Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 6. júlí Miðvikudagur
Fær ekki bætur eftir að hafa aðstoðað samstarfskonu eftir vinnuslys:
Vill ekki búa þar sem enginn hjálpar
Þórarinn Björn Steinsson fær ekki
bætur vegna meiðsla sem hann
varð fyrir þegar hann, ásamt öðr
um manni, hífði 620 kílóa stálbita
af samstarfskonu sinni eftir að hann
féll yfir fætur hennar. „Ég fæ engar
bætur. Sjóvá og Norðurál voru sýkn
uð af öllum kröfum,“ segir Þórarinn
sem fór fram á fyrir dómi að Norður
ál og Sjóvá viðurkenndu skaðabóta
skyldu vegna bakmeiðsla sem hann
hlaut við slysið. Þegar þeir lyftu stál
bitanum brast eitthvað í baki hans
en eftir margra ára sjúkraþjálfun
og fjölmargar innlagnir á sjúkrahús
þarf hann enn að reiða sig á verkja
lyf og svefntöflur. Hann hefur ver
ið metinn 75 prósent öryrki og er
óvinnufær. „Ég sit uppi með ónýtt
bak, stanslausa verki, óvinnufær og
er á endurhæfingarlífeyri sem er
næsta stig á undan örorku,“ segir
Þórarinn. Dómurinn var honum
mikið áfall og kom honum mjög á
óvart. Hann segist ekki útiloka að
áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Það
sé þó dýrt. „Það kostar hins veg
ar svakalega peninga að berjast við
þetta kerfi. Konan mín er atvinnu
laus og við eigum fjögur börn svo
ástandið er erfitt hjá okkur í augna
blikinu. Þessar bætur sem ég fæ eru
ekkert til að hrópa húrra fyrir.“
Bæði Norðurál og Sjóvá voru
sýknuð á þeim forsendum að það
væri ekki utanaðkomandi atburður
sem hefði valdið þessum meiðslum,
heldur hefði það verið hans eigin
ákvörðun að koma konunni til hjálp
ar. „Dómurinn segir í rauninni að
þetta sé mér að kenna. Mér finnst
þessi dómur senda þau skilaboð,
bæði til starfsmanna fyrirtækisins og
til annarra í landinu, að ef þú kemur
að slysi þá eigir þú bara að líta fram
hjá því og labba í burtu. Ég sé hins
vegar ekki eftir neinu og myndi hik
laust gera þetta aftur. Ég vil ekki búa
í samfélagi þar sem fólk kemur ekki
náunganum til hjálpar.“
Þrátt fyrir að fjárfestirinn Hannes
Smárason skilji eftir sig nokkur tækni
lega gjaldþrota félög á Íslandi, líkt
og DV greindi frá fyrir helgi, og að
minnsta kosti fjögur gjaldþrota félög
í Bretlandi, heldur hann eftir rúmlega
þriggja milljarða króna arðgreiðslu
sem hann fékk út úr almennings
hlutafélaginu FL Group árið 2007.
Arðgreiðslan var vegna rekstrar
ársins 2006 en þá var Hannes forstjóri
og einn stærsti hluthafi FL Group.
Hannes fékk milljarðana greidda
til hollensks eignarhaldsfélags síns,
Oddaflugs B.V., líkt og kemur fram í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis,
en heildararðgreiðslur út úr FL Group
tl hluthafa það árið námu tæpum 15
milljörðum króna. Þetta var næst
hæsta arðgreiðslan út úr íslensku fyr
irtæki á árunum fyrir íslenska efna
hagshrunið, sú hæsta var tæplega 25
milljarða króna arðgreiðsla Kaup
þings árið 2006 vegna rekstrarársins
2005.
Bókfærður hagnaður Oddaflugs,
félagsins sem átti hlutabréf Hannesar
í FL Group, árið 2006 nam rúmlega 13
milljörðum króna á árinu og var með
al annars tilkominn vegna sölu Hann
esar á bréfum félagsins í FL Group til
Oddaflugs B.V. í Hollandi. Þetta kem
ur fram í ársreikningi félagsins fyr
ir árið 2006. Oddaflug ehf. átti tæp
lega 20 prósenta hlut í FL Group sem
seldur var til Oddaflugs B.V. Um þessa
sölu segir í ársreikningi Oddaflugs
árið 2006: „Félagið seldi öll hlutabréf
sín í FL Group hf. á árinu 2006 til dótt
urfélagsins Oddaflug B.V. í Hollandi.“
Arðgreiðslan færðist
til Hollands
Viðskiptin með hlutabréf Hannesar í
FL Group fóru fram í blálok árs 2006,
samkvæmt fréttum í fjölmiðlum frá
þeim tíma. Hannes seldi bréfin í FL
Group til Hollands á genginu 25,2.
Vegna þessarar sölu á bréfunum rétt
fyrir lok reikningsársins var það ekki
Oddaflug ehf. sem tók við arðinum af
hlutabréfaeign Hannesar í FL Group
fyrir árið 2006 heldur Oddaflug B.V. í
Hollandi, líkt og kemur fram í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis.
Þrátt fyrir þessa tæplega 15 millj
arða arðgreiðslu út úr FL Group árið
2006 var, af þessum sökum, ekki gert
ráð fyrir arðgreiðslu til eða út úr Odda
flugi ehf. vegna ársins 2006. Um þetta
segir í ársreikningnum: „Stjórn félags
ins leggur til að ekki verði greiddur
arður til hluthafa á árinu 2007 vegna
ársins 2006.“ Undir ársreikninginn
skrifaði Gunnar Sturluson lögmaður,
stjórnarmaður í Oddaflugi og náinn
samstarfsfélagi Hannesar.
Arðgreiðslan til Hannesar Smára
sonar vegna hlutabréfaeignarinnar í
FL Group fór því til félags hans í Hol
landi en ekki íslenska eignarhalds
félagsins vegna þess að hann seldi
bréfin í FL Group fyrir lok reiknings
ársins 2007.
Tugmilljarðatap Hannesar
Öll eignarhaldsfélög Hannesar á
Íslandi standa höllum fæti í dag
enda töpuðu þau samtals fleiri tug
um milljarða króna á árunum 2008
og 2009. EO eignarhaldsfélag, sem
áður hét Oddaflug ehf., tapaði til
að mynda 22,5 milljörðum króna
árið 2008, samkvæmt nýlegum árs
reikningi félagsins og Eignarhalds
félagið Sveipur, sem hélt að hluta
til utan um hlutabréfaeign Hannes
ar í FL, tapaði rúmlega fimm millj
örðum króna. EO eignarhaldsfélag
skuldar tæpa tólf milljarða króna
og er eigið fé neikvætt um sömu
upphæð. Þetta er félagið sem seldi
hlutabréfin í FL Group til Oddaflugs
B.V. í Hollandi í árslok 2006 og þar
af leiðandi félagið sem hefði átt að
taka við arðinum vegna hlutabréfa
eignarinnar í FL Group. Hannes bjó
hins vegar þannig um hnútana að
arðurinn færðist til félags sem hann
átti í Hollandi.
Hannes skilur því eftir himin
háar skuldir í íslenskum eignar
haldsfélögum, sem og að minnsta
kosti fjögur gjaldþrota félög í Bret
landi, en hann heldur eftir þriggja
milljarða króna arðinum í félagi í
Hollandi; arði sem hann tók meðal
annars út úr íslensku almennings
hlutafélagi í gegnum félaganet sem
nú rambar á barmi gjaldþrots.
„Félagið seldi öll
hlutabréf sín í FL
Group hf. á árinu 2006 til
dótturfélagsins Oddaflug
B.V. í Hollandi.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Heldur
þriggja
milljarða
arðinum
Flutti bréfin til
Hollands Hannes
Smárason flutti
hlutabréf sín í FL
Group til Hollands
í árslok 2006 og
fékk arð vegna
hlutabréfaeignar FL í
þarlendum félögum.
Eignarhaldsfélög
Hannesar er nú flest
hver tæknilega gjald-
þrota en hann heldur
þessum þriggja
milljarða arði.
n Hannes Smárason fékk þrjá milljarða í arð vegna bréfanna í FL árið 2006 n Skilur eftir
sig gjaldþrota félög á Íslandi og í Bretlandi n Heldur arðinum þrátt fyrir gjaldþrotin
Gamli Landsbankinn sektaður:
Brutu lög með
yfirtökum
Samkeppniseftirlitið hefur komist að
þeirri niðurstöðu að Landsbanki Ís
lands hf., það er gamli Landsbank
inn, hafi brotið gegn samkeppnis
lögum með yfirtöku á nokkrum
fyrirtækjum. Bankinn verður sekt
aður um 40 milljónir króna.
Í samkeppnislögum er lagt bann
við því að samruni komi til fram
kvæmda á meðan Samkeppnis
eftirlitið fjallar um hann, nema til
komi sérstakt leyfi eftirlitsins. Brot
bankans fólst í því að taka yfir sex
félög, sem áður voru í eigu Bergeyj
ar eignarhaldsfélags ehf., og selja
öll félögin, að einu undanskildu, til
þriðja aðila. Þetta gerði Landsbank
inn áður hann tilkynnti Samkeppn
iseftirlitinu að hann hefði tekið yfir
félögin og selt. Félögin eru: Bílaleiga
Flugleiða ehf., Toyota á Íslandi hf.,
M. Kristinsson ehf., PizzaPizza ehf.,
Sólning Kópavogi ehf. og Bergey
fasteignafélag ehf.
Kröfu um varðhald hafnað:
Byssumaður
laus úr haldi
Héraðsdómur Suðurlands hafn
aði kröfu lögreglustjórans á Selfossi
um gæsluvarðhald yfir manni sem
handtekinn var aðfaranótt mánu
dags eftir að hafa hleypt skotum af
byssu á Stokkseyri. Jafnframt var
hafnað kröfu um að maðurinn sætti
geðrannsókn. Var hann því leystur
úr haldi.
Málið er í rannsókn og fer að
henni lokinni til meðferðar hjá sak
sóknara.
Maðurinn var handtekinn á
Stokkseyri rétt fyrir miðnætti þann
3. júlí eftir að hafa hleypt af úr skot
vopni. Lögreglan á Selfossi var köll
uð á vettvang og reyndist maður
inn þá vera talsvert ölvaður og hafði
skotið úr byssunni upp í loftið og í
jörðina. Hann hafði í óbeinum hót
unum við lögregluna en var færður á
lögreglustöð.
Að sögn lögreglu sakaði engan.
Lögreglan sagði manninn ekki hafa
ógnað fólki með skotvopninu.
Ræktaði
kannabis
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt karlmann í tveggja mánaða
fangelsi fyrir að rækta kannabis
plöntur og aka undir áhrifum
fíkniefna. Þann 15. febrúar í fyrra
fann lögregla 46 kannabisplöntur við
húsleit í leiguíbúð hans við Njarðvík
urbraut í Reykjanesbæ. Rúmum
mánuði síðar, þann 27. mars, var
sami maður stöðvaður á Reykjanes
braut fyrir akstur undir áhrifum
kannabisefna. Auk þess var
maðurinn ekki með ökuskírteini
meðferðis. Maðurinn játaði brot sín
skýlaust en dómurinn yfir honum er
skilorðsbundinn til tveggja ára.
Fær ekki bætur „Dómurinn segir í rauninni að þetta sé mér að kenna,“ segir Þórarinn.