Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Page 11
Fórnarlömb auðlegðarskattsins Fréttir 11Mánudagur 26. ágúst 2013 n Fjölskyldur Bjarna Ben og Sigmundar Davíðs hafa greitt hundruð milljóna í auðlegðarskatt n Prófessor telur skattinn ekki stjórnarskrárbrot n Ráðgert að leggja auðlegðarskatt af Toyota-umboðið fyrir um sex millj- arða króna árið 2005 þannig að Páll hefur verið milljarðamæringur síð- ustu árin. Hann greiðir því örugglega auðlegðarskatt. Auðæfi Sigmundar Davíðs og Önnu Sigurlaugar eru að öllum líkindum hlutdeild hennar í söluandvirði Toyota-umboðsins. Greiddu milljónir Bæði Bjarni Benediktsson og Sig- mundur Davíð hafa samtals greitt nærri 100 milljónir króna í auð- legðarskatt síðustu árin. Miðað við eignastöðu Bjarna og konu hans greiddu þau tæpar tvær milljónir króna í auðlegðarskatt í fyrra á með- an Sigmundur Davíð hefur greitt 22 milljónir króna. Síðastliðin ár hafa þeir því greitt samtals tæplega 100 milljónir króna í auðlegðarskatt: Sig- mundur Davíð og kona hans um 88 milljónir króna miðað við núverandi eignastöðu og Bjarni og kona hans tæplega 8 milljónir króna. Þá hefur faðir Bjarna greitt um 90 milljónir króna í auðlegðarskatt af tæplega 1.200 milljóna króna eign- um sínum og faðir Sigmundar hef- ur greitt um 30 milljónir króna í auð- legðarskatt. Föðurbróðir Bjarna, Einar Sveinsson, hefur á sama tíma greitt um 160 milljónir króna í auð- legðarskatt af nærri tveggja milljarða króna eignum sínum. Ekki er vitað hvað Páll Samúelsson hefur greitt í auðlegðarskatt. Finna beint fyrir afnáminu Ef auðlegðarskatturinn verður af- numinn mun það því þýða að Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð, og margir fjölskyldumeð- limir þeirra, munu losna við að borga samtals mörg hundruð millj- ónir króna í skatta um ókomin ár. Þeir, og þeirra fjölskyldur, munu því finna með beinum hætti fyrir afnámi auðlegðarskattsins. Það sama gildir um fjölmarga aðra eigna- mikla Íslendinga eins og Kristján Vilhelmsson, Þorstein Má Baldvins- son, Bjarna Ármannsson, Skúla Mogensen, Kjartan Gunnarsson og fleiri, líkt og sjá má á opnunni á lista yfir auðugustu Íslendingana. Allir á listanum greiða auðlegðarskatt af þessum eignum sínum en ríkið mun ekki lengur fá þennan skatt í kassann ef hann verður afnuminn. Auðlegðarskatturinn var settur á sem tímabundið úrræði til að auka tekjur ríkisins í kjölfarið á íslenska efnahagshruninu og hefur hann skilað 27,5 milljörðum króna í rík- iskassann á síðustu fjórum. Ríkið mun verða af þessum tekjum, sem líklega þarf að finna annars staðar með niðurskurði og minnkun á fjár- veitingum þar sem um er að ræða verulega fjármuni, 5,6 milljarða króna í fyrra til að mynda. Hvaðan þessir fjármunir eiga að koma liggur ekki fyrir en vitað er að „allt er und- ir“ hjá hagræðingarhópi ríkisstjórn- arinnar eins og einn af meðlimum hópsins, Vigdís Hauksdóttir, orðaði það fyrir skömmu. Pólitísk spurning? Ef Björg Thorarensen hefur rétt fyrir sér um lögmæti auðlegðar- skatts og Bjarni Benediktsson rangt – göngum út frá því að svar liggi ekki endanlega fyrir við þessari spurningu fyrr en Hæsti- réttur Íslands hefur dæmt í máli Guðrúnar Lárusdóttur – þá liggur það fyrir að Bjarni getur ekki vísað til ólögmætis auðlegðarskattsins til að afnema hann. Bjarni getur hins vegar alltaf vísað til pólitískrar sannfæringar sinnar, eða einhvers slíkt, þar sem það var auðvitað slík sannfæring um réttlæti auðlegðar- skatts sem gerði það að verkum að skattinum var komið á á sínum tíma af ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Vinstri stjórninni fannst skatturinn rétt- látur á meðan Bjarna og Sigmundi Davíð finnst hann sjálfsagt órétt- látur. Nokkuð ljóst má telja að skattur- inn verði afnuminn, ef marka má orð Bjarna og það hversu viss hann virðist vera um ólögmæti hans þrátt yfir að dómur hafi ekki fall- ið um málið. Út frá þessari stað- reynd má draga þá ályktun að hér búi pólitík að baki enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn yfirleitt gætt hagsmuna hinna efnameiri í sam- félaginu. Nú vill svo til að bæði Bjarni og Sigmundur Davíð, for- menn ríkisstjórnarflokkanna, eru í flokki hinna efnameiri í samfé- laginu og græða beint á afnámi auðlegðarskatts þar sem þeir munu halda fénu sem þeir hefðu annars greitt til ríkisins. Þegar slík- ir persónulegir og fjölskylduleg- ir hagsmunir bætast við pólitísku breytuna í málinu þá þarf varla að spyrja um niðurstöðuna. Fórnar- lömb auðlegðarskattsins munu því sem sagt bregðast við því óréttlæti sem þeir telja sig beitta og koma því þannig fyrir að réttlætið nái fram að ganga með afnámi skatts- ins. n Kristján Vilhelmsson 136 milljónir* Skúli Mogensen 108 milljónir* Þorsteinn Már Baldvinsson 27 milljónir* Kjartan Gunnarsson 41 milljón* Einar Sveinsson 40 milljónir* Bjarni Benediktsson 2 milljónir* Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 22 milljónir* * Í auðlegðarskatt árið 2012

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.