Hagskýrslur um atvinnuveg

Útgáva

Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.10.1977, Síða 17

Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.10.1977, Síða 17
15 Fyrstu átta mánuói þessa árs jókst verðmæti heildar- útflutnings um tæplega 42% miöað við janúar-ágúst 1976, en um rúmlega 34% ef útflutningur á áli og álmelmi er undanskilinn. Verðhækkanir miðaö við fyrstu átta mánuði 1976 eru áætlaóar 21% á vörum öðrum en áli og álmelmi, þannig að útflutt magn hefur aukizt um 10%. Aukning í magni er mest í útflutningi á ullarvörum, tæplega 34% og 26% í útflutningi á fiskilínum, köðlum og netum alls konar en einnig hefur orðið talsverö aukning í útflutningi á lagmeti (12%) . Hins vegar hefur dregið töluvert úr útflutningi skinna og skinnavara fyrstu átta mánuði þessa árs miðaö við fyrra ár eða tæplega 10% og veröhækkun numið 17-18%. Áætlanir á afkomu iðnaðar^ árið 1976 benda til þess, að afkoma iðnaöarins í heild sé nokkru betri árið 1976 en hún var árið 1975. Tekjur í iðnaöi eru áætlaöar aukast úr 66,6 milljöröum króna árió 1975 í 91,1 milljarð króna árið 1976 eða um tæplega 37% og vergur hagnaður fyrir skatta er áætlaður aukast úr 4,6% af tekjum árið 1975 í 5,5% af tekjum árið 1976 en hér ræður mestu batnandi afkoma álversins árið 1976. Án álframleiðslu eru tekjur iðnaðarins áætlaðar aukast um 34% árið 1976 úr 58,9 milljöröum króna í 79,1 milljarð króna og nemur vergur hagnaður í þessum áætlunum 4,8% af tekjum árið 1976 í stað 5,7% árið áður. Vergur hagnaöur vörugreina iðnaðar hækkar úr 4,4% af tekjum árið 1975 (tafla 1.2) í 6,2% árið 1976 og er þá álframleiðsla meötalin, en er áætlaður lækka úr 5,9% í 5,5% að álframleiðslu undanskilinni. 1 þeim greinum vörugreina iðnaðar er selja framleiöslu sína innanlands nam vergur hagnaöur fyrir skatta 5,6% af tekjum árið 1975 en er áætlaður lækka í 5,3% af tekjum árið 1976. Afkoma útflutningsiðnaðarins batnar verulega á árinu 1976 og nemur vergur hagnaður 8,9% af tekjum í stað 0,7% árið 1975 en hagnaður í útflutningsgreinum án áls lækkar úr 8,7% árið 1975 í 7,6%. 1) Undanskildar eru greinar fiskiðnaðar og slátrun og kjötiðnaðar.

x

Hagskýrslur um atvinnuveg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um atvinnuveg
https://timarit.is/publication/1124

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.