Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Qupperneq 38
Vikublað 10.–12. júní 201438 Fólk
Bræður með
súpuvagn
Bræðurnir Gabríel Þór Bjarna-
son og Benjamín Ágúst Gíslasyn-
ir opnuðu um helgina súpuvagn í
miðbænum. Bræðurnir hafa tek-
ið sér langan tíma í að finna hina
fullkomnu kjötsúpuuppskrift og
ætla að standa vaktina á daginn
og næturnar við að selja þyrst-
um miðborgargestum kjötsúpu.
Bræðurnir prófuðu súpuna á
gestum í teiti hjá sjónvarpsmann-
inum Auðuni Blöndal þar síðustu
helgi og létu gestir vel af súpunni.
Vinsæl Gestir skemmtu sér vel á opn-
uninni.
Þ
ær hafa verið skotnar í
þessu, Hollywood- dívurnar,“
segir Sigrún Lilja Guðjóns-
dóttir, stofnandi tískumerk-
isins Gyðja Collection.
Merkið stofnaði Sigrún árið 2007.
Gyðja Collection er fylgihlutalína en
það framleiðir að mestu fylgihluti,
þ.e.a.s. töskur og úr. Einnig eru skór
og ilmvötn eitt það helsta hjá Gyðja
Collection.
Sigrún Gyða opnaði nú nýverið
verslun í Bæjarlind í nafni merkis-
ins sem er glæsileg á að líta. Á staðn-
um er bæði verslun, sýningarrými
og skrifstofur. „Það er mikið í þetta
lagt. Þetta er listarými sem fyllir
mann innblæstri.“ Sigrún segist hafa
gengið út frá því að hafa búðina sem
persónulegasta og fékk hjálp frá sín-
um nánustu við að koma henni upp.
Til að mynda smíðaði eiginmaður
hennar borðin í búðinni. „Það er
rosalega mikil sál á staðnum.“
Það var mikið fjör í opnunarteiti
búðarinnar og engu til sparað. Gest-
ir gæddu sér á makkarónum merkt-
um Gyðjumerkinu meðan þeir dill-
uðu sér við tóna Dj. Önnu Brá sem sá
um stemninguna. „Þetta heppnaðist
rosalega vel,“ segir Sigrún um opn-
unarteitið.
Sigrún segir margar þekktar
Hollywood-stjörnur hafa verslað
við sig og notað fylgihluti frá Gyðju.
Til að mynda eigi söngkonan Nicole
Scherzinger þrjú úr frá merkinu,
að sögn Sigrúnar. Úrin eru úr ís-
lensku laxaroði og er 24 karata gyll-
ing. „Þetta er bæði úr og skartgripur í
leiðinni.“ Að sögn Sigrúnar er Nicole
ekki sú eina sem heillast hefur af
vörunum. „Eva Longoria og Anna
Hathaway eiga líka skó og töskur frá
merkinu,“ segir hún ánægð með við-
skiptahópinn. n
Hollywood-dívurnar
„skotnar“ í Gyðju
Sigrún Lilja selur stjörnunum fylgihluti
Salka Margrét Sigurðardóttir
salka@dv.is
Glæsilegar Edda, Rebekka, Solla, Andrea og Rakel.
Smart
Alexandra
í fötum
frá Gyðju .
Búðin í Bæjarlind Sigrún, ásamt
Elísabetu og Sesselju.
Góð mæting Heiðrúnu, Þórunni og
Önnu leist vel á.
Gyðja Sigrún
stofnandi Gyðju
Collection
ásamt Sollu.
H
araldur F. Gíslason, Pollapönk-
ari og leikskólakennari, virð-
ist vera orðinn dauðleiður á
Hannesi Hólmsteini Gissurar-
syni stjórnmálafræðiprófessor. „Þegar
að fólk hættir að deila greinum og
velta fyrir sér hvað náungi sem kall-
ar sig Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son segir, þá erum við að komast upp
úr hjólförunum,“ skrifar hann á Face-
book og bætir við: „Er andstæðan
við að „græða á daginn og grilla á
kvöldin“ að „vinna á daginn og svæfa
á kvöldin“?“ Þar vitnar hann í þekkt-
an frasa Hannesar frá því á útrásar-
árunum.
Hannes hélt erindi á málþingi um
karlmennsku sem haldið var í Háskóla
íslands um daginn. Þar hélt Hannes
því fram að í nútímanum væri erfiðara
að vera karl en kona. Fór hann mjög
óhefðbundna leið í skýringum sínum
og vitnaði í gögn um lífslíkur, sjálfs-
víg, glæpi og stríðsrekstur máli sínu
til stuðnings. Fullyrti hann að launa-
munur kynjanna væri „tölfræðileg tál-
sýn“ og að samvera kvenna með ný-
fæddum börnum væri ígildi launa. Í
viðtali við Vísi sagði Kristín Ástgeirs-
dóttir, framkvæmdastýra hjá Jafn-
réttisstofu, að margir ráðstefnugest-
ir hefðu verið hneykslaðir á því að
Hannes hefði verið einn af fyrirlesur-
unum á ráðstefnunni.
Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi
þingkona, gagnrýndi Hannes harð-
lega í pistli á Eyjunni, ekki síst hug-
myndir hans um að leggja niður
kynjafræðikennslu. „Kynjafræðirann-
sóknir á Vesturlöndum hafa haft
ómetanlega þýðingu fyrir aukinn
skilning almennings á kynbundnu
misrétti,“ skrifar hún og bætir því við
að það sæmi ekki háskólaprófessor
að ráðast á aðrar fræðigreinar en þær
sem hann sjálfur sinnir. „Ekkert frekar
en það sæmir háskólaprófessor í
opin berri stöðu að misfara með heim-
ildir og hugverk annarra,“ segir Ólína
og vísar til þess að Hæstiréttur dæmdi
Hannes fyrir ritstuld við ritun ævisögu
Halldórs Laxness árið 2008. Kristín
Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands,
átaldi Hannes í bréfi og gerði kröfu um
að vinnubrögðin sem hann viðhafði
yrðu ekki endurtekin í framtíðinni. n
Pollapönkari pirraður á Hannesi
„Vinna á daginn og svæfa á kvöldin“?
Mynd SiGtryGGur Ari
upp úr hjólförunum Haraldur hvetur Íslendinga til að hætta að velta því fyrir sér því
sem Hannes Hólmsteinn hefur að segja. Mynd GunnAr GunnArSSon
Með kærustunni
á sveitaballi
Það var aldeilis fjör í Hreðavatns-
skála á laugardaginn þegar
hljómsveitin Skítamórall hélt þar
sveitaball af bestu gerð. Margir
gerðu sér ferð í sveitina til þess að
skemmta sér og þeirra á meðal
var íþróttaálfurinn sjálfur Magn-
ús Scheving, sem var í miklu
stuði á ballinu með kærustunni
sinni, Hrefnu Björk Sverrisdóttur.
Maggi var í stuði á ballinu og sló
á létta strengi með öðrum ball-
gestum: meðal annars leyfði
hann stelpuhóp að lyfta honum
upp fyrir myndatöku og hafði
gaman af.
Skemmtir
sér á Balí
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arn-
alds nýtur nú lífsins á Balí. Frá
þessu var sagt í nýjasta tölublaði
Séð og heyrt. Ólafur segist hafa
fengið skyndilega hugdettu um
að skella sér til Balí en þar á hann
vini sem eru að byggja sér hús
þar. Ólafur var á leið heim til Ís-
lands en reif miðann og skellti sér
frekar í ferðamannaparadísina
þar sem hann iðkar jóga og fer
á brimbretti. Þetta hefur eflaust
verið kærkomin hvíld fyrir tón-
listarmanninn sem hefur verið
á tónleikaferðalögum víða um
heiminn undanfarið. Ólafur vann
líka Bafta- verðlaunin í apríl síð-
astliðnum.