Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Qupperneq 25
Vikublað 10.–12. júní 2014 Neytendur 25
Brutu lög um neytendalán
Reyndu með orðhengilshætti að sneiða fram hjá lögum sem Alþingi setti í fyrra
N
eytendastofa hefur ákveðið
að beita stjórnvaldssektum
gegn smálánafyrirtækjum á
Íslandi fyrir að fara ekki eftir
lögum um neytendalán.
Neytendastofa tók til skoðunar
lánasamninga fyrirtækjanna og
komst að þeirri niðurstöðu að þeir
stæðust ekki lög um neytenda-
lán þar sem svokölluð ÁHK-tala
var hærri en 50 prósent. ÁHK, ár-
leg hlutfallstala kostnaðar, er all-
ur kostnaður af láninu gefinn upp
í einni prósentutölu. Þessi tala má
samkvæmt lögum um neytendalán
ekki vera hærri en 50 prósent að við-
bættum stýrivöxtum.
Samkvæmt tilkynningu Neyt-
endastofu tóku smálánafyrirtækin
ekki kostnað við svokallaða flýti-
þjónustu með í reikninginn, en
þegar það er gert snarhækkar ár-
leg hlutfallstala kostnaðar hjá öll-
um lánveitendunum umtalsvert.
Hjá Múla, Hraðpeningum og 1909
fór talan upp í 2036,6 prósent og hjá
Kredia og Smálánum fór hún upp í
3,214 prósent.
Í fyrra setti Alþingi ný lög sem
setja átti smálánafyrirtækjum
skorður. Með tilkomu þessara nýju
laga mátti ÁHK ekki fara yfir 50 pró-
sent á lánasamningum sem eru til
skemmri tíma en þriggja mánaða.
Fyrirtækin komust hjá því að fara
eftir þessum lögum með því að
byrja að rukka fyrir svokallaða flýti-
þjónustu. Fyrirtækin gera þá láns-
hæfismat á lántakanum, sem get-
ur borgað aukalega vilji hann að
lánshæfismatið sé afgreitt á einni
klukkustund.
Í svörum fyrirtækjanna við rann-
sókn Neytendastofu kom fram að
þau telji kostnað við flýtiþjónustuna
ekki falla undir heildarlántöku-
kostnað þar sem lántakendur geti
valið hvort þeir nýti sér hana eða
ekki. Neytendastofa tók þessa skýr-
ingu ekki gilda þar sem lánveitandi
á að framkvæma lánshæfismat þótt
hann rukki fyrir það sérstaklega.
Kostnaður við gerð lánshæfismats
telst hluti af heildarlántökukostn-
aði og á hann að vera innifalinn í út-
reikningi á ÁHK.
Neytendalán ehf. sem rekur smá-
lánafyrirtækin Múla, Hraðpeninga
og 1909 var sektað um 750.000 krón-
ur og var fyrirtækið Kredia ehf., sem
rekur Kredia og Smálán, sektað um
250.000 krónur fyrir hvort félag. n
jonsteinar@dv.is
Tóku ekki allan kostnað með
í reikninginn Smálánafyrirtækin
sögðu að kostnaður við lánshæfismat
teldist ekki til heildarkostnaðar. Neyt-
endastofa tók þær skýringar ekki gildar.
Borgar viðbótar-
trygging sig?
Mörg fyrirtæki bjóða upp á svo-
kallaða viðbótartryggingu þegar
vörur eða þjónusta er keypt. Slík
trygging á að duga lengur en
lögbundin neytendatrygging og
virkar í mörgum tilfellum svipað
og kaskótrygging. Til dæmis er
tækið tryggt fyrir óhöppum eins
og falli eða vatnsskemmdum og í
raun öllu tjóni sem hefur áhrif á
notkun eða virkni tækisins.
Hátt hlutfall af vöruverði
Vinsælt er að bjóða slíkar
tryggingar þegar raftæki eru
keypt, til dæmis tölvubúnaður,
myndavélar og farsímar og einnig
stærri tæki á borð við ísskápa og
þvottavélar. Kostnaður við slíka
tryggingu er mismunandi, en sem
dæmi má nefna að samkvæmt
vefsíðu ónefndrar raftækjaversl-
unar í Reykjavík kostar slík ábyrgð
í flestum tilfellum að minnsta
kosti 18.000 krónur eða allt að 10
prósentum af andvirði tækisins.
Það er þó hugsanlegt að það
borgi sig ekki að taka viðbótar-
tryggingu þar sem ekki er alveg
útséð hvort það komi betur út
þegar öllu er á botninn hvolft.
Hefðbundin neytendatrygging
dekkar bilun í tækjum sem rekja
má til verksmiðjugalla og gildir
hún í tvö ár en getur verið allt að
fimm árum í vissum tilvikum.
Fáðu ráðgjöf
Það er betra að leita til þjónustu-
fulltrúa hjá því tryggingafyrirtæki
sem heimilið er tryggt hjá og kanna
hvort tryggingarnar dekki sams
konar skaða. Þó ber að hafa í huga
að tryggingafélög reikna oft afföll af
tækinu og það getur haft áhrif á þá
upphæð sem fæst greidd út. En á
móti kemur að innbúskaskó tryggir
allt innbúið en ekki bara eitt tæki.
Erfitt að átta sig á
kostum og göllum
Neytendastofa tók árið 2006 þátt
í samnorrænu verkefni þar sem
slíkar tryggingar voru skoðað-
ar ofan í kjölinn. Þar kemur fram
að viðbótartryggingar eru oftast
boðnar þegar greiða á fyrir vör-
una og að slíkt geri kaupandan-
um erfitt um vik að vega og meta
hvort tryggingin veiti honum
raunverulega vernd sem hann er
ekki þegar aðnjótandi gegnum
heimilistryggingar. Þetta er því
nokkuð sem kaupandi þarf að
vega og meta og það gæti borg-
að sig að kanna málið vel og vera
undirbúinn þegar sölumaðurinn
býður viðbótartryggingu.
N
ú eru flestir komnir með
snjallsíma í hendur og er
framboð af slíkum tækjum
sífellt að aukast. Neytendum
stendur til boða að kaupa
síma frá fjölmörgum framleiðendum
og er verðbilið mjög breitt, eða allt
frá 20.000 krónum og upp úr.
DV ákvað að kanna hvaða snjall-
síma væri hagstæðast að kaupa í
dag og var verðþakið sett í 40.000
krónur. Það eru fjölmargir símar
í boði og hér verða skoðaðir þeir
fimm bestu, miðað við hvaða kosti
og galla þeir hafa.
Huawei bestur í þessum flokki
Í úttekt blaðsins kom Huawei
Ascend G700 vel út og myndi vera
sá sími sem hagstæðast er að kaupa
í dag, séu eiginleikar síma á þessu
verðbili bornir saman. G700 síminn
skartar stórum fimm tommu skjá
með góðri upplausn, fjögurra kjarna
örgjörva, 8 megapixla myndavél og
miklu vinnsluminni. Einnig býður
hann upp á möguleikann á að nota
tvö sim-kort, sem getur verið góður
kostur og skilað sér í sparnaði fyrir
notandann. Það eina sem gæti ver-
ið galli fyrir þennan síma er að kín-
verska vörumerkið Huawei er ekki
mjög þekkt hérlendis, en hefur verið
að sækja í sig veðrið um allan heim.
Í rauninni er vélbúnaður símans
mjög góður miðað við verðið.
Lumia eru góðir fyrir verðið
Sá sími sem væri næstbesti kostur
í þessum verðflokki myndi vera
Nokia Lumia 630, sem kom á mark-
að núna í vor. Lumia 630 síminn
er búinn fjögurra kjarna örgjörva,
4,5“ skjá og nýjasta Windows-stýri-
kerfinu, en á móti kemur að sím-
inn hefur aðeins 512MB innra
minni, sem gæti valdið því að sím-
inn keyri ekki öll forrit mjög hratt
og getur skert endingartímann þar
sem hann styður kannski ekki forrit
sem gefin verða út síðar og krefjast
meira vinnsluminnis. Verðið kemur
einnig á óvart en hann kostar víðast
hvar rétt um 30.000 krónur.
Bestu ódýru
snjallsímarnir
Þriðji besti síminn í þessum verð-
flokki er Nokia Lumia 625. Hann er
aðeins dýrari en nýi 630 síminn og
kom út fyrir tæpu ári síðan. Hann er
með örlítið stærri skjá en 630 sím-
inn, 4,7 tommur, en skerpan er að-
eins minni. Símarnir eru með sams
konar örgjörva og jafn mikil vinslu-
minni, 512MB en batteríið er aðeins
betra í þessum heldur en 630 sím-
anum.
Galaxy Ace 3 ágætur en heldur dýr
Síminn sem var valinn fjórði besti
kosturinn er Samsung Galaxy Ace 3.
Þessi sími kom á markað fyrir tæpu
ári og er því kannski ekki vænlegur
upp á endingartíma. Síminn er bú-
inn tvíkjarna örgjörva og 1GB vinnsl-
uminni, sem er í lægri kantinum
miðað við nýja síma í dag. Skjárinn
er ekki mjög stór, sem gæti reyndar
hentað sumum. Verðið er frekar hátt
ef vélbúnaður er borinn saman við
hina símana í könnuninni.
Misjafnar þarfir
Niðurstaðan í þessari úttekt er sú
að Huawei Ascend er góður kostur
ef þú vilt fá tiltölulega hraðan síma
með stórum skjá með hárri upp-
lausn. Sem dæmi má nefna að
hann kostar nánast það sama og
Galaxy Ace 3 síminn, sem er minni
og ekki eins öflugur. En það er mis-
jafnt hverjar þarfir notandans eru
og sumum hentar kannski ekki
stór skjár og svo framvegis. Nokia
n Huawei Ascend G700 bestu kaupin undir 40.000 n Nokia Lumia góður
Jón Steinar Sandholt
jonsteinar@dv.is
Lumia-símarnir eru líka spennandi
kostur og verðið er hagstætt en hafa
ber í huga að Windows Phone-stýri-
kerfið er frekar ungt og því er for-
ritaverslunin ekki nærri því eins
stór og sú sem Android-símar hafa
aðgang að. n
„G700-sím-
inn skartar
stórum fimm
tomma skjá með
góðri upplausn
Nokia
Lumia 625
Algengt verð: 36.900
Kostir
n FM Útvarp
n 4,7“ skjár
Gallar
n Bara 512MB vinnsluminni
n Ekki jafn mörg forrit í boði
n Ekki Full HD upptaka
Samsung
Galaxy Ace 3
Algengt verð: 39.900
Kostir
n Ágætis skjáupplausn
n Stórt merki í snjallsímum
Gallar
n 5MP myndavél
n 4“ skjár
n Frekar dýr miðað við vélbúnað
n Ekki Full HD upptaka
Huawei
Ascend G700
Algengt verð: 39.900
Kostir
n 5“ skjár
n Góð skjáupplausn
n Fjögurra kjarna örgjörvi
n 8MP myndavél
n 2GB Vinnsluminni
n 2 Sim kort
n FM ÚTvarp
Gallar
n Ekki mjög þekkt merki
Nokia
Lumia 630
Algengt verð: 29.900
Kostir
n 4,5“ skjár
n Fjögurra kjarna örgjörvi
Gallar
n Bara 512MB vinnsluminni
n Enginn birtuskynjari
n Ekki full HD upptaka
1 2 3
4