Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Qupperneq 28
28 Lífsstíll Vikublað 10.–12. júní 2014
Nýr og fallegur
Transit Connect
n Mjög lipur og góður akstursbíll n Ánægjulegar eyðslutölur
B
rimborg kynnti á dögunum
nýjan og mikið breyttan
Ford Transit Connect.
Þetta er lítill sendill eða
„minivan“ sem býður upp
á mikla möguleika. Hægt er að fá
hann í tveimur lengdum, með eða
án glugga aftur í, og einnig er hann
fáanlegur með sætum aftur í og þá
sem fjögurra-, fimm- og sjö manna
fjölskyldubíl. Bíllinn er í grunninn
byggður á Ford Focus og fæst
bæði með bensín og dísilvél. Ford
Transit Connect hefur verið valinn
sendibíll ársins árið 2014.
Gott pláss
Það fyrsta sem maður verður var
við þegar sest er undir stýri á þess-
um bíl er gríðarlega gott höfuðrými
sem og reyndar pláss almennt ef
frá er talið miðjusæti í sendilút-
gáfu hans, en þar getur enginn
setið. Það er auðvelt að ganga um
hann og allar hurðir opnast vel.
Mikið er um geymsluhólf af ýmsu
tagi sem bæði ætti að koma sér vel
fyrir verktaka sem og fjölskyldu-
fólk. Tæknilega séð kom það pínu
undarlega fyrir sjónir að ekki er í
honum Bluetooth en USB og MP3
tengi eru á sínum stað. Stórgalli á
stýrishjóli er svo stjórnbúnaður við
útvarp, sem alla jafna er vel innan
handar í Ford-fólksbílum. Í Transit
Connect þarf einkar fima fingur
við hækkun og lækkun á útvarpi
og þrátt fyrir ítrekaðar æfingar við
þennan rofa þá bara virkar hann
ekki sem skyldi.
Lipur í akstri
Þegar í umferðina er komið minnir
bíllinn mikið á Focus og aksturinn
með öllu laus við sendilskeim sem
oft fylgir bílum í þessum flokki.
Transit Connect er fáanlegur með
1,6TDCi dísilvél (sem var í þess-
um bíl) með Start-Stop spartækni.
Hægt er að fá dísilvélina í tveimur
útgáfum, 75 hestafla og svo 95 hest-
afla. Báðar uppfylla þau skilyrði
sem þarf til að fá frítt í stæði í mið-
bæ Reykjavíkur í 90 mínútur í senn.
Þá er bíllinn einnig fáanlegur með
hinni frábæru EcoBoost-bensín-
vél. Allar útgáfur dísilbílanna eru
með fimm gíra kassa en bensínút-
gáfan er með 6 gíra kassa. Seinna
meir verður bíllinn svo í boði með
1,6 lítra bensínvél og sjálfskiptingu
sem ætti að vera kjörbúnaður fyrir
hinn almenna strumpastrætó.
Eldsneytisnotkun í lágmarki
Það sem mest kom á óvart í akstri
þessa bíls var ánægjulega lítil
eyðsla. Þessi útgáfa sem hér var
ekið er gefin upp með 4,4 lítra
eyðslu í blönduðum akstri. Við
reynsluakstur fór bíllinn aldrei
fram úr þeim tölum og í heildar-
akstri var hann meira að segja dá-
lítið undir þeim.
Verðmiðinn
Hér er annar jákvæðasti kostur
þessa bíls ásamt útliti hans en það
er verðið. Bíllinn fæst frá 2.990
þús. króna sem verður að teljast
mjög gott verð fyrir bíl í þessum
flokki og þetta vel búinn. Auka-
hluti má fá í hann eins og allflesta
bíla í dag en girnilegastur þar er
samlitun á stuðurum. Stuðarar
bílsins ná nefnilega ótrúlega hátt
upp á framenda hans og eru, eins
og speglar og hliðarplöst, úr svörtu
plasti sem veðrast auðveldlega og
verður mjög fljótt afskaplega ljótt
– sé því ekki vel við haldið. Heilt
yfir og þrátt fyrir nokkrar aðfinnsl-
ur er þetta eigulegur, sparneytinn
og góður bíll sem fæst á mjög góðu
verði. n
Ford Transit Connect
✘
Kostir: Gott verð og
lítil eyðsla
✔
Gallar: Plast á stuðurum, rofar á stýri
og miðjusæti
Umboðsaðili: Brimborg
Bíll: Ford Transit Connect
Eyðsla: 4,4 l/100 (blandaður akstur)
Hestöfl: 75
Gírar/þrep: 5 gíra beinskiptur
Árekstrarpróf: 78%
Verð: frá 2.990 þús.
Björgvin Ólafsson
bilar@dv.is
Bílar
Vel heppnað útlit Nýja
Connect-útgáfan af Ford Transit
er mjög vel heppnuð í útliti enda
langfallegasti bíllinn í þessum
flokki á markaðnum í dag. Myndir BÓ
Lítil eyðsla Dísil-vélin í þessum bíl notar
einungis 4,4 lítra í blönduðum akstri. Boðið
er upp á tvær gerðir af dísil-vélum ásamt því
að hann fæst með hinni margverðlaunuðu
eins lítra EcoBoost-bensínvél.
Gott aðgengi Hægt er að opna allar hurðir bílsins vel og því auðvelt að koma fyrir þeim
hlutum sem koma þarf í hann.
Mikið plast Óþarflega mikið svart plast
er í grunnútgáfu bílsins. Það verður fljótt
grátt og ljótt, ef bílnum er ekki haldið við.
Skráður 3 manna Bíllinn er skráður
þriggja manna en vonlaust er að ætla sér
að sitja í miðjusæti bílsins. Endasæti hægra
megin er hægt að leggja alveg niður og með
opnanlegri lúgu aftur í bílinn má með því
koma lengri hlutum í hann.
Heimsmet í
vatnaakstri
Um síðustu helgi var sett all-
óvenjulegt heimsmet á Íslandi.
Heimsmetið setti torfærumeist-
arinn Guðbjörn Grímsson er
hann fleytti 1.600 hestafla Ford-
knúinni torfærubifreið sinni yfir
ána á torfærusvæði Hellumanna.
Þetta er í fyrsta skipti sem hraði
er mældur á þessum 300 metra
kafla sem Guðbjörn fleytti bíl sín-
um yfir og sýndu mælingar lög-
reglu að hann hefði verið á 87
kílómetra hraða ofan á vatninu.
Myndbönd af þessum viðburði
hafa hlotið gríðarmikla athygli á
samskiptavefjum og Guðbjörn
sjálfur segist enn eiga nóg inni
hjá Fordinum sínum til að bæta
metið að ári.
Yfir 600
hestafla Challi
Einn af vinsælustu Muscle Car-
bílum í Bandaríkjunum hefur
lengst af verið Dodge Challenger.
Gullaldarár hans voru upp úr
1970 en rétt eins og keppinautar
hans kom hann á ný á markað í
byrjun þessarar aldar. Chrysler-
verksmiðjurnar hafa nú form-
lega sett 2015-útgáfu af Dodge
Challenger SRT á markað en
hann mun verða sá öflugasti sem
farið hefur frá þeim með þessu
nafni. Þó svo að enn liggi ekki
fyrir allar upplýsingar um búnað
bílsins þá hefur það verið staðfest
að hann mun verða yfir 600 hest-
öfl frá verksmiðju.
Verðið að
skýrast
Nú fer biðinni alveg að ljúka fyrir
þá sem vilja tryggja sér eintak af
2015-árgerð af hinum nýja Ford
Mustang. Bíllinn var, eins og
frægt er, frumsýndur á 50 ára af-
mæli Mustangsins hinn 27. apríl
síðastliðinn og samkvæmt þeim
upplýsingum sem nú eru komn-
ar fram mun grunnútgáfa hans
verða verðlögð frá ríflega tuttugu
og fjögur þúsund dollurum. Það
gerir um 2,7 milljónir úti fyrir
standard 3,7 lítra beinskiptan
bíl. Eftir að Bjarni Ben. og Eim-
skip hafa fengið sína þóknun má
að sjálfsögðu rúmlega tvöfalda
þessa tölu til að finna út rétt verð
á honum hér heima.