Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2011, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2011, Side 14
14 | Fréttir 6. júlí 2011 Miðvikudagur Leikkonunni Helgu Þorsteinsdótt- ur Stephensen var sagt upp störf- um hjá Þjóðleikhúsinu í fyrra. Þeg- ar henni var sagt upp átti hún eitt og hálft ár eftir í eftirlaun. Helga hef- ur unnið sér inn rétt til töku lífeyris en fær ekki greiðslur frá Trygginga- stofnun á móti fyrr en í haust þegar hún verður 67 ára. Lífeyrisgreiðslur hennar eru það lágar að hún þiggur atvinnuleysisbætur þeirra í stað. Helga hafði starfað um árabil sem hvíslari á stóra sviðinu í Þjóð- leikhúsinu. Þegar henni var sagt upp störfum þá var henni tjáð að leggja ætti stöðu hvíslara niður. Engu að síður þá er það svo að aðrir starfs- menn Þjóðleikhússins hafa tekið að sér að hvísla á sýningum í dag. Máli Helgu hefur verið vísað til umboðsmanns Alþingis sem kannar hvort uppsögn Helgu hafi verið lög- mæt. Er þá helst skoðað hvort með- alhófsreglunnar hafi verið gætt við uppsögn Helgu þegar hún átti að- eins eitt og hálft ár eftir í eftirlauna- aldur. Meðalhófsreglan kveður á um að stjórnvald skuli aðeins taka íþyngj- andi ákvörðun þegar lögmætu markmiði, sem að er stefnt, verður ekki náð með öðru og vægara móti. Stjórnvöld skulu ávallt velja það úr- ræði sem veldur minnstri röskun á hagsmunum borgarans. Fjárveitingar lækka Heimildir DV herma að umboðs- maður Alþingis kanni hvort að Þjóð- leikhúsið hafi brotið meðalhófs- regluna með því að segja Helgu upp þegar hún átti svo stutt eftir í eftir- launaaldur. Þau svör fengust frá umboðs- manni Alþingis að hann tjái sig ekki um einstök mál sem eru í meðförum embættisins. Ari Matthíasson, fram- kvæmdastjóri Þjóðleikhússins, sagð- ist ekki geta svarað fyrir stjórnsýslu- athafnir sem fóru fram áður en hann tók til starfa og á það við uppsögn Helgu. Hann bendir á að hann geti ekki tjáð sig um mál sem umboðs- maður Alþingis er með til afgreiðslu. Fjárframlög íslenska ríkisins til Þjóðleikhússins hafa lækkað um- talsvert undanfarin ár. Frá árinu 2005 hafa fjárveitingar ríkisins til leikhússins lækkað um 35 prósent, eða úr rúmum milljarði í 644 millj- ónir króna. Árið 2010 fékk leikhús- ið 707 milljónir króna frá ríkinu. Þá voru laun og launatengd gjöld tæp- ar 663 milljónir króna samkvæmt ársskýrslu Þjóðleikhússins fyrir árið 2010. Önnur gjöld voru 306 milljónir króna og samtals gjöld hjá leikhús- inu fyrir 2010 því rúmar 969 millj- ónir króna. Brúttótekjur leikhússins fyrir 2010 voru 917 milljón krónur og því stóðu eftir 1,3 milljónir króna í rekstrarafgang árið 2010. Sé tekið mið af því að launatengd gjöld voru 663 milljónir króna og fjárframlög ríkisins árið 2011 644 milljónir króna þá var fyrirséð að Þjóðleikhúsið þyrfti að fara í sparn- aðaraðgerðir. Síðastliðið haust var tíu starfsmönnum sagt upp störfum í ýmsum deildum en samkvæmt upp- lýsingum frá Ara Matthíassyni, fram- kvæmdastjóra leikhússins, þá var átta ársverkum fækkað innan þess því ráðið var inn í nýja stöðu og tveir tóku skert starfshlutfall. Margir í sárum Ari segir að fjórum fastráðnum leik- urum hafi verið sagt upp störfum í vor og tveir samningar leikara sem voru í leyfi voru ekki framlengdir. Á fastan samning koma hins vegar sex REKIN ÁRI FYRIR EFTIRLAUNAALDUR n Helgu Þorsteinsdóttur Stephensen var sagt upp störfum þegar hún átti rúmt ár í eftirlaunaaldur n Hafði verið frá 1996 við Þjóðleikhúsið n Umboðsmaður Alþingis kannar lögmæti uppsagnarinnar Birgir Olgeirsson blaðamaður skrifar birgir@dv.is Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is Á stóra sviðinu í 14 ár Helgu Þ. Stephensen var sagt upp störfum hjá Þjóð- leikhúsinu í fyrra. „Ég hef ekki fengið neinar upplýsingar um að þetta sé ólöglegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.