Hagskýrslur um atvinnuveg

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.04.1972, Qupperneq 18

Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.04.1972, Qupperneq 18
16 Síldar- og fiskimiðlsvinnsla (Töflur merktar M 3.1 og M 3.2) Rekstrarreikningarnir 1969 og 1970 eru byggðir á úrvinnslu Hagrannsóknadeildar á reikningum fyrirtækjanna. Afskriftir hefur Hagrannsóknadeild endurmetið, en tekjuhlið reikninganna hefur ekki verið endurmetin, þar eð fullnægjandi upplýsingar frá fyrirtækjum og útflytjendum eru ekki fyrir hendi. Afkoman þessi tvö ár hefur verið mjög mismunandi eftir landshlutum og er rekstrarreikningum beggja ára því skipt í tvennt, það er Noröur- og Austurland ("síldarsvæöið" fyrrum), þar sem afkoman var lökust, og svo aðra landshluta. Engar rekstraráætlanir eru sýndar fyrir verksmiðjurnar árin 1971 og 1972. Á grundvelli fremur lauslegra rekstrar- áætlana, sem Hagrannsóknadeild hefur gert, má hins vegar gera ráð fyrir því, að hreinn hagnaður verksmiðjanna sunnanlands og vestan hafi verið röskar +2 m.kr. áriö 1971 samanboriö við +63,7 m.kr. árið áður. Hreinn hagnaöur verksmiðjanna norðanlands og austan árið 1971 hefur á sama hátt verið áætlaður um -80 m.kr. (þ.e. tap) samanborið við -37,3 m.kr. árið áöur. 1 þessum áætlunum hefur verið reiknað með endur- metnum afskriftum og óbreyttu framleiöslumagni á báöum svæöum frá árinu 1970, en á árinu 1971 var mun minna loðnumagni landað austanlands en árið áöur eöa um 43 þús. tonnum samanborið við 98 þús. tonn árið 1970. Aukning varð hins vegar á því loönu- magni, sem landaö var sunnanlands og vestan, um 47 þús. tonn. Þess er því að vænta, aö afkoman 1971 veröi í reynd nokkru hagstæðari sunnanlands og vestan en áætlað er hér aö framan en afkoman noröanlands og austan verði enn óhagstæðari en hér er áætlaö.

x

Hagskýrslur um atvinnuveg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um atvinnuveg
https://timarit.is/publication/1124

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.