Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Blaðsíða 3
Fréttir 3Mánudagur 26. ágúst 2013 Vantar um 100 kennara Verið er að ganga frá ráðningum í marga skóla og á frístundaheim­ ili í borginni. Á föstudag átti eftir að ráða í 75 stöðugildi í leikskól­ um, þar af 58 leikskólakennara. Þá átti eftir að ráða 23 í grunn­ skólana, þar af 5 kennara. Um 60 starfsmenn vantar í frístundastarf, en yfirleitt er um 50 prósent störf að ræða. Í tilkynningu frá Reykja­ víkurborg kemur fram að undan­ farin ár hafi flestar ráðningar á frí­ stundaheimili átt sér stað í síðustu viku. „Á sama tíma í fyrra átti eftir að ráða í 95 stöðugildi í leikskól­ um og 42 í grunnskólum og þann 23. ágúst 2012 vantaði 95 starfs­ menn í frístundaheimili. Þá gekk vel að ráða í lausar stöður og má búast við því að sú verði raunin þetta haustið,“ segir í tilkynningu borgarinnar. Þá kemur einnig fram að alls hafi 3.501 umsókn borist um frí­ stundaheimili auk 91 umsóknar í frístundaklúbba fyrir fötluð börn og ungmenni. Þann 19. ágúst hafði 2.561 barn verið tekið inn í frístundaheimili og 50 í frístunda­ klúbba. Á biðlista er því 981. Á sama tíma árið 2012 var 781 á biðlista en þá voru umsóknir einnig færri en nú. Þann 21. ágúst 2013 voru 5.916 börn í leikskólum Reykjavíkur­ borgar en heildarfjöldi plássa er 5.997. Þessa dagana er aðlögun barna í fullum gangi. Öll börn fædd 2011 eða fyrr sem höfðu sótt um leikskólapláss hjá Reykjavíkur­ borg í vor hafa fengið vistun í leik­ skóla, en lengst bið hefur verið eftir leikskólaplássi í Breiðholti. Tafir raska skólastarfi A uðvitað raskar þetta skóla­ starfi. Við getum ekki nýtt skólalóðina núna þegar það er ennþá ver­ ið að vinna hana,“ segir Hildur Jóhannesdóttir, skólastjóri Dalskóla, í samtali við DV. „Verk­ áætlunin náðist ekki fyrir skólabyrj­ un en það var samt skólasetning á fimmtudaginn og þetta gengur ágætlega.“ Mikil óánægja Mikil óánægja ríkir meðal íbúa í Úlfarsárdal vegna tafa á nauðsyn­ legum framkvæmdum við Dalskóla sem átti að vera lokið fyrir skóla­ setningu. Við skólasetninguna í síðustu viku var framkvæmdunum ekki lokið og enn nokkrar skólastof­ ur sem ekki var hægt að taka í gagn­ ið. Þegar blaðamann DV bar að garði blasti við fremur vesældar­ leg sjón þar sem meira fór fyrir iðnaðar mönnum en nemendum. Skýringin á því felst í því að nokkrir árgangar höfðu verið sendir í ferða­ lag en á meðan unnu iðnaðar­ mennirnir hörðum höndum að því að ljúka við skólastofur. Næsta verk er að ganga frá skólalóðinni með viðunandi hætti en þar virðist nokk­ uð langt í land. Fjórtán skúrar Dalskóli er hýstur í fjórtán skúrum sem reistir hafa verið til bráða­ birgða og er ástand þeirra afar mis­ jafnt. Skólahús Dalskóla átti að rísa árið 2008 en nú er útlit fyrir að það gerist ekki fyrr en átta til tíu árum seinna en áætlað var. Því má ætla að einhverjir nemendur muni út­ skrifast úr Dalskóla án þess að hafa nokkurn tímann verið í eiginlegri skólabyggingu. „Við viljum auðvitað gera allt til að þrýsta á að fá nýja skóla­ byggingu sem fyrst,“ segir Hildur og bætir við að nú sé áætlað að hönnunarsamkeppni vegna byggingarinnar fari í gang nú í september. Hún segir þó að heilbrigðis eftirlitið hafi lagt bless­ un sína yfir skólaaðstöðuna og að aukinn kraftur hafi verið settur í framkvæmdirnar. „Það er verið að klára að mála allt að utan og innan og þetta er allt að koma. Það er alla­ vega hlýtt og það er hægt að sturta niður,“ segir Hildur að endingu í gamansömum tón. Hrunið setti strik í reikninginn Eins og greint hefur verið frá dró Reykjavíkurborg verulega úr fyrir­ huguðum áætlunum varðandi byggð í Úlfarsárdal í kjölfar efna­ hagshrunsins árið 2008. Uppruna­ lega stóð til að þrír skólar yrðu í hverfinu fyrir 1.–7. bekk auk safn­ skóla en nú er aðeins einn skóli í hverfinu fyrir börn allt frá 2 ára aldri og upp í 10. bekk. Dalskóli var fyrst settur árið 2010. Nemendum skól­ ans hefur fjölgað jafnt og þétt og eru þeir nú rúmlega 100 talsins. Kristinn Steinn Traustason er formaður Íbúasamtaka Úlfarsár­ dals. Hann ef afar ósáttur við seina­ ganginn í framkvæmdunum við Dalskóla. „Við erum óánægð með hve seint var farið af stað og hvern­ ig hefur verið staðið að því að koma skólanum í lag fyrir haustið,“ seg­ ir Kristinn í samtali við DV. „Svo er fólk auðvitað ósátt við það hvað bygging skólahússins hefur tafist mikið.“ Hann segir íbúa á svæðinu marg­ sinnis hafa komið óánægju sinni á framfæri við borgaryfirvöld. „Já, við höfum gert það mörgum sinnum, ítrekað rætt við borgarfulltrúa,“ seg­ ir Kristinn og bætir við að skiljan­ lega hafi efnahagshrunið sett strik í reikninginn. Bráðabirgðaaðstaða skólans verði samt að vera í lagi. „Já, þetta er vægast sagt ömur­ legt aðstaða. En það átti eitthvað að lappa upp á þetta núna í sum­ ar. En maður vill náttúrulega ekki vera of neikvæður,“ segir Kristinn að lokum. n n Skólastofur Dalskóla ekki tilbúnar við skólasetningu Ólafur Kjaran Árnason blaðamaður skrifar olafurk@dv.is „Það er allavega hlýtt og það er hægt að sturta niður. Skólasvæðið Skólabygging Dalskóla átti að rísa árið 2008. Að öllum líkindum mun skólastarfið þó fara fram í skúrum næstu þrjú til fimm ár. Myndir KriStinn MagnúSSon Kennslustofa Þegar ljósmyndari DV kíkti í heimsókn átti enn eftir að klára nokkrar stofur. Unnið hörðum höndum Nauðsynlegar framkvæmdir við Dalskóla töfðust og hófust ekki fyrr en í þessum mánuði. Spá rýrnun kaupmáttar Horfur eru á rýrnun kaupmáttar næstu mánuði ef marka má spá Greiningar Íslandsbanka. Á vef bankans er vísað í nýbirtar tölur Hagstofunnar um launavísitölu og vísitölu kaupmáttar launa fyrir júlí síðastliðinn. Launavísitalan lækk­ aði í júlí og er það í fyrsta skipti frá apríl síðastliðnum sem það gerist. Kaupmáttur launa jókst þó um 0,2 prósent þar sem vísitala neysluverðs (VNV) lækkaði um 0,3 prósent. „Það er hins vegar skammgóð­ ur vermir þar sem útsölurnar sem drifu lækkun VNV í júlí ganga til baka í ágúst og september,“ segir í umfjöllun Greiningar en frá júlí í fyrra hefur launavísitalan hækk­ að um 5,5 prósent á sama tíma og vísitala neysluverðs hefur hækkað um 3,8 prósent. Kaupmáttaraukn­ ing á tímabilinu mælist því 1,6 prósent, en í kjölfar samnings­ bundinnar hækkunar launa í vetur fór 12 mánaða taktur kaupmáttar­ aukningar í 2,4 prósent. „Horfur eru á að vísitala neyslu­ verðs hækki nokkuð hraðar en launavísitalan það sem eftir lifir árs. Við gerum ráð fyrir að VNV muni samanlagt hækka um 1,8 prósent til áramóta, og að á sama tíma muni launavísitalan hækka um tæpt pró­ sentustig. Gangi spár okkar eftir mun kaupmáttaraukning launa yfir árið nema 0,7 prósent. Þetta veltur þó vitaskuld á því hvenær nýir kjarasamningar, sem samið verður um í haust, taka gildi,“ segir á vef Greiningar Íslandsbanka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.