Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Blaðsíða 25
Sport | 25Mánudagur 25. júlí 2011
Þ
etta er einn minn besti
sigur á ferlinum, mér
líður alveg svakalega
vel,“ sagði vægast sagt
hæstánægður Lewis
Hamilton, ökumaður McLaren
í Formúlu 1, á blaðamanna-
fundi eftir að hafa komið fyrst-
ur í mark í Þýskalandskapp-
akstrinum sem eins og alltaf fór
fram á hinni sögufrægu Nür-
burgring-braut. Kappakstur-
inn í Þýskalandi var með þeim
skemmtilegri á árinu en Hamil-
ton háði harða baráttu við Fern-
ando Alonso á Ferrari um sigur-
inn. Úrslitin réðust ekki fyrr en
fimm hringir voru eftir en þá
náði Hamilton að komast fram
úr Alonso er Spánverjinn var
að koma út af þjónustusvæð-
inu en hann fór seinna inn að
skipta yfir á hörðu dekkin sem
er skylda. Á hörðu dekkjunum
landaði Hamilton sínum öðrum
sigri á árinu. Mark Webber á Red
Bull varð þriðji og heimsmeist-
arinn Sebastian Vettel, einnig
á Red Bull, varð fjórði. Þetta er
í fyrsta skipti á árinu sem Vettel
endar ekki í fyrsta eða öðru sæti.
Getum bætt okkur meira
„Það eru allir sigrar sérstakir en
þessi var gríðarlega sætur. Þeg-
ar liðið er búið að vinna svona
mikið í bílnum og allt geng-
ur upp og maður vinnur svona
keppni þá getur maður ekki
annað en glaðst,“ sagði Hamil-
ton eftir sigurinn. Það var kostu-
legt að sjá þá félagana Hamilton
og Alonso eftir sigurinn, þeir
töluðust varla við og höfðu ekki
fyrir því að baða hvorn annan í
kampavíni. Deilur þeirra síðan
þeir voru liðsfélagar eru vægast
sagt geymdar, en ekki gleymdar.
Aðspurður hvor hafi leikið
stærra hlutverk í sigrinum, hann
sjálfur eða bíllinn, svaraði Ha-
milton: „Það vinnur enginn án
bílsins. Ég er líka alltaf að læra
meira inn á hann og hvernig
hann hegðar sér í beygjum. Ég
er að læra meira inn á hvernig
dekkin eyðast því eins og sást
í dag átti ég stundum í vand-
ræðum með dekkin á miðkafla
brautarinnar. En með öllum
þessum litlu breytingum á bíln-
um og tökkunum góðu í stýrinu
getum við gert góða hluti. Við
þurfum bara að nýta þennan
sigur sem hvatningu og halda
áfram að bæta bílinn,“ sagði Ha-
milton.
Frábær úrslit fyrir okkur
„Nei, bensínið skipti engu. Und-
ir lokin náði ég bara ekki Lewis,“
svaraði Fernando Alonso heið-
arlega aðspurður hvort skortur
á bensíni undir lok keppninn-
ar hefði neytt hann til að draga
úr hraða. Svo fór að Alonso gat
ekki klárað heiðurshringinn eft-
ir keppnina og fékk að sitja ofan
á bíl Vettel sem skutlaði honum
í mark. Einstaklega skemmtilegt
atvik. „Þegar ég sá að sigurinn
var úr sögunni reyndi ég bara að
stýra keppninni mér í hag hvað
varðaði annað sætið og hélt
þannig Webber frá mér,“ sagði
Alonso á blaðamannafundinum
en hann er hæstánægður með
framför Ferrari undanfarnar
vikur en Spánverjinn er nú bú-
inn að vera á palli þrjár keppn-
ir í röð.
„Þetta var frábær keppni fyr-
ir okkur og frábær úrslit. Bíll-
inn var flottur í dag þrátt fyrir að
vera aðeins of hægur undir lok-
in. Annað sætið er rosalega gott
í framhaldi af því sem hefur ver-
ið að gerast undanfarið. Ég vann
síðustu keppni og var í öðru sæti
þar áður. Nú er bara að halda
þessu áfram og reyna að bæta
bílinn enn frekar því við finnum
alveg að við erum að gera rétta
hluti,“ sagði Alonso.
Versta keppni Vettels
Heimsmeistarinn Sebastian
Vettel á Red Bull endaði í fjórða
sæti í Þýskalandi á heimavelli en
hingað til hefur hann aldrei ver-
ið neðar en í öðru sæti og unn-
ið sex keppnir nú þegar. Hann
háði magnaða baráttu við Felipe
Massa á Ferrari um fjórða sæt-
ið sem hann á endanum vann
þökk sé enn einum mistökum
Ferrari-liðsins á þjónustusvæð-
inu. Vettel heldur öruggri for-
ystu í stigamótinu en augljóst
er á undanförnum keppnum að
Ferrari í það minnsta, og nú að
því er virðist McLaren, eru búin
að ná hraða Red Bull.
Heimsmeistararnir virðast
hafa sofið á verðinum og þó
þeir hafi öruggt forskot mega
þeir fara að passa sig. Red
Bull-bílarnir voru einfaldlega
ekki nægilega hraðir í Þýska-
landi en það er í fyrsta skipti í
ár sem það hefur verið sagt um
þennan ótrúlega bíl sem virtist
ósigrandi fyrr á árinu. Gríðar-
lega hefur dregið saman á milli
stóru liðanna þriggja og með
núverandi stigagjöf þar sem 25
stig fást fyrir sigur gæti þó örugg
forysta Vettels horfið eins og
dögg fyrir sólu geri Red Bull-
menn ekki ráðstafanir með bíl-
inn.
Vorum ekki nægilega
snöggir
„Ég gerði allt sem ég gat en það
vantaði alltaf eitthvað aðeins
upp á,“ sagði Ástralinn Mark
Webber á Red Bull eftir keppn-
ina en hann hóf leik á ráspól en
þurfti að sætta sig við þriðja sæt-
ið. Hann hefur enn ekki unnið
keppni í ár. „Hægagangur okk-
ar varð til þess að hin liðin áttu
auðvelt með að gera sér grein
fyrir hvaða taktík við myndum
nota. Við verðum að fara að
bæta okkur. Ég er svekktur með
þetta en samt berjast í brjósti
mér blendnar tilfinningar. Ég er
ánægður að hafa komist á pall
en vil samt gera betur,“ sagði
Webber sem er fyrstur til að við-
urkenna að nú þurfi Red Bull að
fara að líta um öxl.
„Það er engin spurning. Í
síðustu þremur keppnum hef-
ur dregið saman með liðun-
um. Það er búið að vinna okk-
ur tvisvar í röð. Við höfum verið
frábærir til þessa og erum efstir
á báðum töflum en við þurfum
að bæta okkur. Í dag vorum við
ekki nægilega snöggir,“ sagði
Mark Webber.
McLaren að
ná Red Bull
n Lewis Hamilton fyrstur í mark í Þýskalandi n Önnur keppnin í röð sem Red Bull vinnur ekki
n „Erum efstir á báðum stigatöflum en þurfum að bæta okkur,“ sagði Mark Webber
Ekki á pall Heimsmeistarinn Vettel var í fyrsta skipti á árinu ekki á
verðlaunapalli. Mynd REutERs
Annar sigurinn á árinu Lewis
Hamilton var vægast sagt ánægður
með sigurinn í Þýskalandi. Mynd REutERs
Fjör Keppnin á Nürbur-
gring var hörkuspennandi
og skemmtileg.
Vill mæta
Mayweather
Breski hnefaleikakappinn Amir
Khan sýndi mátt sinn og megin
gegn reynsluboltanum Zab Ju-
dah þegar kapparnir börðust í
Las Vegas um helgina. Bardag-
inn var stöðvaður eftir fimm
lotur og var Khan ótvíræður
sigurvegari. Með sigrinum sýndi
Khan fram á að hann er einn
allra mest spennandi boxari í
heiminum í dag en eftir sigur-
inn sagði hann: „Það sem allir
mega vita um mig er að ég mun
berjast við hvern sem er. Það hef
ég sannað.“ Næst vill Khan fá
tækifæri til að berjast gegn lík-
lega besta hnefaleikakappa allra
tíma, pund fyrir pund, sjálfan
Floyd Mayweather. Sagði Khan
eftir bardagann gegn Judah að
það gæti gerst innan næstu tólf
mánaða en Mayweather hefur
aldrei tapað bardaga á ferlinum.
Bjóst við
banninu
Mohamed Bin Hammam, fyrr-
verandi forseti asíska knatt-
spyrnusambandsins, sem á dög-
unum var dæmdur í ævilangt
bann frá knattspyrnu segir að
dómur siðanefndar FIFA hafi
ekki komið honum á óvart. „Ég
bjóst við þessu, fólkið er svo
reitt,“ sagði hann. Bin Hammam
var fundinn sekur um að múta
forsvarsmönnum knattspyrnu-
sambanda í karabíska hafinu svo
þeir kysu hann sem forseta FIFA
en hann ætlaði að taka slaginn
gegn Sepp Blatter. Bin Ham-
mam má aldrei hafa afskipti af
knattspyrnu aftur svo lengi sem
hann lifir. „Það er ekkert meira
um þetta að segja,“ sagði Sepp
Blatter aðspurður um dóm siða-
nefndar FIFA.
3.000 manns
hylltu Sneijder
Ítalska knattspyrnuliðið Inter
hélt opna æfingu um helgina,
eitthvað sem sjaldan er gert
hjá félaginu. Yfir 3.000 manns
létu sjá sig og fór mesti kraftur
þeirra í að reyna að halda Hol-
lendingnum Wesley Sneijder
hjá félaginu. Nánast var aðeins
sungið til hans alla æfinguna og
klappaði fólkið honum lof í lófa
við hverja snertingu. Ætlaði svo
allt um koll að keyra þegar hann
skaut boltanum í stöngina tví-
vegis í léttum leik á æfingunni.
Sneijder hefur þrálátlega verið
orðaður við Manchester United
í sumar en illa hefur gengið hjá
liðunum að komast að sam-
komulagi um kaupverð.
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Formúla 1