Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Blaðsíða 14
14 | Fréttir 25. júlí 2011 Mánudagur
„Ég eins og allir Íslending-
ar er sleginn djúpum harmi
yfir þessum skelfilega atburði
sem er af slíkri stærðargráðu
að menn eru ekki ennþá bún-
ir að taka þetta inn,“ segir Öss-
ur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra um hryðjuverkin í
Noregi. „Norðmenn eru okk-
ar nánasta frændþjóð og það
gerir það örugglega að verkum
að Íslendingar eru enn slegn-
ari fyrir vikið. Þeir hafa alltaf
staðið þétt við bakið á okkur og
okkar skylda að gera það núna,
þó ekki sé með öðru en að sýna
þeim okkar dýpstu samhygð.“
Norðurlönd sameinast
Aðspurður hver viðbrögð ís-
lenskra stjórnvalda við þess-
um atburðum séu segir Öss-
ur: „Ráðherrarnir hafa verið í
miklu sambandi sín á milli frá
því að þessi atburður gerðist.
Forsætisráðherrann hefur ver-
ið í sambandi við mig, innan-
ríkisráðherra og fjármálaráð-
herra. Ég hef heyrt tvisvar á
dag í Ögmundi innanríkisráð-
herra og ég veit að menn hafa
líka rætt við þau yfirvöld hér á
landi sem sjá um viðbúnað –
ríkislögreglustjóra.“
Aðspurður hvaða áhrif
hann telji voðaverkin hafa
á Norðurlöndum segir Öss-
ur: „Það er of snemmt að fara
að draga djúpar ályktanir
ennþá þegar allir eru slegnir
og norska þjóðin harmi lostin.
Það má að minnsta kosti segja
að það skipti máli að menn hér
á landi eins og annars staðar
reyni að vinna að því að út-
rýma fordómum og ala á um-
burðarlyndi. Þá skiptir miklu
máli að reyna að útrýma þeim
neikvæðu tilfinningum sem
sumir virðast bera til fólks af
erlendum uppruna eða með
trúarskoðanir sem eru fram-
andi okkur. Ég ímynda mér að
það sé eitt af því sem að Norð-
urlöndin öll munu sameinast
um í sínum löndum.
Má ekki draga úr um-
burðarlyndi
Össur segir erfitt að hafa hend-
ur í hári manna sem skipu-
leggja hryðjuverk af slíkri
nákvæmni og með svo mik-
illi leynd. „Ef það er rétt sem
margt bendir til að hryðju-
verkamaðurinn hafi undirbú-
ið þetta með sjálfum sér í tvö
ár og forðast að hafa samband
við aðra, þá er það skólabókar-
dæmi úr hryðjuverkafræðum
um menn sem mjög erfitt er að
hafa upp á áður en þeir fremja
glæpinn.“
Hann segir ljóst að maður-
inn hafi með aðgerðum sín-
um ætlað sér að knýja norsk
stjórnvöld til þess að draga
úr umburðarlyndi sínu. „Þeir
sem fremja svona glæp og lýsa
því yfir að það sé gert til þess
að mótmæla tilteknum hópi
manna sem koma úr öðrum
löndum eru að reyna að knýja
stjórnvöld til þess að draga
úr umburðarlyndi sínu gagn-
vart viðkomandi hópi. Ekkert
samfélag má láta neyða sig eða
knýja til aðgerða vegna glæpa
eða hryðjuverka.“
jonbjarki@dv.is
n Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sleginn djúpum harmi
Reynum að útrýma fordómum
Harmi sleginn Össur segir
of snemmt að álykta hvaða
áhrif þetta muni hafa á
Norðurlöndin.
hann sprengdi þann 13. júní á
afskekktum stað. Hann skrifaði
í dagbók sína: „BÚM! Spreng-
ingin heppnaðist!!!:) Ég var
fljótur að aka í burtu til að
sleppa við athygli þeirra sem
bjuggu nálægt. Ég kom þó aft-
ur nokkrum tímum síðar til að
skoða holuna og hvort báð-
ir hlutar sprengjunnar hefðu
sprungið.“
Síðustu dagarnir fyrir
voðaverkin
Þann 2. júlí gróf Breivik upp
kisturnar sem höfðu að geyma
lögreglubúninginn og skot-
vopnin. Hann lagði lokahönd
á áætlanir sínar, en þær auð-
kenndi hann sem áætlun A og
áætlun B. Hann notaðist við
Garmin GPS-staðsetningar-
tæki til að finna bestu leiðina
frá miðborg Osló til Tyrifjarðar
þar sem hann gat tekið ferjuna
til Úteyjar. Breivik fylgdist vel
með ungliðahreyfingu Verka-
mannaflokksins en hann vissi
meðal annars að til stóð að Gro
Harlem Brundtland, fyrrver-
andi forsætisráðherra, kæmi
til með að ávarpa sumarbúð-
irnar um svipað leyti og hann
lét til skarar skríða. Brundtland
hafði einmitt ávarpað sam-
komuna á fimmtudag, daginn
áður en Breivik framdi fjölda-
morðin.
Stöndum saman
„Ef einn maður getur sýnt svo
mikið hatur, hugsið ykkur alla
ástina sem við getum sýnt –
er við stöndum saman.“ Þetta
sagði Jens Stoltenberg, for-
sætisráðherra Noregs, í minn-
ingarathöfn í dómkirkjunni í
Osló á sunnudag. Þarna vitn-
aði Stoltenberg í orð ungrar
stúlku sem var ein þeirra sem
komst lífs af í einum hræði-
legustu fjöldamorðum síðari
tíma. Þegar þetta er skrifað
er ljóst að 93 hafa fallið fyrir
hendi Anders Behring Breivik,
32 ára Norðmanns.
Sprengingin
Breivik byrjaði á því að sprengja
kröftuga sprengju sem hann
hafði búið til úr miklu magni
af áburði, en sprengjan sprakk
í bílakjallara við Regjerings-
kvartalet – sem er fjöldi bygg-
inga sem hýsa átta ráðuneyti
auk þess sem bygging Hæsta-
réttar er í næsta nágrenni sem
og skrifstofa dagblaðsins Ver-
dens gang. Ekki færri en sjö
manns féllu í sprengjuárásun-
um en talið er að fórnarlömb-
in kunni að vera fleiri þar sem
ekki hefur tekist að leita að
fólki þar sem eyðileggingin var
sem mest. Að minnsta kosti 30
eru slasaðir. Sprengjan sprakk
klukkan 15.22 að staðartíma og
voru fyrstu lögreglu- og sjúkra-
bílar mættir nokkrum mínút-
um síðar.
Breivik bjó sprengjuna til
úr áburði en í maí á þessu ári
hafði hann fest kaup á sex
tonnum af áburði. Hann hafði
flust búferlum frá Osló til smá-
þorpsins Rena í Heiðmörk fyrir
nokkrum mánuðum en þar var
staðsett fyrirtækið Breivik Ge-
ofarm, sem átti opinberlega að
stunda grænmetisrækt. Breivik
stofnaði fyrirtækið fyrir tveim-
ur árum en fluttist ekki til Rena
fyrr en í apríl eða maí á þessu
ári. Ljóst er að grænmetisbú-
skapurinn mun aðeins hafa
verið yfirvarp, Breivik hélt fyr-
irtækinu aðeins úti svo hann
gæti orðið sér úti um mikið
magn af áburði – án þess að yf-
irvöld veittu því nokkra athygli.
Ferðin til Úteyjar
Breivik mun hafa fylgst með
sprengingunni úr öruggri fjar-
lægð en síðan lagði hann af stað
til Úteyjar, eyju sem er stað-
sett í Tyrifirði – fimmta stærsta
stöðuvatni Noregs. Vatnið er
í um 40 kílómetra fjarlægð frá
Osló. Á Útey hefur um árabil
verið haldið sumarnámskeið
fyrir meðlimi ungliðahreyf-
ingar Verkamannaflokksins.
Námskeiðið hefur um ára-
bil skipað sérstakan sess hjá
Verkamannaflokknum, Jens
Stoltenberg hefur til að mynda
verið viðstaddur á námskeið-
inu síðan árið 1982.
Breivik tók ferjuna til Út-
„Maður kom. „Ég er frá lögreglunni.“ Ég
lá enn kyrr. Einhver hrópaði að hann
yrði að sanna það. Ég man ekki alveg hvað
hann sagði, en morðinginn byrjaði að skjóta.
Hann hlóð byssuna. Skaut meira. Hann skaut
þá sem voru í kringum mig. Ég lá áfram kyrr.
Ég hugsaði: „Nú er þetta búið. Hann er hérna.
Hann tekur mig. Nú dey ég.
Prableen Kaur
Óbærileg sorg Norðmenn eru
allir sem einn harmi slegnir.