n Verðhækkun frá 2007 til 2014 Vara 1. janúar 2007 1. janúar 2014 Hækkun í % Rauðvín 750 ml 13,5% 1.130 1.999 76,9 Rauðvín 3 lítra kútur 13,5% 3.490 5.499 57,5 Bjór 500 ml 5 % 204 364 78,4 Vodka 700 ml 37,5% 3.190 5.329 67 Koníak 700 ml 40% 4.890 9.199 88 Neftóbak 20x50 gr dósir 6.860 29.243 326 Vindlingar karton 4.731 9.471 100 Vísitöluhækkun á sama tímabili: 55,8 Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Milljónir lítra Íslendingar drukku 14,4 milljónir lítra af bjór á síðasta ári. Verð á hálfslítra bjór í Vínbúðum hefur hækkað um 78 prósent síðan 2007. MynD SHutterStocK N eytendastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sparnaður hafi brotið gegn góðum viðskipta- háttum gagnvart neytendum og samkeppnisaðilanum Allianz með villandi og ósanngjarnri markaðs- setningu. Allianz kvartaði undan framgöngu Sparnaðar í nóvember 2012 og var kvörtunin í níu liðum. Í samanburðarauglýsingu sem Sparnaður notaðist við í síma- sölu og hafði í einhverjum tilvik- um sent neytendum í tölvupósti var borin saman viðbótarlífeyris- trygging sem þýsku tryggingafé- lögin Bayern og Allianz bjóða hér á landi. Allianz kvartaði sem fyrr segir yfir níu ósönnum fullyrðing- um og villandi framsetningu á mismun á kostnaði við þjón- ustu. Fullyrðingarnar sneru með- al annars að þýskri ríkis ábyrgð og að öryggi og styrkur Bayern væri meiri en Allianz. Þá taldi Allianz einnig að framsetning Sparnaðar á samanburði iðgjaldakostnaðar, upphafskostnaðar og hagnaðar- hlutdeildar væri villandi. Neyt- endastofa komst að þeirri niður- stöðu að Sparnaður hefði í sjö tilvikum af þeim níu, sem kvart- að var yfir, brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Ýmist gagnvart neytendum þar sem þeim væru veittar villandi upplýsingar eða gagnvart Allianz þar sem fram- setning væri ósanngjörn og til þess fallin að hafa áhrif á eftir- spurn. n mikael@dv.is Braut gegn góðum viðskiptaháttum Allianz kvartaði yfir ósannindum og villandi framsetningu Sparnaðar Sparnaður brotlegur Ingólfur H. Ingólfsson er stjórnarformaður Sparnaðar sem Neyt- endastofa segir að hafi brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Sparaðu gagnanotkun iPhone Í dag er farsímaþjónusta víðast hvar orðin þannig að gagnamagn er orðin ein dýrasta vara sem fjar- skiptafyrirtæki hér á landi bjóða upp á. Því er um að gera að nýta sér allt sem dregur úr óþarfa notkun þess. Snjallsímar á borð við iPhone 5s nota mjög mikið gagnamagn og jafnvel þó að sím- inn sé í vasanum eru oft gögn að fara til og frá símanum, sem getur saxað á gagnamagnið. Það eru nokkrir hlutir sem hægt er að gera til að lágmarka óþarfa notkun á gagnamagni og hér verður farið yfir nokkur slík sem gætu kannski minnkað notk- unina eitthvað og þannig sparað notandanum. notaðu þráðlausa netið óspart Flest höfum við aðgang að þráð- lausu neti heima hjá okkur og á vinnustaðnum. Það er best að hafa alltaf kveikt á Wi-Fi-still- ingunni í símanum, þar sem það eyð- ir ekki mikilli orku og það getur heldur betur borgað sig að nota það frekar en net- kerfi símafyrir- tækjanna. Einnig er hægt að ná í forrit í í App Store sem sýna hvar hægt er að tengj- ast ókeypis þráðlausu neti í ná- grenninu, þar má til dæmis má nefna appið Free Wi-Fi Finder, sem hægt er að ná í ókeypis. neyddu símann til að nýta það betur Mörg forrit í snjallsíma senda gögn í og úr símanum í tíma og ótíma og engu skiptir hvort við- komandi sé heima á þráðlausa netinu eða úti í bæ á 4g. Til dæm- is býður iPhone upp á þá still- ingu að vista allar myndir sem teknar eru í iCloud-þjónustuna og það getur notað mikið gagna- magn. En forrit bjóða oft upp á þann möguleika að sækja eða senda gögn bara ef símtækið er tengt þráðlausu neti. iOS 7 býður einnig upp á þann möguleika að þröngva forritum til að nota að- eins Wi-Fi-tengingu. Til að virkja það er farið inn í Settings, Cellular options og undir valmöguleik- anum Use Cellular Network Data For er hægt að velja hvaða tengingu forrit eiga að nota. Fylgstu með notkuninni Það er gott að fylgjast með hvaða forrit það eru sem eru að soga til sín mesta gagnamagnið. Það eru mörg forrit til fyrir iphone sem fylgjast með gagnamagns- notkuninni en forritið Onavo Count er mjög þægilegt í notk- un og veitir góða yfirsýn. Onavo þróaði einnig forritið Extend sem beinlínis sparar gagnamagn með því að þjappa gögnum og hlaða myndum á hagkvæmari hátt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.