Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.04.1972, Blaðsíða 17
15
Verðgrundvöllur spánna er, hvað tekjuhliöina snertir,
byggður á hugmyndum um áætlaö skilaverð til framleiðenda á
árinu 1972. Verðlag á frystum og blokkfrystum fiskflökum og
heilfrystum fiski er sýnt sárstaklega í töflu F 3.4. 1 gjalda-
hlið spánna 1972 eru sýnd tvö kostnaöartilvik þ.e. miöað við
vetrarvertíðarverölag og almanaksársverðlag. 1 báðum tilvikum
er reiknað með hráefniskostnaði eins og hann var £ upphafi
ársins eftir hinar almennu fiskverösákvarðanir Verðlagsráös.
Ekki er reiknað með neinni verðbreytingu annarra fisktegunda
eins og humars, skelfisks og kola frá síöustu verðákvörðunum
fyrir þessar tegundir.
Söltun og herzla (Töflur merktar S ; S 2.1, S 2.2 o.s.frv.)
Rekstrarreikningurinn 1970 er byggöur á úrvinnslu
Kagrannsóknadeildar á reikningum 27 saltfisk- og skreiðar-
fyrirtækja og að auki á 15 saltfisk- og skreiðardeildum frysti-
húsa. Reikningurinn hefur sxðan veriö færöur upp í heildar-
stærðir eftir áætluðu framleiösluverömæti á öllu landinu.
Tekjuhlið reikninganna hefur verið endurskoöuð í samræmi við
upplýsingar frá sölusamtökum, útflutningsaðilum og fyrir-
tækjunum sjálfum. Afskriftir hefur Hagrannsóknadeild einnig
endurmetið.
Framreikningur Hagrannsóknadeildar til áranna 1971 og
1972 byggist á mati verðbreytinga og áætluðum breytingum á
framleiðslumagni. I áætlun 1971 m.v. magn þess árs er reiknaö
með um 16% heildarmagnminnkun framleiðslunnar frá fyrra ári.
Reynslan nú bendir til þess, að samdráttur framleiðslunnar
hafi ekki orðið svo mikill eða tæplega meiri en 11-12%. I
spá 1972 m.v. magn þess árs er ekki reiknað meö neinni magn-
breytingu frá áætluðu magni 1971.
Verögrundvöllur spánna 1972 er, hvað tekjuhliðina
snertir, byggður á hugmyndum um væntanlegt verðlag á árinu
1972. Verðlag og verðspár á óverkuöum saltfiski eru sýndar
sérstaklega í töflu S 3.3. I gjaldahlið spánna 1972 eru
sýnd tvö kostnaöartilvik þ.e. miðað við vetrarvertíðarverö-
lag og almanaksársverölag.