Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Blaðsíða 18
18 Sport 26. ágúst 2013 Mánudagur
Þriðji sterkasti maður heims
n Hafþór Júlíus Björnsson náði þriðja sætinu í keppninni Sterkasti maður heims í Kína
H
afþór Júlíus Björnsson varð
að láta sér lynda þriðja sætið
í keppninni Sterkasti mað
ur heims sem lauk í Kína um
helgina en Hafþór sjálfur hafði frá
upphafi augastað á efsta sætinu sem
hefði fært hann í flokk með þeim
Jóni Páli Sigmarssyni og Magnúsi Ver
Magnússyni sem báðir hafa unnið
þessa keppni fyrir Íslands hönd.
Það gekk þó ekki eftir en það var
bandarískur keppandi, Brian Shaw,
sem stóð uppi sem sigurvegari en sá
átti afar góðan lokadag og setti meðal
annars mótsmet í réttstöðulyftu sem
var ein lokagreinanna. Þar lyfti hann
445 kílóum meðan Hafþór náði best
að hífa 400 kíló.
Árangur Hafþórs er engu að síð
ur glæsilegur en 30 keppendur hófu
keppni fyrir rúmri viku í fimm riðlum
en aðeins tveir efstu í hverjum fyrir
sig komust áfram í lokakeppnina sem
var hin glæsilegasta og sýnd í sjón
varpi í Kína þar sem kraftakeppnir eiga
miklum vinsældum að fagna. Hafþór
tryggði sér þátttöku í úrslitunum ör
ugglega á þriðjudaginn var en sem fyrr
segir reyndist ástríða hans og vilji ekki
nóg til í þetta sinn.
Hafa ber þó í huga að Hafþór er
aðeins rétt rúmlega tvítugur að aldri
meðan allir helstu keppinautar hans í
kraftakeppnum eru mun eldri og sum
ir hverjir farnir að nálgast endalok fer
ils í kraftlyftingum hvers konar. Það er
því góð von til að Hafþór nái takmarki
sínu fyrr en síðar. n
albert@dv.is
Kemur síðar
Hafþór Júlíus á
verðlaunapalli í
Kína. Hann stefndi
ótrauður á efsta
sætið en varð að
sætta sig við það
þriðja að lokum.
Lokastaðan
1. Brian Shaw, Bandaríkjunum 51 stig
2. Zydrunas Savickas, Litháen 48 stig
3. Hafþór Júlíus Björnsson, Íslandi 42 stig
4. Mike Jenkins, Bandaríkjunum 41 stig
5. Mike Burke, Bandaríkjunum 38,5 stig
6. Vytautas Lalas, Litháen 34 stig
7. Terry Hollands, Bretlandi 31,5 stig
8. Johannes Arsjo, Svíþjóð 16 stig
9. Robert Oberst, Bandaríkjunum 14 stig
10. Misha Koklyaev, Rússlandi Hætti keppni
Gagnrýnir
Guardiola
„Það var Bayern München undir
stjórn Jupp Heynckes sem vann
alla titla á síðustu leiktíð. Nú hafa
þeir nýjan þjálfara og breyttan hóp
og ég er ekki viss um að sá sé jafn
góður og áður,“ sagði Jose Mourin
ho, þjálfari Chelsea, aðspurður um
möguleika síns liðs gegn Bayern
München á föstudaginn kemur
í Úrvalsbikar Evrópu. Þar mætir
Mourinho sínum forna fjanda, Pep
Guardiola, en þeir elduðu grátt
silfur saman á Spáni þegar þeir
stýrðu Real Madrid og Barcelona.
Lét Portúgalinn þá fá tækifæri
forgörðum fara til að gagnrýna
Börsunga og hann heldur fast við
sinn keip nú með skotunum á Gu
ardiola og hóp hans í Bayern. Gu
ardiola hefur þó byrjað vel og er lið
hans taplaust hingað til.
Lokatilraun
við Fabregas
David Moyes, stjóri Manchester
United, hyggst gera lokatilraun til
að kaupa hinn hæfileikaríka Cesc
Fabregas frá Barcelona og undir
býr nú sitt þriðja boð í kappann að
því er fullyrt er í enskum miðlum.
Stjórn United hefur gefið grænt ljós
á tilboð upp á 7,5 miljarða króna
og segja miðlar á Spáni ekki alveg
loku fyrir það skotið að því verði
tekið. Fabregas er ekki talinn eiga
fast sæti hjá nýjum þjálfara Börs
unga og eigi það við rök að styðj
ast mun Fabregas eflaust fremur
kjósa að spreyta sig á Englandi en
verma bekkinn á Spáni. Hvort það
sé helber tilviljun eður ei þá er 7,5
miljarðar króna sama upphæð og
Chelsea hefur lagt á borðið vegna
Wayne Rooney.
Ruglverð
fyrir Bale
Þær verðhugmyndir sem rætt er
um að Real Madrid greiði Totten
ham fyrir Gareth Bale eru bara
móðgun við þá veröld sem fólk
býr í að mati þjálfara Barcelona,
Gerardo Martino. Óljósar fregnir
herma að forráðamenn beggja liða
séu að leggja lokahönd á samning
um að að Bale fari til Real Madrid
en það hefur ekki fengist staðfest
þegar þetta er skrifað. Þó er talið
víst að samningar hafi tekist og
Bale verði opinberaður sem leik
maður Real innan skamms. Hins
vegar telja fjölmiðlar sig vita að
sú upphæð sem um ræðir sé um
sextán milljarðar króna eða hund
rað milljónir evra og það finnst
Martino ósmekkleg upphæð. Sé
upphæðin rétt verður Bale dýrasti
knattspyrnumaður sögunnar.
E
f mark er takandi á tölfræði
miðlum vestanhafs eru með
altalstekjur atvinnukylfinga á
PGAmótaröðinni í golfi um
116 milljónir króna árlega.
Það er þó miðjumoð sem segir lítið
og öllu nær lagi að tiltaka þá millj
arða króna sem þeir bestu í golfinu
þéna á ársgrundvelli en þar er ekki
um neinar ölmusur að ræða.
Beinar tekjur Tiger Woods að frá
töldum öllum aukatekjum á borð
við auglýsingatekjur á síðasta ári
námu 1,5 milljörðum króna en Tig
er er vitaskuld í nokkrum sérflokki
eða hvað? Ekki aldeilis. Ungstirnið
Rory McIlroy vann sér inn 1,6 millj
arða króna á sama ári. Þeim næstur í
tekjum 2012 var Phil Mickelson sem
þénaði 580 milljónir króna.
Bónus í vasann
Ofantaldir kylfingar og fjöldi annarra
sem jafnvel eiga stóra titla í safni
sínu taka þó á honum stóra sínum
þegar kemur að lokamótum hvers
árs sem er Fedexmótaröðin sem
er ólík öllum öðrum golfmótum. Sú
keppni er útsláttarkeppni sem leik
in er yfir fjögur mót á fimm vikum og
sá sem stendur uppi með sigurinn á
fjórða og síðasta mótinu fær í sinn
hlut beint í vasann litlar tíu millj
ónir dollara sem gera rétt tæplega
1,2 milljarða íslenskra króna. Það er
upphæð sem um munar.
Reglurnar
Sem fyrr eru margir kallaðir en fyrsta
Fedexmótið af fjórum fór fram um
helgina í New Jersey í Bandaríkjun
um. Það mót er kennt við styrktar
aðila mótanna; Barclaysbanka,
Deutsche Bank, BMW og Coca
Cola meðan yfirskrift þeirra allra er
Fedexmótaröðin. Ólíkt hefðbundn
um mótum þar sem menn missa
engan rétt leiki þeir illa eina helgina
eru engin vettlingatök leyfð hér.
Aðeins þeir 125 kylfingar með flest
samanlögð stig eftir hefðbundin mót
fá að taka þátt í Barclaysmótinu en
stig fást fyrir efstu sæti í öllum mót
um á PGAmótaröðinni. En strax eft
ir helgina detta 25 neðstu úr leik og
aðeins hundrað hafa þátttökurétt á
Deutsche Bankmótinu. Að því móti
loknu halda aðeins 75 efstu áfram í
þriðja mótið og einungis þeir 30 með
flest stig eigast við á lokamótinu.
Margir kallaðir
Margir eru kallaðir að þessu sinni og
að venju eru veðbankar að gefa Tiger
Woods bestu líkurnar á sigri. Woods
hefur staðið sig vel í ár og stóð sig
mjög vel um helgina. Aðrir sem spil
uðu af stakri prýði liðna helgi voru
menn á borð við Matt Kuchar og
Henrik Stenson, og Gary Woodland
átti frábæra helgi. Þá var Phil Mickel
son ekki langt undan heldur.
Aðrir sem taldir eru eiga góða
möguleika sökum stöðugrar spila
mennsku eru Adam Scott, Bradley
Keegan og Jason Dufner. Þá má ekki
afskrifa Rory McIlroy en hann virðist
hafa náð tökum á nýjum kylfum og
spilað öllu betur síðustu vikurnar en
mestallt árið sem hefur verið honum
erfitt svo ekki sé dýpra tekið í árina. n
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Milljarður króna í bónus
n Menn sem þéna tugmilljónir bítast grimmt um 1,2 milljarða króna bónusverðlaun
Stórstjörnur Hvorki
Phil Mickelson né
Tiger Woods myndu slá
hendinni móti miljarði
króna í vasann. Woods
hefur unnið mótið
tvívegis en Mickelson
aldrei.
Henrik Stenson Svíinn hefur aldeilis
verið að finna sig að undanförnu og gæti
orðið annar útlendingurinn sem vinnur
Fedex-bikarinn.
Matt Kuchar Bandaríkjamaðurinn hefur
leikið af stakri prýði og á sjaldan slæma
daga á vellinum.
Rory McIlroy Norð-
ur-Írinn hefur verið að
finna fjölina eftir erfitt
ár og hann gæti vel
komið á óvart í Fedex-
keppninni
Mótin sem
leikið er á
Barclays - New Jersey
Deutsche Bank - Boston
BMW - Chicago
Coca-Cola - Atlantat