Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Page 6
6 | Fréttir 25. júlí 2011 Mánudagur
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
Töluvert mikið hefur verið fjallað um
hækkun íbúðaverðs á höfuðborgar
svæðinu að undanförnu. Er óhætt að
segja að greiningardeildir bankanna
hafi verið ötular við að flytja fréttir af
hækkun íbúðaverðs, enda líklega fáir
sem hafa meiri hagsmuni af hækk
un íbúðaverðs en bankarnir sjálfir
vegna útlána sinna, nema þá helst
Íbúðalánasjóður.
Sjaldan virðist hins vegar vera
fjallað um raunverulega hækkun
íbúðaverðs þegar búið er að taka til
lit til breytinga á vísitölu neysluverðs
eða verðbólgu við hækkun vísitöl
unnar, og verðhjöðnunar þegar hún
lækkar. Að undanförnu hefur verð
bólgan hækkað mikið og hefur hún
verið umfram spár Seðlabankans.
Hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 4,4 prósent það sem af er ári en
nýjasta verðbólguspá Seðlabankans
gerir ráð fyrir að hún verði að meðal
tali 2,8 prósent á árið 2011, sem hlýt
ur að teljast afar varfærnisleg spá.
Einungis 0,9 prósent raun-
hækkun 2011
Eins og sést í töflu með fréttinni
nemur raunhækkun fasteignaverðs
á höfuðborgarsvæðinu einungis 0,9
prósent það sem af er ári. Það þýð
ir að íbúð sem kostaði 20 milljónir
í byrjun árs hefur hækkað um 180
þúsund krónur að jafnaði.
Líklegt verður að teljast að vísi
tala neysluverðs gæti jafnvel hækk
að hraðar en íbúðaverð á næstunni.
Samkvæmt því sem DV kemst næst
hafa fasteignasalar þó fundið fyrir
aukinni eftirspurn að undanförnu,
þá sérstaklega síðustu tvo mánuði.
Hins vegar taldi hagfræðingur sem
DV ræddi við að verðbólga myndi
fara á mikið skrið á næstunni. Því
má segja að nokkur óvissa ríki um
það hversu mikil raunhækkun verði
á íbúðaverði höfuðborgarsvæðisins
á þessu ári eða hvort hún verði ein
hver.
Lítið hefur þó borið á fréttum
um þessa þróun frá greiningardeild
um bankanna að undanförnu. Verð
íbúða í fjölbýli hefur hins vegar verið
að hækka töluvert mikið á sama tíma
og verð sérbýlis hefur lækkað. Er
talið að það skýrist meðal annars af
því að fjárfestar sæki frekar eftir því
að kaupa íbúðir í fjölbýli. Af þeim sé
hægt að fá hærra leiguverð miðað við
fermetrafjölda og þær séu líklegar til
þess að verða söluvænni á næstu
árum þar sem ungt fólk eigi nú erf
iðara með fyrstu kaup. Eiginfjárhlut
fall þurfi að vera um 20 til 30 pró
sent til þess að ungt fólk geti fengið
íbúðalán.
Nærri 30 prósenta raunlækkun
2008–2010
Þó raunhækkun íbúðaverðs hafi ekki
verið mikil það sem af er ári má sjá
á töflu með frétt að núverandi þróun
er mun jákvæðari en hún var á árun
um 2008, 2009 og 2010 þegar raun
lækkun íbúðaverðs á höfuðborgar
svæðinu nam heilum 26 prósentum.
Til samanburðar má nefna að fast
eignaverð í Noregi byrjaði þegar að
hækka í upphafi ársins 2009. Árið
2010 hækkaði fasteignaverð í Nor
egi um heil átta prósent og gera spár
ráð fyrir sömu hækkun árið 2011.
Reyndar má geta þess að fasteigna
verð í Stafangri og nágrenni hefur
hækkað um meira en 40 prósent frá
því árið 2009. Það verður að teljast
ólíklegt að íbúðaverð í Reykjavík og
nágrenni hækki jafn mikið á næstu
árum. Þó er vonandi að raunhækk
un verði varanleg áfram þó að verð
bólgudraugurinn virðist vera farinn
að láta á sér kræla að nýju.
Lítil hækkun á
fasteignaverði
n 0,9 prósenta raunhækkun á íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu á árinu n Aukin
verðbólguþrýstingur gæti leitt til þess að raunhækkun á árinu 2011 verði engin
Lítil raunhækkun Þrátt fyrir að íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hafi hækkað um 5,4
prósent það sem af er ári nemur raunhækkun þegar tekið er tillit til verðbólgu einungis 0,9
prósentum.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
„Sjaldan virðist hins
vegar vera fjallað
um raunverulega hækkun
íbúðaverðs þegar búið er
að taka tillit til breytingar
á vísitölu neysluverðs.
HækkuN íbúðAvErðs og vísitöLu NEysLuvErðs 2004–2011
Ár íbúðaverð á höfub.sv. vísit. neysluv. raunhækkun
2011* 5,4% 4,4% 0,9%
2010 -0,2% 2,8% -3,0%
2009 -10,5% 6,9% -17,4%
2008 12,3% 17,9% -5,6%
2007 4,4% 5,6% -1,2%
2006 24,6% 6,6% 18,0%
2005 21,6% 4,1% 17,5%
2004 6,9% 3,9% 3,0%
*Heimild: Þjóðskrá og Hagstofan. Tölur fyrir 2011 eru frá janúar til júní.
biskup íslands:
Við erum öll
Norðmenn
„Við höfum safnast saman hér í
Dómkirkjunni í dag til að tjá norsku
þjóðinni samstöðu og samhug and
spænis þeim
ólýsanlega hryll
ingi sem voða
verkin í Osló og
Úteyju eru. Héð
an úr Dómkirkju
landsins sendum
við norsku þjóð
inni hugheilar
kveðjur hluttekn
ingar og samúðar. „Í dag erum við
öll Norðmenn,“ sagði forsætisráð
herra Svíþjóðar, og það er vel mælt.
Við erum öll harmi lostin og finnst
að okkur sjálfum vegið,“ sagði herra
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands,
í predikun í Dómkirkjunni í gær,
sunnudag.
Hann sagði að grimmdin og
hatrið sem byggi að baki voðaverk
unum væri óskiljanlegt. „Að einn
ofbeldismaður skuli hafa áorkað
slíku hermdarverki, úthugsuðu og
djöfullegu grimmdarverki gegn sak
lausu fólki er óskiljanlegt og ægilegt.
Við finnum lamandi ótta og öryggis
leysi er við hugsum til þess hvers
hatrið er megnugt nái það að blinda
huga manns og virkja til voðaverka.
Og það hve ógnin stendur okkur
nærri, jafnvel hér í þessum friðsæla
heimshluta, þar sem við höfum talið
okkur örugg og óhult í okkar opna
og góða samfélagi á grundvelli krist
inna gilda.“
Hann sagði enn fremur að þeg
ar reiðin og hatrið blindaði huga
manns væri voðinn vís. Andstæða
reiðinnar væri sljóleikinn gagnvart
rangindum og illsku. Hvort tveggja
bæri að forðast. „Reiðin er einatt
viðbrögð öryggisleysis, varnaleysis
og ótta. Hvað yfirvinnur óttann? Það
er kærleikurinn.“
Fjölmenn minningarathöfn fórnar
lamba hryðjuverkanna í Noregi fór
fram við Tjörnina í Reykjavík á laug
ardag. Að sögn viðstaddra voru um
300–400 manns á staðnum þeg
ar hún var við það að hefjast. Ungir
jafnaðarmenn stóðu fyrir sam
komunni. Tendruð voru friðarljós á
staðnum.
Guðrún Jóna Jónsdóttir, formað
ur Ungra jafnaðarmanna, flutti er
indi á staðnum. „Í dag erum við öll
Norðmenn,“ sagði hún. Viðstaddir
mættu til þess að sýna Norðmönn
um samhug. Mínútu löng þögn var
fyrir fórnarlömb ódæðanna. Ráðhús
Reykjavíkur var opnað eftir athöfn
ina þar sem viðstaddir gátu skráð
nöfn sín í opna minningarbók.
Hryðjuverkaárás hægri öfga
mannsins Anders Behring Breivik
í miðborg Osló í fyrradag og í Útey
hefur valdið miklum óhug úti um
allan heim. Að minnsta kosti 93
létu lífið í árásunum. Leit að þeim
sem saknað er bar engan árangur á
sunnudag. Norska lögreglan segir að
ellefu eða tólf sé enn saknað. Norsk
ir fjölmiðlar hafa birt hærri tölur, eða
milli tuttugu og þrjátíu.
Fólk fjölmennti Á minningarathöfn vegna mannskæðra hryðjuverka hægri öfgamanns í Noregi.
Fjöldi fólks kom saman við Tjörnina í Reykjavík:
Fjölmenn minningarathöfn