Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1969, Qupperneq 20
18*
Verzlunarskýrslur 1968
Á árinu voru fluttar inn 2 flugvélar, báðar frá Bandarílcjunum. Loft-
leiðaflugvélin Þorvaldur Eiríksson, keypt fyrir 133,0 millj. kr. (talin með
innflutningi júnimánaðar), og flugvél flugfélagsins Þór í Keflavik, kevpt
fyrir 0,7 millj. kr. (talin með innflutningi nóvembermánaðar).
í 3. yfirliti er sýnd árleg neyzla nokkurra vara á hverju 5 ára skeiði,
síðan um 1880 og á hverju ári síðustu 5 árin, bæði í heild og á hvern
einstakling. Að þvi er snertir kaffi, sykur og tóbak er miðað við innflutt
magn og talið, að það jafngildi neyzlunni. Sama er að segja um öl framan
af þessu tímabili, en eftir að komið var á fót reglulegri ölframleiðslu i
landinu er hér miðað við innlcnt framleiðslumagn. — Vert er að hafa
það í huga, að innflutt vörumagn segir ekki rétt til um neyzlumagn, nema
birgðir séu liinar sömu við byrjun og lok viðkomandi árs, en þar getur
munað miklu.
Tölurnar, er sýna úfengisneijzluna, þarfnast sérstakra skýringa. Árin
1881—1935 er miðað við innflutt áfengismagn og talið, að það jafngildi
neyzlunni. Þá er og allur innfluttur vínandi talinn áfengisneyzla, þó að
hluti hans hafi farið til annarra nota. Upplýsingar eru ekki fyrir hendi
um, hve stór sá hluti hefur verið, en hins vegar má gera ráð fyrir, að
meginbluti vínandans hafi á þessu tímabili farið til drykkjar. — Frá
árinu 1935 er miðað við sölu Áfengisverzlunar ríkisins á sterkum drykkjum
og léttum vínum og hún talin jafngilda neyzlunni, en vinandainnflutning-
urinn er ekki meðtalinn, enda er sá hluti hans, sem farið hefir til fram-
leiðsln brennivíns og ákavítis hjá Áfengisverzluninni, talinn í sölu hennar
á brenndum drykkjum. Þó að eitthvað af vínandainnflutningi hennar
kunni að hafa farið til neyzlu þar fram yfir, er ekki reiknað með því í
töflunni, þar sem ógerlegt er að áætla, hversu mikið það magn muni vera.
Hins vegar má gera ráð fyrir, að það sé mjög lítið hlutfallslega. — Inn-
flutningur vínanda siðan 1935 er sýndur í töflunni, en hafður í sviga, þar
sem hann er ekki með i neyzlunni. — Það skal tekið fram, að áfengi,
sem áhafnir skipa og flugvéla og farþegar frá útlöndum taka með sér inn
í landið, er ekki talið í þeim tölum, sem hér eru birtar, en þar mun vera
um að ræða mikið magn. Þetta ásamt öðru, sem hér kemur til greina, gerir
það að verkum, að tölur 3. yfirlits um áfengisneyzluna eru ótraustar, eink-
um seinni árin. — Mannfjöldalalan, sem notuð er til þess að finna neyzl-
una hvert ár, er meðaltal fólksfjölda í ársbyrjun og árslok. Fólkstala fyrir
1908, sem við er miðað, er 201 244.
Hluti kaffibætis af kaffineyzlunni samkvæmt yfirlitinu var sem hér
segir síðustu 5 árin (100 kg): 1964: 890, 1965: 064, 1966: 614, 1967: 384,
1968: 388.
4. yfirlit sýnir verðmæti innfluttrar vöru eftir mánuðum og vöru-
deildum. Skip og flugvélar innfluttar í janúar—júní 1968 eru eins og
venjulega taldar með innflutningi júní, en slíkur innflutningur síðari
hluta árs er að þessu sinni talinn með innflutningi nóvember. Fyrr í þess-
um kafla var gerð grein fyrir, hvernig innflutningur skipa og flugvéla
1968 skiptist á árið.