Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Blaðsíða 18
18 | Umræða 25. júlí 2011 Mánudagur
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Hið algjöra óeðli
Leiðari Reynir Traustason ritstjóri skrifar
Bókstaflega
Auðmaður í Afríku
n Auðmaðurinn Róbert Melax, sem
tiltölulega lítið hefur verið fjallað um
eftir hrun, elur nú manninn í Suður-
Afríku. Róbert er
lyfjafræðingur
að mennt og var
annar af stofn-
endum Lyfju árið
1996. Róbert hef-
ur verið nokkuð
umsvifamikill
fjárfestir á liðn-
um árum og átti
meðal annars hlutabréf í Glitni og
fjárfestingabankanum Saga Capital
fyrir hrun. Róbert var sömuleiðis um
tíma í stjórn Saga Capital þar sem
hann átti rúmlega 10 prósenta hlut
þegar mest lét.
Geir í spænskri mynd
n Spænskir sjónvarpsmenn frá ríkis-
rekinni sjónvarpsstöð í Katalóníu
voru staddir hér á landi í síðustu viku
við upptökur á
heimildamynd
um Ísland sem
sýnd verður þar
í landi í haust.
Heimildamyndin
á að fjalla um ís-
lenska efnahags-
hrunið og endur-
reisnina. Meðal
viðtala sem Spánverjarnir tóku upp
hér á landi var viðtal við Geir H. Ha-
arde, fyrrverandi forsætisráðherra,
en þar var Geir meðal annars spurð-
ur út í íslenska efnahagshrunið og
aðkomu sína að því. Myndin verður
sýnd á Spáni í haust.
Jón stóri var súla
n Skólafélögum innheimtumanns-
ins Jóns Hallgrímssonar, eða Jóns
stóra eins og hann er kallaður, úr
Breiðholtinu brá heldur betur í brún
þegar myndir fóru að birtast af hon-
um í fjölmiðlum fyrir nokkru. Jón
var orðinn mjög breiður og mikill á
þessum myndum – eiginlega hel-
massaður eins og sagt er. Ástæðan
fyrir undrun þeirra var sú að Jón
var langt frá því að vera mikill um
sig um þegar hann var yngri. Þvert
á móti þótti hann vera renglulegur
sláni og gekk því undir viðurnefninu
Jón súla hjá þeim sem til þekktu.
Ritsóðinn Friðbjörn
n Friðbjörn Orri Ketilsson, ritstjóri amx.
is, heldur því fram að Össur Skarp-
héðinsson utanríkisráðherra „þykist“
hafa samúð með
Norðmönnum
vegna fjölda-
morðanna.
Kvittur hefur
verið uppi um að
Friðbjörn, sem
er tengdur Guð-
björgu Matthías-
dóttur, athafna-
konu í Vestmannaeyjum, hafi fengið
fjárstyrki þaðan eða frá LÍÚ, samtök-
um útgerðarmanna. Grímur Atlason,
athafnamaður og fyrrverandi bæjar-
stjóri, hvetur til þess að enginn skipti
við Friðbjörn eða fyrirtæki hans. „
...ég mun ekki versla við computer.
is eða aðra sem þar auglýsa. Frið-
björn Orri Ketilsson er ábyrgðarmað-
ur þessa auma miðils. Hann ætti að
skammast sín – hann er ritsóði!,“ segir
Grímur.
Sandkorn
S
varthöfði er einlægur aðdá-
andi Björns Bjarnasonar, fyrr-
verandi dómsmálaráðherra.
Það er skoðun Svarthöfða og
fjölda skoðanabræðra að alltof brátt
hafi orðið um Björn í stjórnmál-
um. Björn varð fórnarlamb samsær-
is í eigin flokki þegar götustrákur úr
Borgarnesi, Guðlaugur Þór Þórðar-
son, náði samstöðu með Jóhann-
esi Jónssyni í Bónus um aðförina.
Og það tókst að fella þennan mikla
sómamann sem var fæddur með silf-
urskeið í munni og undirliggjandi
leiðtogahæfileika.
B
jörn var ævinlega talsmaður
aga í samfélaginu.
Skilja mátti á
honum að
eðlilegt væri að
stofna íslensk-
an her til að
berja niður
uppreisnir og
hrinda árás
hryðjuverka-
manna. En
Björn fékk eng-
an hljómgrunn.
Hugmyndir hans
um her voru and-
vana fæddar. Afleið-
ingin var sú að framið
var eins konar valda-
rán á Íslandi. Bús-
áhaldabyltingin fékk
að ganga fram án þess
að neinn fengi rönd
við reist. Örfáar löggur
með hjálma voru nán-
ast eins og leikmunir. Geir
Haarde forsætisráð- herra
og leiðtogi Björns var felldur með
þeim afleiðingum að stjórnmálaferli
Björns lauk. Síðan hefur hann eytt
tíma sínum í að skrifa um Baugs-
mennina sem felldu Ísland og hann
sjálfan.
B
jörn hefur skilið eftir sig djúp
spor í íslenskri stjórnmála-
sögu. Hann tryggði flokkshest-
um dómarasæti og gætti þess
að sjálfstæðismenn væru við yfir-
stjórn lögreglunnar. Með þessu hefur
honum tekist að tryggja að sannkall-
að réttlæti nái fram að ganga. Eitt-
hvað fór þó úrskeiðis þegar Hæsti-
réttur dæmdi vinkonu hans, Jónínu
Benediktsdóttur, í óhag og samþykkti
að hluti tölvupósta hennar hefði
mátt koma fyrir almenningssjónir í
dagblaði sem var í eigu Baugsmanna.
En, Guði sé lof, þá birtust ekki opin-
berlega rafpóstar sem gengu á milli
Jónínu og Björns þegar ráðherrann
var að kynna sér ýmis mál á hennar
vegum í framhaldi funda þeirra þar
sem lagt var á ráðin um siðvæðingu
landsins.
S
varthöfði vill að Björn snúi
aftur í stjórnmálin. Það er
óbærilegt fyrir alla rétt-
hugsandi menn að dóm-
arar með 1. einkunn en haldn-
ir alvarlegri vinstrivillu verði
skipaðir. Augljóst er að
þá mun okkur hnigna
hratt. Þá er hætta á því
að sanngjarnir þjón-
ar réttvísinnar innan
lögreglunnar hverfi af vettvangi lög-
reglunnar. Í stað hins góða og upp-
lýsandi fasisma myndi sósalismi
andskotans taka við. Björn verður
að koma aftur og taka Jónínu Ben og
Styrmi Gunnarsson með sér. Þá fyrst
á Ísland von. Snúðu aftur, Björn. Eða
með öðrum orðum: Bjössi, come
back.
E
inhver viðbjóðslegasti atburð-
ur í seinni tíma sögu Norður-
landanna átti sér stað á föstu-
dag þegar öfgamaðurinn
Anders Behring Breivik myrti
með köldu blóði um eða yfir 100
manns í Noregi. Flest fórnarlamb-
anna voru ungt fólk sem hefði átt að
eiga langt líf fyrir höndum. En sökum
þess að þau aðhylltust stefnu norska
Verkamannaflokksins féllu þau fyrir
hendi morðingja sem telur sig geta
fært rök fyrir gjörðum sínum sem
hann viðurkennir að séu grimmdar-
leg en „samt sem áður nauðsynleg“,
að sögn Geirs Lippestad, verjanda
þessa versta fjöldamorðingja í sögu
Noregs.
Ef marka má fréttir af þankagangi
Breivik hafði hann um árabil ræktað
með sér hatur á leiðtogum og félögum
í norska Verkamannaflokknum. Hon-
um er lýst sem öfgamanni til hægri.
Hatrið mun eiga rót sína í því að Brei-
vik telji að flokkurinn hafi sýnt sjónar-
miðum múslima skilning. Þetta varð
svo á endanum til þess að vesalingur-
inn lét til skarar skríða með sprengj-
um og sjálfvirkum vopnum gegn varn-
arlausu fólki. Og hann hafði ekki einu
sinni kjark til þess að svipta sig lífi en
vill þess í stað fá að réttlæta morðin fyr-
ir umheiminum.
Fjöldamorðin eru eins nærri okkur
Íslendingum og hugsast getur. Norð-
menn eru okkar nánasta vinaþjóð og
saga þjóðanna hefur um aldir tvinnast
saman. Alltaf þegar á hólminn er komið
hafa þessir frændur okkar sýnt samhug
í verki. Það nöturlega er að við héldum
að svona atburðir gætu ekki gerst í okk-
ar menningarheimi. Nú blasir annað
við þótt varasamt sé að draga af þeim of
víðtækar ályktanir. Þó er nauðsynlegt
fyrir þjóðina að gaumgæfa hvort hatur
á borð við þetta sé að búa um sig í sam-
félaginu. Ákveðin öfl ala stöðugt á hatri
gegn réttkjörnum stjórnvöldum í land-
inu. Þau eru studd af sterkum fjármála-
öflum í samfélaginu. Með því ósmekk-
legra sem sést hefur frá þessu öfgafólki
er árás á íslenska utanríkisráðherrann,
Össur Skarphéðinsson, vegna samúð-
arkveðju hans til Norðmanna. „Össur
sendi samúðarkveðjur til Noregs og
þóttist harmi sleginn. En ekki hvað eftir
aðra eins árás sem kostaði fjölda fólks
lífið og er með ógeðfelldari atburðum í
sögu Norðurlanda. En bíðum við.
Er þetta ekki sami Össur og sat ný-
verið fundi með leiðtogum Hamas og
Fatah, hryðjuverkasamtaka sem herja
á Ísraelsríki, og lýsti yfir fullum stuðn-
ingi við þá fyrir hönd íslensku þjóð-
arinnar?“ Þessi ummæli er að finna
á vefnum amx.is sem haldið er úti af
róttækum hægrimönnum. Þarna er
hiklaust sagt að ráðherrann þykist
hafa samúð með Norðmönnum og sé
stuðningsmaður hryðjuverkasamtaka.
Leynipennar skrifa á vefinn en skráður
ábyrgðarmaður er Friðbjörn Orri Ket-
ilsson. Þessi málflutningur er viðbjóðs-
legur. Fjöldamorðin í Noregi verða ekki
skýrð eða túlkuð út frá stjórnmálaskoð-
unum. Þau eru að öllum líkindum verk
geðsjúklings sem ætlar að tengja þau
stjórnmálum og réttlæta þannig níð-
ingsverk sín.
Fjöldamorðin í Noregi voru framin
af manni sem er haldinn hinu algjöra
óeðli. Hann réðst gegn sakleysingj-
um og myrti. Breivik er knúinn áfram
af óstöðvandi hatri sem hann hefur
þróað með sér í samfélagi sem talið
var að mestu heilbrigt. Öfgarnar lágu
til grundvallar fjöldamorðinu. Á sama
tíma og við stöndum þétt með Norð-
mönnum í sorg þeirra hljótum við að
reyna af fremsta megni að uppræta ill-
gresi öfganna. Þar skiptir engu hvort
óeðlið dafnar til vinstri eða hægri. Megi
fjöldamorðin í Noregi verða einsdæmi
í sögunni.
Snúðu aftur, Björn
Svarthöfði
„Ég vil reyna
að vera í
felum þar til
ég verð frjáls
ferða minna.“
n Mouhamde Lo frá
Máritaníu sem hefur farið huldu höfði hér
á landi síðan 8. júlí þegar lögreglumenn
hugðust sækja hann á gistiheimilið Fit og
senda til Noregs. – DV
„Ég trúi á sak-
leysi hans.“
n Hafþór Sævarsson,
sonur Sævars Ciesielski,
um föður sinn. – DV
„Þegar ég var ungur
maður þá vann ég nokkur
ár á Kleppi þar
sem ég kynnt-
ist mörgum
vænisjúkum
manneskjum
og stundum á
Útvarpi Sögu fannst mér
ég vera kominn á gamla
staðinn aftur.“
n Haukur Holm fréttamaður um tímann
sem hann starfaði á Útvarpi Sögu. – DV
„Hann var baldinn
þá eins og í dag.“
n Fréttamaðurinn Óli
Tynes um bróður sinn
Ingva Hrafn jónsson. – DV
Er druslugangan
komin til að vera?
„Já, svo sannarlega. Eins
lengi og þörf verður á
henni, þá er hún komin
til að vera,“ segir Anna
Jóna Heimisdóttir, ein
þeirra sem skipulagði
Druslugönguna
sem fram fór á
laugardag.
Fjölmargir
gengu gegn
kynferðis-
legu ofbeldi.
Spurningin
„Öfgarnar lágu til
grundvallar fjölda-
morðinu.