Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1986, Qupperneq 29
Verslunarskýrslur 1985
27'
Verslunarskýrslum 1974. Að öðru leyti vísast til skýringa í neðanmálsgrein við 5.
yfirlit. — Flokkun sú á útflutningi, er hér um ræðir, kemur fram í töflu III á bls.
20—27, og þar sést staður hverrar útflutningsvöru í þessari flokkun. Þó er
flokkunin í töflu III önnur að því leyti, að afurðir af hvalveiðum mynda þar ekki
sérflokk, heldur eru þær með sjávarafurðum.
Flokkun þessi á útfluttum vörum eftir uppruna, sem eins og áður segir kom til
framkvæmda frá ársbyrjun 1970, var ákveðin í samráði við landbúnaðarráðu-
neytið, sjávarútvegsráðuneytið og iðnaðarráðuneytið, og auk þess var flokkun
þessi borin undir þær stofnanir hinna þriggja aðalatvinnuvega, sem hér eiga hlut
að máli. — Frá og með árinu 1977 er lagmeti (nr. 18 í töflu III) flokkað með
iðnaðarvörum, en ekki sjávarvörum. Hafa tölur 5. yfirlits um útfluttar afurðir af
fiskveiðum og af iðnaði verið færðar til samræmis við þessa breytingu árin
1971—76, en eldri tölur yfirlitsins eru látnar standa óbreyttar.
I 6. yfirliti er sýnt, hvernig magn og verðmæti útflutnings 1985 skiptist á
mánuði.
Vörusala íslensks markaðar h.f. íslenskur markaður h.f. hóf í ágúst 1970
verslun með íslenskan varning í flugstöðinni á Keflavíkurflugvélli. Aðalvið-
skiptamenn íslensks markaðar eru flugfarþegar, sem eru á förum úr landi, en
auk þess er nokkuð um, að kaupendur panti vörur og fái þær sendar í pósti.
Hvorki vörusala á staðnum né póstsending til útlanda er tekin í útflutnings-
skýrslur. Að meðaltali hefur um 90% sölunnar verið í erlendum gjaldeyri, og
hefur sú sala numið sem hér segir (í þús. nkr.). 1971: 693, 1972: 722, 1973: 827,
1974: 880, 1975: 1 588, 1976: 2 268, 1977: 3 145, 1978: 6 081, 1979: 8 320, 1980:
8 947, 1981: 12 187, 1982: 25 968, 1983: 58 803, 1984: 82 067 og 1985: 128 152.
Sundurgreining söluandvirðis eftir vörutegundum 1983—85 fer hér á eftir, í
þús. kr. Númer samkvæmt flokkunarskrá útflutnings (sjá töflu V) eru tilgreind í
sviga:
1983 1984 1985
Grásleppuhrogn niðurlögð (18.31) 774 1 091 1 708
Annaðlagmetiúrsjávarafurðum 434 612 958
Reykturfiskur(18.15,49.29) 101 143 223
Kindakjöt fryst (51.10) 401 565 886
Ostur (57.10) 501 706 1 105
Aðrar landbúnaðarafurðir 84 119 186
Reykturlax (79.41) 488 688 1 077
Vörurúrloðskinnum(80.10) 1 207 2 419 6 951
Gærur fullsútaðar (81.10) 633 761 841
Ullarteppi (83.10) 3 121 4 210 5 880
Vettlingar, húfur, treflar ofl., prjónað (84.10—84.35) 6 772 8 152 12 280
Peysur prjónaðar (84.40) 18 649 26 784 44 446
Ytri fatnaður, prjónaður og ofinn (84.43—84.50,88.20) 17 093 21 757 28 600
Skrautmunir og húsbúnaður úr postulíni (89.58) 1 418 2 611 4 214
Prentaðar bækur og bæklingar, póstkort (89.78,89.78.30) .... 1 937 2 993
Silfur- og gullsmíðavörur (89.80.10) 844 1 102 1 641
Ýmsar vörur 6 283 8 410 14 163
Alls 58 803 82 067 128 152