Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Side 20
20 | Fókus 25. júlí 2011 Mánudagur S veitarfélagið Skaga- strönd stendur fyrir yfir- litssýningu á verkum Sveinbjörns H. Blöndal í íþróttahúsinu á Skagaströnd. Á sýningunni má sjá hluta af verkum Sveinbjörns en hann bjó stóran hluta ævi sinnar á Skagaströnd. Sýningin var opnuð síðastliðinn laugar- dag og mun hún standa til 14. ágúst næstkomandi. Á sýningunni eru fimmtíu og fjögur málverk auk nokk- urra teikninga. Myndirnar eru valdar með það að mark- miði að sýna þróun hans sem listamanns og mismunandi litanotkun og efnistök. Sýn- ingin var sett upp í samstarfi við fjölskyldu Sveinbjörns en fjölmargir einstaklingar, fyrir- tæki, sveitarfélög og stofnanir lánuðu myndir á sýninguna. Sveinbjörn fæddist á Akur- eyri 11. október 1932 en rétt innan við tvítugt hélt hann til Reykjavíkur þar sem hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Það- an brautskráðist hann af list- málunardeild. Ungur að aldri hóf hann feril sinn með því að teikna skopmyndir í dagblöð. Frístundir notaði Sveinbjörn til að mála og teikna en hélt lengi vel verkum sínum lítt á lofti þótt þeir sem þekktu hann best fengju að sjá og njóta mál- verka og skopmynda. Fyrirmyndir í málverkin voru oftast sóttar í íslenska náttúru þar sem fagurker- inn beitti litatækni sinni til að kalla fram tilbrigði nátt- úrunnar, birtuna og formin. Sveinbjörn hélt sjálfur nokkr- ar einkasýningar auk þess að taka þátt samsýningum, bæði hér á landi og erlendis. Verk Sveinbjörns á Skagaströnd n Yfirlitssýning á verkum Sveinbjörns H. Blöndal Sótti innblástur víða Sveinbjörn sótti sér innblástur víða eins og sjá má á myndum hans. Ítalska sönghefðin Valdís G. Gregory sópran- söngkona og Guðríður St. Sig- urðardóttir píanóleikari flytja ítalska söngdagskrá á næstu sumartónleikum Listasafns Sigurjóns Ólafssonar, þriðju- dagskvöldið 26. júlí klukk- an 20.30. Efnisskrá þeirra er ítalska sönghefðin, byggð upp í kringum bel canto-tón- skáldin Gioachino Rossini, Vincenzo Bellini og Gaetano Donizetti. S öngkonan Björk Guð- mundsdóttir bætti á föstu- dag við tónleikum sem fram fara 31. október og 3. nóvember. Miðar á áður auglýsta tónleika seldust upp á ótrúlega skömmum tíma en alls höfðu verið planaðir sex tónleikar áður en síðustu tveimur var bætt við á föstudag. Miðasala á tónleikana var opnuð á hádegi á föstudag og voru aðeins 700 miðar laus- ir á hvora tónleika. Björk hefur því náð að selja í kringum 5.600 miða á tónleikana en miðað við miðaverð þýðir það að miðar hafi selst fyrir meira en 60 millj- ónir króna. Það seldist upp á nokkrum klukkutímum á fyrstu sex tónleikana sem skipulagðir höfðu verið og var því tvennum bætt við. Tónleikarnir fara fram í Silf- urbergi í tónlistar- og ráðstefnu- húsinu Hörpu en Björk hefur aldrei áður kom fram í húsinu. Hún hefur einnig lítið komið fram hér á landi að undanförnu en tónleikarnir verða haldnir í kringum Iceland Airwaves-tón- listarhátíðina. Björk vekur alls staðar athygli þar sem hún spil- ar en hún hélt nýverið tónleika í Manchester í Bretlandi á tón- leikahátíðinni Manchester Inter- national Festival, en þar var fað- ir hennar á meðal tónleikagesta. Spilaði hún einmitt átta sinnum fyrir fullu húsi þar líkt og hún ætl- ar að gera hér í lok október. Til marks um frægð Bjark- ar var henni boðið að taka þátt í bandarísku unglingasjón- varpsþáttunum Glee. Hún tók þó ekki vel í boð handritshöf- unda þáttanna og sagði einfald- lega nei takk. „Hún las handritið en fannst það ekki passa laginu. Ég sagði við hana að það væri í góðu lagi og hún sagði okkur að hafa samband við sig seinna með hugsanlegt samstarf í huga,“ sagði Ryan Murphy við Holly- wood Reporter. n Kemur átta sinnum fram í Hörpu Þ etta er mjög spenn- andi,“ segir Hilm- ar Björnsson, sjón- varpsstjóri Skjás Golfs sem nú hefur verið ráðinn dagskrárstjóri Skjás eins. Hilmar er guð- faðir íþróttastöðvarinnar Stöðvar 2 Sports [áður Sýn] og stýrði henni við góðan orðstír áður en hann færði sig yfir á Skjáinn. Hann fær- ir sig nú frá íþróttunum yfir í almenna sjónvarpsdagskrá. „Ég hef mikinn metnað fyrir sjónvarpi og hef alltaf unnið í því. Þetta er áskorun sem ég get ekki skorast und- an. Ég hef alltaf unnið við íþróttatengt sjónvarpsefni en hef auðvitað alltaf fylgst með góðu sjónvarpi, hvort sem það eru íþróttir eða eitt- hvað annað. Þetta snýst nátt- úrlega bara um að hafa gott efni á Skjánum,“ segir Hilm- ar sem mun líklega kveðja Skjá Golf í framhaldi af nýja starfinu. En þó ekki strax. „Það er búið að leggja mikla vinnu í að koma stöð- inni í loftið en þar erum við að ljúka fyrsta ári. Það er búið að vinna mikla undir- búningsvinnu sem þarf ekki að fara í aftur,“ segir Hilmar sem ætlar ekki að breyta Skjá einum í íþróttastöð. „Nei, það eru aðrir í því og sinna þeim markaði mjög vel. Skjár einn er ung stöð á áskriftarmarkaðinum en með dyggan áskrifenda- kjarna upp á 25.000 manns sem er mjög sterkt. Við vit- um hvað okkar markhóp- ur vill og ætlum að stækka þennan hóp enn frekar,“ seg- ir hann. Hilmar segist vera með ákveðnar skoðanir á dag- skránni en getur ekki farið nánar út í það að svo stöddu. „Ég er í raun ekki tekinn við þannig að ég vil ekkert gefa það út. Ég þarf að koma mér inn í fjármálin og hvaða efni við erum skuldbundin til að sýna. Haustið er klárt sem og veturinn þannig að ég þarf bara að skoða á næstu vikum hvað hægt er að gera,“ segir Hilmar Björnsson, nýráðinn dagskrárstjóri Skjás eins. n Hilmar Björnsson ráðinn dagskrárstjóri Skjás eins n Spennandi verkefni sem hann vildi ekki skorast undan n Ætlar ekki að breyta Skjá einum í íþróttasjónvarp Nýtt starf Hilmar færir sig úr sportinu yfir í almenna dagskrárgerð. MYNd EggErt JóHaNNESSoN Björk bætti við tónleikum Vinsæl heima og erlendis Björk er vinsæl nær hvar sem hún kemur en miðar á tónleika með henni hér á landi hafa selst fyrir rúmar 60 milljónir króna. „Hef alltaf fylgst með góðu sjónvarpi“ Yoko Ono á Airwaves Yoko Ono mun koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves en tilkynnt var um það á miðvikudag. Á sama tíma var tilkynnt að erlendu hljómsveitirnar Owen Pal- lett, Glasser, Zun Zun Egui og Other Lives myndu koma fram á tónlistarhátíðinni sem er án efa ein sú stærsta á Ís- landi. Hátíðin fer fram dagana 12.–16. október næstkomandi en þar munu margar fleiri ís- lenskar og erlendar hljóm- sveitir koma fram. Hátíðin verður að vanda á nokkrum mismunandi stöðum í bænum en í fyrsta sinn verður hátíðin haldin í Hörpu. Meira en 20 þúsund eintök seld Helgi Björns og Reiðmenn vind- anna hafa selt meira en 20 þús- und eintök af plötunum sínum þremur. Síðasta plata kom út í byrjun mánaðarins og hefur hún selst vel, að því er fram kemur í tilkynningu frá Senu, útgefanda plötunnar. Fyrri tvær plöturnar komu út árið 2008 og 2010 og voru þær báðar ásamt nýju plöt- unni meðal 20 mest seldu platna landsins í síðustu viku sam- kvæmt Tónlistanum. Nýja plat- an, Ég vil fara upp í sveit, trónir á toppi listans, Þú komst í hlaðið 2010 er í sjöunda sæti og Ríðum sem fjandinn er því nítjánda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.