Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Side 17
Neytendur | 17Mánudagur 25. júlí 2011
FYRIRFERÐALÍTIÐ. UMHVERFISVÆNT. NÝTÍSKULEGT.
PCX
verð kr. 629.000
komdu í heimsókn og skoðaðu úrval aukahluta, kynntu þér lánakjör
og sérkjör í ökukennslu fyrir nýja eigendur honda PCX.
úr hljóðlátari og umhverfisvænni virkni vélarinnar til laufléttrar meðhöndlunar
og nútíma ímynd hjólsins, þá er PCX bæði hagnýtt, snöggt og skemmtilegt
að aka, með mjúkri og hljóðlátri 125 rúmsentimetra vél. létt og lipurt en
samt furðulega aflmikið, skilar hjólið góðri hröðun – alveg fullkomið til að
halda í við mikla umferð. Eldsneytiseyðslan kemur einnig á óvart
– aðeins 2,2L/100km, þökk sé nýjum hægagangsrofa með start/stop
tækni sem drepur sjálfkrafa á vélinni eftir þrjár sekúndur í lausagangi.
um leið og hjólinu er gefið inn, fer það síðan sjálfkrafa í gang aftur. allt er
þetta til viðbótar við mjúka virkni hjólsins sem og örugga og afslappaða
setu, þökk sé lítilli sætishæð og langri og rúmgóðri fóthvílu.
TÆKNIUPPLÝSINGAR
Vél: vatnskæld fjórgengisvél, 2ja ventla sohC
Slagrými: 124.9 cm³
Hámarks kraftur: 11.33 hö / 8.000 mín-¹
Eldsneytiseyðsla: 2,2l/100km
Eigin þyngd: 124.4 kg (f: 52.2 kg; a: 72.2 kg) CBS EURO 3
V-MATICPGM FI
Pearl himalayas White asteroid Black metallic seal silver
Vatnagörðum 24 - 26 • Reykjavík • Sími 520 1100 • www.bernhard.iswww.honda.is
2,2 L /100k
m
Blandaður akstur
T
ími ferðalaga er í hámarki
þessar vikurnar og fjölmarg-
ir sem ferðast um landið. Á
slíkum ferðalögum er bíll-
inn oftast meira hlaðinn en
venjulega og vegir landsins misgóðir.
Álagið er þannig meira en við dagleg-
an akstur innan bæjarmarka. Mikil-
vægt er því að fara yfir ástand bílsins
áður en lagt er af stað í ferðalag en
það getur einnig sparað töluverð-
an pening ef bíllinn er í sem bestu
ásigkomulagi.
Á heimasíðu Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda er farið yfir þau atriði
sem þarf að athuga og bent á að ef við-
gerða sé þörf þá þurfi að gera ráðstaf-
anir tímanlega. Oft geti tekið daga eða
vikur að fá tíma á bifreiðaverkstæði
og tafir geti orðið enn meiri ef bíða
þarf eftir varahlutum. Bíleigendur
geta farið yfir ástand bílsins að hluta
sjálfir en hemla og annan öryggisbún-
að á að láta fagmenn athuga. Hér eru
nokkur atriði sem ferðalangar skulu
hafa í huga áður en lagt er af stað.
Dekkin í lagi?
Hjólbarðar verða að vera í lagi og
munsturdýpt má ekki vera minni en
1,6 mm. Ef framundan er langt ferða-
lag ætti jafnvel að miða við 2–3 mm
munsturdýpt til að mæta hjólbarðas-
liti á ferðalaginu. Álag og slit á hjól-
börðum eykst eftir þyngd farþega og
farangurs. Mikilvægt er að kanna loft-
þrýsting hjólbarða og athuga ástand
varahjólbarða. Loftþrýsting þarf að
auka ef bíllinn er mikið hlaðinn.
Varasamir demparar?
Höggdeyfar, eða demparar, gegna
mikilvægu hlutverki og hafa áhrif á
aksturseiginleika bifreiðarinnar. Bif-
reiðaeigendur geta framkvæmt ein-
falda athugun á ástandi höggdeyfa en
þá skal byrjað á einu horni bifreiðar-
innar og þrýst niður þannig að hann
hreyfist upp og niður. Ef bifreiðin
dúar meira en einu sinni upp og einu
sinni niður getur það verið vísbend-
ing um lélegan höggdeyfi. Þegar skipt
er um höggdeyfi er ráðlagt að skipta
um báða á sama öxli (báða fram- eða
afturhöggdeyfa).
Athugið perur
Ljósabúnað verður að athuga og ef
ljósapera fer þá er ráðlagt að skipta
einnig út samsvarandi peru á hinni
hliðinni. Auka perur ættu alltaf að
vera til staðar í bílnum.
Verkfæri og varahlutir
Yfirfarið verkfærasett bifreiðar-
innar og gott er að smyrja tjakk-
inn og jafnvel fleiri verkfæri. Eftir-
farandi verkfæri er ráðlagt að hafa í
bílnum: Felgulykil, skiptilykil, átaks-
stöng, kertalykil, skrúfjárn, stjörnu-
skrúfjárn, bittöng, loftþrýstimæli og
vasaljós. Auk ljósapera er gott að
hafa algengustu varahluti, svo sem
viftureim, kerti, öryggi, þurrkublöð,
einangrunarband, olíu og frostlög.
Í bílnum á alltaf að vera viðvörun-
arþríhyrningur, sjúkrakassi, dráttar-
tóg og bensínbrúsi.
Nægur kælivökvi?
Kælikerfi vélarinnar gegnir mikilvægu
hlutverki og áður en haldið er af stað í
ferð verður að ganga úr skugga um að
nægur kælivökvi sé á kerfinu. Ef fylla
þarf á er ráðlagt að blanda vatni og
frostlegi í jöfnum hlutföllum saman.
Frostlög á einnig að nota á sumrin því
þá ver hann kælikerfið gegn ryði.
Hugið að rafgeyminum
Látið athuga hleðsluhæfi rafgeymis,
til dæmis hjá rafgeymaþjónustu og at-
huga þarf hvort nægilegt vatn sé á raf-
geyminum. Gott er að hreinsa póla og
leiðslur með fínum sandpappír eða
vírbursta.
Ástand viftureimar
Kannið ástand viftureimarinnar en
hún þarf að vera hæfilega strekkt, ekki
þó meir en svo að hægt sé að sveigja
hana til um um það bil 1 sentímetra
þar sem hún leikur laus.
Smurkerfi, kerti og fleira
Ráðlegt er að skipta um olíu á hreyfli
og olíusíu áður en lagt er af stað í
langferð.
n Bíllinn þarf að vera í toppstandi áður en haldið er í ferðalag n Mikilvægt er að kanna ástand bílsins
n Bíleigendur geta sjálfir farið yfir ástand bílsins að hluta til, annað þurfa fagmenn að skoða
Komdu bílnum í
stand fyrir ferðina
Þetta getum við gert sjálf
n Kannað ástand hjólbarða og
hjólbarðaþrýsting
n Yfirfarið ljósabúnað
n Athugað kælivökva
n Kannað ástand og stillingu
viftureimar
n Athugað vatnsstöðu í rafgeymi
n Hreinsað geymasambönd
n Smurt hurðalamir o.fl.
n Margir geta skipt um olíu, olíusíu,
loftsíu og kerti sjálfir
n Kannað ástand höggdeyfa
Þetta á fagmaðurinn að gera
n Kanna ástand hemlabúnaðar
n Athuga tengsli (kúplingu)
n Vélarstilla
n Athuga ástand bensínleiðsla
n Kanna stýrisbúnað
n Skipta um olíu og síur
n Kanna ástand útblásturskerfis
Hvað þarf að gera?
Álag á bílnum Bílum er hættara við því að bila þegar þeim er ekið á slæmum vegum, sér í
lagi ef þeir eru þunglestaðir.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is