Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2011, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 6. júlí Miðvikudagur „Mér hafa borist þær upplýsingar að Sigurður Þ. hafi nú þegar ráðið sig á ÍNN til Ingva Hrafns. Við getum ekki haft hann samtímis í vinnu, því Ingvi tekur ruslið sem við rekum,“ segir Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, í tölvupósti til lög- fræðings síns um fyrrverandi starfs- manns, Sigurðar Þ. Ragnarssonar. Arnþrúður hefur sagt Sigurði, sem oftast er kallaður Siggi stormur, upp störfum. Sigurður segir að uppsögnin hafi verið óvænt, en hann frétti af henni í tölvupósti frá Tryggva Agnarssyni, lögmanni Arnþrúðar. Í tölvupóst- inum kom fram að tekin hefði verið sú ákvörðun að leggja niður frétta- stofu stöðvarinnar en pósturinn var sendur á bæði hann og Hauk Holm, fyrrverandi fréttastjóra stöðvarinn- ar, sem einnig var sagt upp störf- um. Í tölvupóstinum kemur fram að ástæðan sé sú að væntingar sem stjórnendur stöðvarinnar höfðu um fréttastofuna og vef stöðvarinnar hefðu ekki gengið eftir. Fyrst og fremst sár Sigurður, sem staddur er í sumar- fríi á Spáni, segist fyrst og fremst vera undrandi og sár yfir framferði Arnþrúðar. „Þetta kom bara eins og þruma úr heiðskýru lofti,“ seg- ir hann. Sigurður segir að samskipti þeirra hafi gengið vel að undanförnu og hann hafi ekki séð þetta fyrir. „Ég veit ekki hvað hefur gerst hjá kon- unni.“ Sigurður segist einnig vera sár yfir því að Arnþrúður hafi ekki hringt í hann sjálf. „Hún er það mikil gunga að hún getur ekki hringt og rætt mál- in. Hún veit alveg GSM-símanúm- erið minn og hún veit alveg símann minn á Spáni,“ segir hann. Uppsögnina fékk hann í áður- nefndum tölvupósti frá lögmanni Arnþrúðar en sami tölvupóstur var sendur á fréttastjóra stöðvarinnar, Hauk Hólm. Var þeim því sagt upp í sama tölvupósti. Haukur sendi á sunnudag frá sér yfirlýsingu þar sem hann fordæmdi frétt stöðvarinn- ar um meintan barnaníðing í Vest- mannaeyjum og virðist ekki vera hlýtt á milli hans og fyrrverandi yfir- manns hans. Vinnur ekki aftur með Arnþrúði Haukur Holm var aðeins búinn að vera fjóra eða fimm daga í langþráðu sumarfríi á Spáni, þegar hann fékk uppsagnarbréfið frá lögmanni Arn- þrúðar. Haukur var fréttastjóri stöðv- arinnar og sá um fréttatíma auk vef- síðu hennar. „Ég var búinn að vera þarna í akkúrat ár og búinn að mæta í vinnu sex á hverjum morgni alla virka daga þannig að ég ákvað að taka mér sumarfrí. Hún tók undir það að ég skellti mér í frí því eins og hún orðaði það orðrétt: „Þú ert bú- inn að vinna eins og hestur.“ Þannig að ég pantaði mér flugmiða og flaug út,“ segir Haukur um dagana fyrir uppsögnina. „Svo þegar ég var búinn að vera hérna í innan við viku þá kíkti ég á tölvupóstinn minn og sá þá bréf frá lögmanni hennar þar sem hún segir upp samningnum við mig og Sigga storm í sama póstinum.“ Hauk- ur segist ekki hafa heyrt orð frá Arn- þrúði. „Nei, ekki eftir þessa reynslu,“ segir hann aðspurður hvort hann gæti hugsað sér að vinna með Arn- þrúði aftur. Of fáir hlustuðu Arnþrúður segir að uppsögnin hafa verið í gegnum tölvupóst þar sem bæði Sigurður og Haukur hafi verið í útlöndum en ekki kom til greina að segja þeim upp í gegnum síma. „Það er ekki eins öruggt gagnvart því að segja mönnum upp með lögformleg- um hætti,“ segir hún aðspurð hvort ekki hafi komið til greina að hringja í þá. „Við fengum Gallup-könnun fyr- ir einhverjum vikum síðan og mér brá svakalega þá, og Hauki líka. Mér fannst fréttastofan koma mjög illa út,“ segir hún um ástæðurnar á bak við lokun fréttastofunnar. „Ég var alltaf ánægð með þá, mér fannst þeir alltaf fínir en svo kom þessi könn- un,“ segir hún og bætir við að könn- unin hafi komið á svipuðum tíma og Haukur og Sigurður fóru í frí. Haukur segir að hann viti ekki hvaða væntingar Arnþrúður hafi haft um fréttastofuna og bendir á að erf- itt sé fyrir fréttastofu með eitt og hálft stöðugildi að keppa við stærri frétta- stofur. „Ruslið“ af Útvarpi Sögu Nokkrir af fyrrverandi starfsmönn- um Útvarps Sögu starfa á sjónvarps- stöðinni ÍNN. Vísar Arnþrúður til þess í tölvupóstinum sem hún sendi á lögmann sinn og Sigurð. Með- al þessara starfsmanna er Sigurður G. Tómasson, fyrrverandi dagskrár- gerðarmaður á stöðinni, og nú Sig- urður Þ. sem hefur ráðið sig til starfa á sjónvarpsstöðinni eftir að hann fékk uppsögnina á Útvarpi Sögu. Ingvi Hrafn vildi ekki tjá sig við DV þegar blaðamaður leitaði eftir við- brögðum hans. Samkvæmt heim- ildum DV er honum þó kunnugt um ummælin sem Arnþrúður lét falla í tölvupóstinum. Arnþrúður kannaðist ekki við tölvupóstinn þar sem hún lét um- mælin falla en sagði þó að þetta væri „innanhússmál“ og að hún tæki oft svona til orða. „Ég minnist þess nú ekkert sérstaklega. Það getur vel verið að ég hafi orðað þetta svona, ég skal ekkert um það segja. Ég tek nú stundum svona til orða, ég segi „bölvaðir ruslapokarnir“, ég geri það. Þetta er nú innanhússmál dálítið og er mjög vinsælt hérna á göngunum,“ segir hún. „Ingvi tekur ruslið sem við rekum“ Segir upp starfsmönnum með tölvupósti Arnþrúður sagði upp báðum starfsmönnum fréttastofu stöðvarinnar með einum og sama tölvupóstinum. n Fréttastofa Útvarps Sögu lögð niður n Tveimur starfsmönnum fréttastofunnar sagt upp störfum í tölvupósti n Siggi stormur fyrst og fremst sár yfir uppsögninni n Arnþrúður kallar fyrrverandi starfsmenn stöðvarinnar rusl Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is „Hún er það mikil gunga að hún getur ekki hringt og rætt málin. Starfaði fyrir Arnþrúði í tíu mánuði Arnþrúður sagði útvarpskonunni Önnu Kristine upp með tölvupósti þann 13. september 2010 en Anna var með útvarps- þáttinn Milli mjalta og messu á sunnudags- morgnum. Önnu var sagt að hún þyrfti að afboða viðmælendur sína því þátturinn yrði ekki framar á dagskrá. Í tölvupóstinum sagði meðal annars: „Menn vilja sjá harðari fréttatengda umfjöllun á þessum tíma eins og Bylgjan gerir og ég hef Anna mín verið að tala þínu máli en varð alveg undir í þessu þ.e.a.s. á þessum útsend- ingartíma.“ Starfaði fyrir Arnþrúði í fjögur ár Arnþrúður sagði Sigurði G. Tómassyni, dagskrárgerðarmanni stöðvarinnar, upp með SMS-skila- boðum þann 19. september í fyrra. Þetta staðfesti Sigurður G. í samtali við DV. „Ég ætlaði að mæta til vinnu í fyrramálið en svo fékk ég þetta SMS,“ sagði hann sama kvöld og hann fékk SMS-skilaboðin. „Ég var fastur starfsmaður og taldi því að það þyrfti að segja mér upp bréflega.“ Starfaði fyrir Arnþrúði í fjögur ár með hléum Arnþrúður rak hagfræðinginn Guðmund Ólafsson sem verið hafði fastagestur í útvarpsþætti Sigurðar G. árið 2009. Nokkrum dögum fyrr hafði Guðmundur gert grín að stjórnendum útvarpsstöðvarinnar. Sigurður G. sagði þá að ekkert samráð hefði verið haft við sig vegna málsins. Arn- þrúður sagði í viðtali við mbl.is um málið að ekki væri hægt að líða ærumeiðandi ummæli Guðmundar og að þáttur hans yrði sífellt óvinsælli. Arnþrúður hringdi sjálf í Guðmund til að tilkynna honum að hann væri ekki lengur velkominn sem gestur á stöðinni. Starfaði fyrir Arnþrúði í eitt ár Haukur Holm fékk uppsagnarbréf í tölvu- pósti frá lögmanni Arnþrúðar fjórum eða fimm dögum eftir að hann fór í sitt fyrsta sumarfrí. Haukur var fréttastjóri stöðvarinnar og var eini starfsmaður fréttastofunnar í fullu starfi. „Ég var búinn að vera þarna í akkúrat ár og búinn að mæta í vinnu sex á hverjum morgni alla virka daga þannig að ég ákvað að taka mér sumarfrí,“ segir Haukur um uppsögnina. Starfaði fyrir Arnþrúði í tíu mánuði Sigurður Þ. Ragnarsson sá um veður- fréttir á Útvarpi Sögu og var í 50 prósenta starfshlutfalli á fréttastofu stöðvar- innar allt þar til hann var rekinn með tölvupósti. „Þetta kom bara eins og þruma úr heiðskýru lofti,“ segir hann um uppsögnina en hann segir að samstarfið við Arnþrúði hafi gengið vel fram á síðasta dag. Sigurður var í sumarfríi á Spáni þegar hann fékk upp- sagnarbréfið frá lögmanni Arnþrúðar. Starfsmenn reknir með SMS-skilaboðum og tölvupósti: Tekur á móti „rusli“ Ingvi Hrafn hefur nokkra fyrrverandi starfsmenn Útvarps Sögu í vinnu hjá sér. Mynd nínA BjÖRK HlÖðVeRSdÓTTiR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.