Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Síða 26
26 | Fólk 25. júlí 2011 Mánudagur
Með miða
á Björk
Almannatengillinn Andrés
Jónson var klárlega einn af
þeim fyrstu sem festu kaup á
miða á aukatónleika Bjarkar
Guðmundsdóttur sem fram
fara 31. október og 3. nóvem-
ber. Uppselt var á fyrri tónleika
Bjarkar og var Andrés ekki bú-
inn að tryggja sér miða. Miða-
salan hófst á aukatónleikana
á föstudag klukkan 12.00 en
Andrés setti færslu inn á Twit-
ter-síðu sína nokkrar mínútur
yfir tólf þar sem hann sagði:
„Var að kaupa miða á Björk.“
Ekki allir
sáttir við
Michelsen
Samkvæmt heimildum DV
eru ekki allir í Michelsen-fjöl-
skyldunni ánægðir með að
Bryndís Gyða Michelsen noti
fjölskyldunafnið. Hún hefur
komið fram undir því nafni
víða, bæði á netinu og í við-
tölum. Skráði sig hún meðal
annars til leiks í Playboy Miss
Social keppninni á Facebook
þar sem hún freistar þess að
komast í bandaríska karla-
tímaritið Playboy og að fá að
halda partí á Playboy-setrinu.
Bryndís hefur hins vegar ekki
enn skráð sig í þjóðskrá sem
Michelsen og heitir hún því
í raun og veru Bryndís Gyða
Grímsdóttir.
Loðinn eins
og Reykjavík
Söngvarinn og leikarinn
Magnús Jónsson deilir ekki
skoðun með flestum Reykvík-
ingum þegar kemur að gras-
slætti í Reykjavík. „Ég vona
að Besti flokkurinn slái aldrei
grasbletti borgarinnar,“ skrifar
hann í Facebook-stöðuupp-
færslu á fimmtudagskvöld
„Við erum perfect match, ég
og Rvk. Loðin og (eru ekki allir
sexseiiii! – Helgi Bjöss),“ bætir
hann svo við en Magnús er án
efa einn loðnasti leikari á Ís-
landi í dag.
M
aría Einarsdóttir,
meðeigandi verslun-
arinnar Arrogant Cat,
afgreiddi á dögunum
bresku stjörnuna Katie Price
í verslun sinni í London. Ka-
tie, sem einnig er þekkt undir
fyrirsætunafninu Jordan, var í
verslunarferð ásamt kærasta
sínum, hinum 25 ára gamla
Leandro Penna frá Argentínu.
Frétt og myndir frá versl-
unarferð Katie birtust á vef-
síðu Daily Mail en þar sást
María sýna fyrirsætunni hin
ýmsu föt. María hefur verið
búsett í London um nokkurt
skeið en hún býr þar ásamt
unnusta sínum, athafna-
manninum Róberti Aroni
Magnússyni.
Katie er gríðarlega þekkt í
Bretlandi og er ein skærasta
stjarna slúðurblaðanna þar
í landi. Það er því um góða
kynningu fyrir Arrogant Cat
að ræða en Katie var með-
al annars kosin móðir árs-
ins í Bretlandi fyrir nokkr-
um árum. Þá var hún með
popparanum Peter André en
stormasömu sambandi þeirra
lauk með látum fyrir tæpum
tveimur árum.
Katie, sem varð fræg sem
nektarfyrirsæta, hefur að
mestu lagt fyrirsætustörfin á
hilluna og einbeitir sér nánast
eingöngu að fata-, snyrtivöru-
og ilmvatnslínum sínum. Þá
er hún að gera nýjan sjón-
varpsþátt um þessar mundir
þar sem hún leitar að ungum
fyrirsætum til að koma á fram-
færi.
Arrogant Cat er nokkuð
vinsæl hjá fræga fólkinu en
búðin komst einnig í frétt-
irnar árið 2009 þegar Beat-
rice prinsessa, dóttir And-
rews Bretaprins, fékk synjun á
kreditkorti sínu.
É
g er pínu aumur en al-
veg heill,“ segir leikar-
inn Jóhannes Haukur
Jóhannesson sem datt
úr kaðli á sýningunni
Hárið í Hörpunni rétt fyrir
helgi. Fallið var um þrír og
hálfur metri. Jóhannes fer
með hlutverk blökkumanns-
ins Huds og kemur inn í sýn-
inguna þegar um tuttugu mín-
útur eru liðnar af sýningunni.
Hann hefur leik uppi á svölum
Silfurbergs-salarins fyrir aftan
áhorfendurna sveiflar sér inn
á sviðið á kaðli.
„Ég syng lag á svölunum
og svo á ég að sveifla mér yfir
miðju sviðsins, aftur til baka
og svo aftur inn á sviðið áður
en ég lendi,“ segir Jóhannes
Haukur. „Ég er búinn að
gera þetta nokkrum sinnum
þannig að ég ætlaði þarna að
spyrna mér langt yfir sviðið en
þá festist kaðllinn í festingum
sem halda uppi öllum ljósum
og hátölurum fyrir ofan svið-
ið. Þar kræktist kaðallinn, við
það kom á hann slinkur og ég
flaug aftur á bak og missi kað-
alinn úr höndunum,“ segir Jó-
hannes sem féll fyrst niður á
kantinn á sviðinu, þaðan datt
hann niður á tröppurnar og
svo niður á gólf.
„Ég man að ég náði alveg
þremur hugsunum í fallinu.
Þetta var voða skrítið,“ segir
hann. „Þegar ég lenti á svið-
inu hugsaði ég að þeta væri
nú ekki gott. Svo þegar ég
lenti í tröppunum hugsaði ég
hvað það væri gott að ég hefði
ekki lent á hausnum. Þegar
ég var svo loks kominn niður
á gólf hugsaði ég að kaðallinn
hlyti að hafa slitnað,“ segir Jó-
hannes sem var í töluverði
sjokki eftir fallið.
„Ég hélt ég væri stórslas-
aður. Fólk finnur ekki allt-
af fyrir meiðslunum strax og
maður heyrir að sumir rjúki
á lappir eftir svona. Ég var í
miklu sjokki og hélt bara að
það hlyti eitthvað mikið að
vera að mér. Hægt og rólega
fann ég þó að allt var í lagi.
Ég held ég hafi legið alveg í
mínútu og allir 500 gestirnir
í salnum steinþögðu. Þetta
var hátt fall en þegar ég fann
að það væri allt í lagi ákvað
ég bara að halda áfram. Það
var mér ekkert kappsmál,
ekkert svona „ the show must
go on“-dæmi. Ég bara stóð á
fætur, fullvissaði fólkið um að
það væri í lagi með mig, ég
væri í stuði og byrjaði svo að
syngja þar sem ég átti fyrstu
setningu í næsta lagi,“ segir
hann.
Jóhannes var fyrr í sumar
við tökur á myndinni Svartur
á leik en trikk sem hann lærði
þar kom líklega í veg fyrir að
ekki fór verr í Hörpunni. „Ég
vil nú bara þakka Jóni Viðari
í Mjölni kærlega. Í Svartur á
leik er atriði þar sem fótun-
um er kippt undan mér, báð-
um í einu. Ég fór þá til Jóns
Viðars og bað hann um að
kenna mér að lenda. Það sem
maður gerir er að snúa upp
á hrygginn með því að lenda
á vinstri olnboga og hægri
mjöðm. Þetta þurfti ég að
gera yfir hundrað sinnum. Ég
fann svo þegar ég vaknaði að
ég var aumur á nákvæmlega
þessum stöðum. Þetta var
ekkert meðvituð ákvörðun
en ég bara gerði þetta svo oft
þegar ég var að æfa að þetta
hlýtur að hafa verið einhvers
staðar í undirmeðvitund-
inni,“ segir Jóhannes Haukur
Jóhannesson.
tomas@dv.is
Katie Price
Er með nýjan
sjónvarps-
þátt í vinnslu.
Mynd daily Mail
María Einarsdóttir, eigandi Arrogant Cat í London:
Afgreiddi Jordan
María Einarsdóttir Afgreiðir Katie Price í versluninni Arrogant Cat. Mynd daily Mail
Hélt að kaðallinn
hefði slitnað
n Jóhannes Haukur er aumur en heill eftir hátt fall í Hörpunni n „Hélt ég
væri stórslasaður,“ segir hann n lærði að detta hjá Mjölni fyrr í sumar„Þegar ég lenti
á sviðinu
hugsaði ég að þetta
væri nú ekki gott.
Kaðallinn hættulegi Jóhannes
Haukur datt þrjá og hálfan metra úr
þessum kaðli fyrir helgi.