Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Blaðsíða 2
2 Fréttir 18.–20. október 2013 Helgarblað
Strákarnir í umspil
3 Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er í fyrsta sinn í
sögunni komið í umspil um laust sæti
á HM í knattspyrnu. Íslendingar stóð-
ust Norðmönnum snúning á Ulleväl-
leikvanginum í erfiðum og spennu-
þrungnum leik á þriðjudagskvöld sem
endaði með jafntefli, 1–1. Um gífurlegt
afrek er að ræða því þegar dregið var
í riðla fyrir mótið var Ísland í neðsta
styrkleikaflokki.
Það felur í sér
að fyrir mótið
voru allir and-
stæðingar Íslands
á pappírunum
taldir sterkari.
Það kemur í ljós
á þriðjudag hver
andstæðingur
Íslands verður í
umspilinu.
Uppnám í Krossinum
2 Uppnám varð á samkomu Krossins á sunnudaginn þar
sem átök ríkja á milli Sigurbjargar
Gunnarsdóttur forstöðumanns og
föður hennar, Gunnars Þorsteins-
sonar, sem vill komast aftur til valda
innan trúfélagsins. Á sunnudag var
Baldur Freyr Einarsson gestapredikari
á samkomunni. Í lok predikunarinnar
bað Baldur Sigurbjörgu og Aðalstein,
eiginmann henn-
ar, um að standa
upp og föður
Sigurbjargar,
Gunnar, að koma
og blessa þau.
Gunnar neitaði
hins vegar að
blessa þau, fyrr
en löglega væri
skipað í stjórn
trúfélagsins.
Bankinn hirti allt
1 „Bankinn tók allt. Það er allt farið – rúmlega 40 ár farin í
vaskinn,“ sagði Anna Valdís Jóns-
dóttir í DV á mánudag. Annco, fyrir-
tæki hennar og eiginmanns hennar,
Erlings Garðarssonar, var gert gjald-
þrota fyrr á þessu ári, eftir fjögurra
áratuga farsælan fjölskyldurekstur
þeirra hjóna. Hún segir farir þeirra
ekki sléttar hvað varðar samskipti
við starfsmenn
Íslandsbanka á
Suðurnesjum,
áður Glitnis,
og ofbýður
henni fram-
ganga bankans.
„Maður er bara
dofinn. Þetta er
svo ótrúlegt,“
sagði Anna
Valdís.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
14. 10. 2013 16. 10. 2013 16. 10. 2013
Mánudagur
og þriðjudagur
14.–15. október 2013
116. tölublað
103. árgangur
leiðb. verð 429 kr.
Bankinn
„
Rúmlega
40 ár farin
í vaskinn
n Útibússtjórinn skoðaði eignina n Náðist á myndband
Fá forskot
á rjúpuna
n Ríkisstarfsmenn njóta sérkjara
Náfrænka
Davíðs vill
stjórna LÍN
n Gjaldþrot eftir stökkbreytt lán
tók allt
„Var
að
velta fyrir
mér kostum
og göllum
hússins
- Útibússtjórinn
anna Valdís Jónsdóttir
8
Málaði
og áritaði
úlpurnar
Tískuúlpur á 100.000 krónur 23
Tolli Morthens
Ekki
kaupa
notuð
dEkk
Suma hluti verður að kaupa nýja 14
Blokkin byggð
á röngum stað
„Enginn sökudólgur hengdur“ 2
6
M
y
n
d
S
ig
tr
y
g
g
u
r
A
r
i
4
n Fékk áminningu sem var afturkölluð
n Illugi Gunnarsson tekur ákvörðunina
miðvikudagur
og fimmtudagur
16.–17. október 2013
117. tölublað
103. árgangur
leiðb. verð 429 kr.
ÁTÖK Á
SAMKOMU
n Gunnar neitaði að blessa dóttur sína
n Bréf Gunnars: „Ég skil ekkert í dóttur minni“ n Sakaði fyrrverandi um árás n „Einhver náði að taka hana með valdi“
UppnÁM í KrOSSinUM
„Við
skulum
bara gleyma
þessu
8
„Hægur
og utan
við mig“
n Eyþór Ingi með athyglisbrest 23 LANDS-
LEIK-
URINN
„Vel heppnuð
uppfærsla á Óvitum“
n Börn leika fullorðna og fullorðnir leika börn n Litadýrð og fjör
Hann
dó úr
vonleysi
Var í miðju kynleiðréttingarferli
Horst Gorda lést
á Klambratúni
„Þetta var
góður díll“
Rússi fjárfestir á Kópaskeri
Viltu fara út
að hlaupa?
Elísabet gefur góð ráð 16
6
„Viðsnúningur
hlutverka vekur
mesta kátínuna
19
STrÁKArnir
15
OKKAr í UMSpiln Á mánudag ræðst hvaða stórþjóð við mætum n „Þetta eru stór skref“
9
Sport 15
Miðvikudagur 16. október 2013
Tvær kúlur
á mánuði
Guðmundur Þ. Guðmundsson,
nýráðinn landsliðsþjálfari Dana,
mun þéna ígildi liðlega tveggja
milljóna íslenskra króna á mánuði
í starfi sínu. Ekstrabladet grein-
ir frá þessu en þar kemur fram að
árslaunin, næstu þrjú árin, verði
tæplega 22 milljónir króna á ári.
Óhætt er að segja að pressan
á Guðmundi verði mikil því
þar á bæ er gerð skýr krafa um
ólympíugull. Í dönskum fjölmiðl-
um er talað um að hann hafi feng-
ið viðurnefnið Gullmundur, sem
vísar líklega hvort tveggja til kröf-
unnar um gullmedalíu og launa-
kjara þjálfarans.
Newcastle vill
kaupa Remy
Forráðamenn Newcastle eru sagð-
ir vilja kaupa franska framherjann
Loic Remy sem leikið hefur með
liðinu í haust sem lánsmaður frá
QPR. Remy hefur farið vel af stað
með Newcastle og skorað 5 mörk
í síðustu 3 leikjum sínum. Talið er
að Newcastle þurfi að reiða fram
sex milljónir punda, 1,1 milljarð
króna, til að kaupa leikmanninn.
Að sögn breskra fjölmiðla eru for-
ráðamenn Newcastle sagðir vilja
ganga frá kaupunum strax í janúar
af ótta við samkeppni frá öðrum
félögum.
Messi klár
í slaginn
Lionel Messi, besti knattspyrn-
umaður heims, er byrjaður að
æfa að nýju með Barcelona eftir
að hafa glímt við meiðsli. Messi
meiddist í sigurleik gegn Almer-
ia í lok september og missti af
þeim sökum af fjórum leikjum;
tveimur með Barcelona og tveim-
ur með landsliði Argentínu. Búist
er við því að hann verði í hópnum
gegn Osasuna um helgina og verði
mættur í byrjunarliðið gegn AC
Milan í Meistaradeildinni í næstu
viku. Messi hefur skorað 11 mörk í
9 leikjum á leiktíðinni.
Bravó strákar!
Í
slenska karlalandsliðið í
knattspyrnu er í fyrsta sinn í
sögunni komið í umspil um
laust sæti á HM í knattspyrnu.
Íslendingar stóðust Norðmönn-
um snúning á Ulleväl-leikvanginum í erfiðum og spennuþrungnum leik á þriðjudagskvöld. Jafntefli nægði liðinu til að tryggja sér annað sætið í E-riðli því á sama tíma létu Slóvenar í minni pokann gegn Sviss.
Um gífurlegt afrek er að ræða því þegar dregið var í riðla fyrir mótið var Ísland í neðsta styrkleikaflokki. Það felur í sér að fyrir mótið voru all-
ir andstæðingar Íslands á pappírun-
um taldir sterkari. Lars Lagerbäck og lærisveinar hans í landsliðinu létu slíkt sem vind um eyru þjóta og stefndu ótrauðir á annað efstu sæt-
anna tveggja.
Norðmenn sprækir
Leikurinn gegn Noregi var erfiður. Norðmenn byrjuðu leikinn af krafti og höfðu yfirhöndina á vellinum. Það var því þvert gangi leiksins sem Kolbeinn Sigþórsson skoraði mark á 13. mínútu eftir góðan undirbún-
ing Gylfa Þórs Sigurðssonar. Í kjölfar-
ið kom góður íslenskur kafli þar sem liðið stjórnaði leiknum. Norðmenn hertu tökin þegar á fyrri hálfleikinn leið og uppskáru mark á 30. mín-
útu, þegar Daniel Braaten skoraði. Þannig stóðu leikar í hálfleik.
Norðmenn byrjuðu seinni hálf-
leikinn af krafti og stjórnuðu hálf-
leiknum lengst af. Þeir sköpuðu sér þó ekki hættuleg færi. Eiður Smári Guðjohnsen fékk líklega besta færi hálfleiksins en norski markvörður-
inn varði með miklum tilþrifum. Í kjölfarið kom Alfreð Finnbogason inn fyrir Eið Smára. Það dró af báð-
um liðum þegar á hálfleikinn leið og færunum fækkaði. Á sjötugustu og fjórðu mínútu bárust þau gleðitíð-
indi frá Sviss að heimamenn væru komnir yfir. Þar með var ljóst að Slóvenar þyrftu tvö mörk þyrfti til að komast upp fyrir Íslendinga í riðlin-
um. Leikurinn í Ósló fjaraði út og Ís-
lendingar lönduðu stiginu.
„Ég er stoltur“
„Við gerðum bara það sem þurfti að
gera. Við getum verið stoltir af sjálf-
um okkur og þetta er ólýsanlegt,“
sagði Kolbeinn í viðtali við RÚV eftir
leik. Eiður Smári Guðjohnsen var að
vonum ánægður eftir leik og viður-
kenndi að þessi áfangi hafi verið fjar-
lægur draumur undanfarin ár. „Við
erum auðvitað ekki komnir á HM
en við höfum skrifað okkur í sögu-
bækurnar. Þetta eru stór skref.“ Eið-
ur hefur ekki átt upp á pallborðið hjá
sínu félagsliði undanfarna mánuði
og sagði að hann hefði notað lands-
liðið sem „motivation“ til að halda
sér í góðu standi. „Ég er stoltur af
því að hafa hjálpað til við að afreka
þetta.“
Fyrirliðinn Aron Einar Gunnars-
son var ánægður en jarðbundinn eft-
ir leik. „Við byrjuðum illa og spiluð-
um ekki okkar besta leik í kvöld. Við
verðum bara að læra af þessu. Við
náðum ekki upp okkar spili en gerð-
um það sem þurfti til. Þetta var nóg,“
sagði hann við RÚV.
Íslenska liðið hefur oft spilað
betur en í leiknum í Noregi en Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari sagði í viðtali við RÚV eftir leikinn að hann væri stoltur af dugnaði liðsins og karakter leikmanna.
Á mánudaginn verður dregið um hvaða lið mætast í umspilinu fyrir HM. Ísland getur þar mætt Króatíu, Grikklandi, Portúgal eða Svíþjóð, eins og staðan er á styrkleikalista FIFA í dag. FIFA á þá eftir að reikna út nýjan lista að loknum þeim lands-
leikjum sem farið hafa fram síðustu daga. Hugsanlegt er að þeir útreikn-
ingar geti haft áhrif á hvaða liðum Ís-
land getur mætt í umspilsleikjunum, en auk þessara fimm liða verða Rúm-
enía, Frakkland og Úkraína í hattin-
um. Sá háttur er hafður á að þau fjög-
ur lið sem efst eru á styrkleikalista FIFA mæta þeim fjórum sem neðar eru. Það er því ljóst að Ísland mun mæta stórþjóð í knattspyrnu í leikj-
unum mikilvægu, sem fram fara í nóvember. n
n Skráðu nöfn sín á spjöld sögunnar í Ósló n Dregið á mánudaginn
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Lokastaðan í riðlinum
Leikir Markatala Stig
Sviss 10 17 6 24
Ísland 10 17 15 17
Slóvenía 10 14 11 15
Noregur 10 10 13 12
Albanía 10 9 11 11
Kýpur 10 4 15 5
Kolbeinn í stuði
Markahrókurinn
skoraði í enn einum
landsleiknum.
Einkunnir leikmanna íslenska liðsins7 Hannes Þór
Halldórsson Var öruggur
í sínum aðgerðum en hefði
með smá heppni getað var-
ið þegar Norðmenn skoruðu.
6 Birkir Már Sæv-
arsson Átti fínan leik
og átti ekki í teljandi
vandræðum. Verður í
banni í næsta leik.
8 Kári Árnason Var ör-
uggur á boltann, að venju,
og bar af í vörn Íslands.
6 Ragnar Sigurðsson Átti
fínan leik en gerði slæm
mistök þegar hann
missti boltann í síðari
hálfleik. Kári bjargaði á
ögurstundu.
6 Ari Freyr Skúlason Átti
nokkuð kaflaskiptan leik og
var stundum í basli, enda
sóttu Norðmenn mikið upp
hans megin. Lék boltanum vel frá sér.
5 Jóhann Berg
Guðmundsson Gerði
ekki mikið sóknarlega
en vann mjög vel í
vörninni.
7 Aron Einar
Gunnarsson Dreif
sína menn áfram
og var fastur fyrir.
Stöðvaði ófáar sóknir
Norðmanna.
7 Gylfi Þór
Sigurðsson Lagði
upp mark Íslands
með frábærri
sendingu. Gylfi lék
mjög vel í leiknum
og var ótrúlega
góður undir pressu.
6 Birkir Bjarnason
Átti fínan leik og barðist
eins og ljón allan leikinn. Gaf aldrei tommu eftir.
7 Eiður Smári
Guðjohnsen Var
líklega besti mað-
urinn á vellinum
í fyrri hálfleik og
var svo óheppinn
að skora ekki í þeim
síðari. Flottur leikur hjá
öldungnum.
8 Kolbeinn
Sigþórsson Fékk
eitt færi í leiknum
og nýtti það,
eins og sönnum
framherja sæmir.
Barðist eins og ljón
allan tímann.
5 Alfreð
Finnbogason
Komst ekki alveg í
takt við leikinn en
hljóp þó mikið og
var duglegur.„Ég er
stoltur
af því að hafa
hjálpað til við að
afreka þetta
n Eigandi VIP Club segir ekkert óeðlilegt við fyrirkomulagið
G
reiðslur á kampavíns-
klúbbnum VIP Club fóru þar
til nýlega í gegnum ferða-
þjónustufyrirtækið VIP
Travel sem er í eigu sömu
aðila. Þetta staðfestir eigandi staðar-
ins. Þannig fór stór hluti veltunnar í
gegnum fyrirtæki í ferðaþjónustu, en
þau greiða lægri virðisaukaskatt en til
að mynda fyrirtæki í veitingarekstri.
Fjölmiðlar hafa á síðustu mánuðu
fjallað um VIP Club, en í umfjöllun
Grapevine og fréttastofu Stöðvar
2 kom fram að hægt væri að fá
einkadans á klúbbnum fyrir tuttugu
þúsund krónur. Því má vera ljóst að
greiðslur fyrir einkadans hafi farið í
gegnum túristafélagið VIP Travel ehf.
Hélt utan um reksturinn
Kristján Georg Jósteinsson, fram-
kvæmdastjóri VIP Club og eigandi
fyrirtækjanna, staðfestir þetta í sam-
tali við DV, en segir ekkert óeðlilegt
við fyrirkomulagið. Engar upplýs-
ingar fást um fyrirtækið VIP Travel á
veraldarvefnum, en svo virðist sem
ferðaþjónustufyrirtækið haldi ekki
úti neinni heimasíðu.
Aðspurður um hvers vegna velta
kampavínsklúbbsins hafi farið í
gegnum fyrirtæki sem skráð er sem
ferðaþjónustuaðili, segir Kristján
Georg að VIP Travel hafi haldið
utan um rekstur kampavínsklúbbs-
ins þar til nýlega. Nú séu bæði fé-
lög rekin undir félaginu Almitra ehf.
en það félag sér um veitingarekstur,
samkvæmt upplýsingum hjá ríkis-
skattstjóra. „VIP Travel hélt utan um
reksturinn á tveimur hæðum hérna í
Austurstræti 12a. Það er ekkert óeðli-
legt við það.“
Stripp í boði
Blaðamaður Grapevine skrifaði ítar-
lega grein um heimsókn sína á VIP
Club í ágúst síðastliðnum en þar var
því haldið fram að hægt væri að kaupa
ólöglegan nektardans á staðnum fyrir
tuttugu þúsund krónur. Á þeim tíma
fóru allar kredit- og debetkortafærsl-
ur klúbbsins í gegnum VIP Travel, sem
samkvæmt upplýsingum frá ríkisskatt-
stjóra, er skráð sem „önnur bókunar-
þjónusta og önnur starfsemi tengd
ferðaþjónustu.“ Í frétt Stöðvar 2 í vik-
unni sem leið voru spilaðar upptökur
sem staðfestu að einkadans á staðnum
kostar tuttugu þúsund krónur.
Ferðaþjónustufyrirtæki greiða
minni skatta en fyrirtæki í veitinga-
rekstri. Kristján Georg þvertekur fyrir
að hann og eigendur staðarins hafi
látið veltuna fara í gegnum ferða-
þjónustufyrirtæki til að borga lægri
skatta. „Fyrirtæki í ferðaþjónustu
verða að borga skatta af öllum sínum
tekjum. Ef fyrirtæki í ferðaþjónustu
selur mat þá er sjö prósenta virðis-
aukaskattur af því, en ef það selur
áfengi þá verður það að borga 24,5
prósent af því eins og aðrir. Þannig að
það er ekkert sviksamlegt í því.“
„Ekkert óeðlilegt“
VIP Travel var stofnað í maí á þessu
ári og hefur félagið því ekki skilað
neinum ársreikningum. Engar eign-
ir eru skráðar á félagið hjá Fyrir-
tækjaskrá en þar kemur fram að
það sé að öllu leyti í eigu Kristjáns
Georgs.
Aðspurður um rekstur VIP Travel
segir Kristján Georg að hún sé fjöl-
breytt: „Það er til dæmis blaða-
útgáfa, rekstur fasteigna, ferðaþjón-
usta og svo framvegis.“ Hann segir
VIP Travel og VIP Club félög í að-
skildum rekstri, sem nú séu komin
undir einn hatt, Almitru ehf. Nú fari
því allar posafærslur, og þar með öll
velta, í gegnum Almitru ehf. sem sé
leyfishafi að húsinu, Austurstræti
12a, þar sem starfsemin er skráð.
„Þetta eru allt sömu eigendurnir og
sömu aðilar þannig að það er ekk-
ert óeðlilegt í þessu,“ segir Kristján
Georg í samtali við DV. n
„VIP Travel hélt
utan um rekstur-
inn á tveimur hæðum
hérna í Austurstræti 12a.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Annað félag Velta kampavíns-
klúbbsins VIP Club fór að mestu í
gegnum félag sem skráð er í ferða-
þjónustu, þar til nýlega. Mynd REutERS
einkadans
í gegnuM
túristafélag
Biðstofu breytt
í skrifstofu
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra réð til sín nýjan að-
stoðarmann á dögunum, Sunnu
Gunnars Marteinsdóttur. Að-
stoðarmenn utanríkisráðherra eru
því orðnir tveir talsins, en Margrét
Gísladóttir var ráðin til starfans í
byrjun sumars. Þær eru báðar á
þrítugsaldri.
Svo virðist sem lítið pláss hafi
verið fyrir nýjan aðstoðarmann
ráðherrans í húsnæði utanríkis-
ráðuneytisins og því var brugð-
ið á það ráð að breyta biðstofu
ráðuneytisins í skrifstofu. Þetta
staðfestir Urður Gunnarsdóttir,
upplýsingafulltrúi utanríkisráðu-
neytisins, í samtali við DV: „Í til-
felli annars aðstoðarmanns ráð-
herra var biðstofa færð til og gerð
skrifstofa úr gömlu biðstofunni.“
Á meðal þess sem keypt var í nýja
skrifstofu aðstoðarmannsins var
nýtt skrifborð, að sögn Urðar.
Ákvæði um auglýsingaskyldu
í lögum um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins eiga ekki við
um ráðningu aðstoðarmanna.
Sunna Gunnars, sem er 29 ára, er
með BA-gráðu í almanntengslum
en Margrét Gísladóttir, sem er 26
ára, er með diplómu í sama fagi.
Aðstoðarmenn ráðherra heyra
beint undir ráðherra og gegna
störfum fyrir hann svo lengi sem
ráðherra ákveður. Aðstoðarmenn
ráðherra fá sömu laun og skrif-
stofustjórar, eða 715.235 krónur á
mánuði. Hvorki náðist í utanríkis-
ráðherra né aðstoðarmenn hans
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
VIP Club Eigandi staðarins segir að bæði félög séu nú rekin undir félaginu Almitra ehf.