Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1969, Qupperneq 8
6*
Verzlunarskýrslur 1968
og vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóðanna, þannig að hvert vörunúmer
í annarri skránni ætti sér „mótnúmer“ með nákvæmlega sama innihaldi
í hinni. Dró þetta úr notagildi skrárinnar og hagskýrslugerð á þessu sviði
torveldaðist, en þetta var lagfært, með því að hætt var áður nefndum
rúmlega 200 undirliðum við Brussel-skrána, jafnframt þvi sem ýmsar
breytingar voru gerðar á tölfræðilegu vöruskránni. Komust þessar tvær
skrár þar með í fullt samræmi hvor við aðra.
í Brússel-skránni eru á 14. hundrað vörunúmer að meðtöldum áður
nefndum 200 undirliðum. í hinni endurskoðuðu tölfræðilegu skrá (Stand-
ard Intcrnational Trade Classification Revised), sem gefin var út af
Sameinuðu þjóðunum, New York 1961, voru 1312 vörunúmer. í íslenzku
tollskránni eru nú tæplega 2100 vörunúmer, eða um 800 fleiri en í Brussel-
skránni. Þessi viðbót stafar af skiptingu á sumum númerum alþjóðlegu
skrárinnar.
Hin endurskoðaða vöruskrá liagstofu Sameinuðu þjóðanna er þannig
uppbj^ggð: í 625 undirflokkum („subgroups“, táknaðir xxx.x) á hver vara
í millirikjaviðskiptum sinn stað. Af þessum undirflokkum eru 278 skiptir
þannig að 944 númer („subsidiary headings“, táknuð xxx.xx) bætast við
625-^-278 númer, og verður heildartala vörunúmera þá 1312, eins og
áður segir. Hinir 625 undirflokkar skiptast á 177 vöruflokka („groups“,
táknaðir xxx), og þeir ganga upp í 56 vörudeildir („divisions“, táknaðar
xx), sem að lokum mynda vörubálka („sections“, táknaðir x).
Verzlunarsltýrslum fyrir árið 1968 er hagað á sömu lund og Verzl-
unarskýrslum 1967.
Aðaltafla innflutnings, tafla IV, er í tollskrárröð, en aðaltafla út-
flutnings, tafla V, í númeraröð hinnar endurskoðuðu vöruskrár hag-
stofu Sameinuðu þjóðanna, með ýtarlegri sundurgreiningu einstakra
liða miðað við íslenzkar aðstæður. En l'yrir hvert sundurliðað vöru-
númer í töflum þessum er innflutningi og útflutningi skipt á lönd. —
Töflur I—II og yfirlit nr. 2 og 4 hér í inngangi eru samdráttartöflur og
fylgja þar af leiðandi flokkun hinnar tölfræðilegu vöruskrár hagstofu
Sameinuðu þjóðanna, sem er miðuð við þarfir hagskýrslugerðar.
Varðandi form og uppsetningu á aðaltöflum innflutnings (IV) og
útflutnings (V) vísast að öðru leyti til skýringa í upphafi hvorrar töflu.
Einkum er visað til liða 3—5 í skýringum við töflu IV.
Cif-verð, fob-verð o. fl. Fram að 1951 var innflutningurinn í Verzl-
unarskýrslum eingöngu talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru í útflutnings-
landinu (fob-verð), að viðbættum kostnaði, sem á fellur, þar til hún er
affermd á ákvörðunarstað. Er hér aðallega um að ræða flutningsgjald og
vátryggingu. Síðan i Verzlunarskýrslum 1951 hefur innflutningurinn
einnig verið gefinn upp á fob-verði í nokkrum töflum. Svo er nú í töfl-
urn I og IV og í 2. yfirliti í inngangi. — í þeim kafla inngangsins, sem
fjallar sérstaklega um innfluttar vörur, verður vikið nánar að fob-verð-
mæti innflutningsins og mismun þess og cif-verðmætisins.
Innflutningstölur verzlunarskýrslna eru afleiðing umreiknings í ís-