Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Blaðsíða 34
34 Fólk 18.–20. október 2013 Helgarblað Guð sé tilbúinn í að mismuna nein­ um. Hann elskar alla, alltaf og skil­ yrðislaust. Hann er endalaus kær­ leiksorka sem klárast aldrei.“ Pólitísk gleðiganga Páll Óskar fagnar þeim skilaboðum sem Gleðigangan sendi frá sér í ár með því að mótmæla aðgerð­ um Pútíns í garð samkynhneigðra. „Gleðigangan núna var akkúrat svona 50/50 pólitík og partí. Þessi ganga hefur alltaf haft pólitískan undirtón varðandi mannréttindi. Ég er ekki hissa á að hún sé að verða sterkari og bragðmeiri vegna þess að undanfarin 3–4 ár þá hefur dunið á okkur fréttaflutningur víðs vegar að úr heiminum sem hefur gjörsam­ lega gengið fram að manni. Til dæm­ is þessi lagasetning í Rússlandi þar sem er bannað að flagga samkyn­ hneigð. Þar með er Pútín búinn að gefa út veiðileyfi á samkynhneigða og gegndarlaust ofbeldi og kúgun á þessu fólki,“ segir Páll Óskar og segir myndskeið af ofbeldi í garð samkyn­ hneigðra í Rússlandi hafa verið eins og hnífsstunga í hjartað. „Það eru bara mörg korn búin að fylla mælinn núna, mjög oft.“ Gengisfelling á friðarverðlaunum Páll Óskar segist eiga bágt með að átta sig á því hvernig Pútín gat verið tilnefndur til friðarverðlauna Nóbels. „Ég skil það bara ekki. Þetta er bara gengisfelling á Nóbelsverðlaunun­ um. Ég skil ekki einu sinni konseptið, fyrir hvað er hann að fá friðarverð­ laun? Mér fannst reyndar líka fríkað að Barack Obama fengi friðarverð­ laun eftir svo stuttan tíma í starfi, með styrjaldarátök á þröskuldinum í Hvíta húsinu.“ Baráttu samkynhneigðra ekki lokið „Mér finnst ákaflega bagalegt að sumt fólk haldi virkilega að réttinda­ barátta samkynhneigðra sé toppuð þegar að við erum búin að fá öll laga­ leg réttindi sem gagnkynhneigt fólk hefur alltaf haft. Bara af því að okk­ ur er nú leyfilegt að ganga í hjóna­ band sé barátta samkynhneigðra loksins lent. Ég er bara einn af þeim hommum sem hafa engan áhuga að fara í fara í hjónaband. z. Mál­ ið er að mér finnst réttindabarátta samkynhneigðra ekki ganga út á umburðarlyndi. Við erum að krefjast samþykkis – ekki umburðarlyndis. Það er stór munur á umburðarlyndi og samþykki. Ég er allavega búinn að fá upp í kok af setningum sem hefjast á þessum orðum: Sko ég hef ekkert á móti samkynhneigðum en …“ Hjónaband fjarlægt Rómantíkin er Páli Óskari fjarlæg um þessar mundir en hann er einhleyp­ ur sem stendur og segist því lítið velta hjónabandi fyrir sér. „Fyrst og fremst þá þarf ég að eignast kærasta áður en ég get eitthvað farið að spá í hvort ég vilji gifta mig,“ segir Páll Óskar og skellir upp úr. „Ég er ennþá á lausu þannig að það er ekki tíma­ bært að ræða hjónaband. Ég myndi ekki pæla í hjónabandi fyrr en eft­ ir 5–7 ár í sambandi. Ég hef séð fólk hlaupa inn í kirkju og gifta sig án þess að hafa nokkra innistæðu fyrir því. Að sama skapi hef ég séð fólk gifta sig eftir 10 ára samband og þá samgleðst maður svo innilega því pari og öllum árunum sem eru á undan gengin og krossa putta fyrir framtíðinni.“ Mörg hundruð kúkableyjur Páll Óskar segist hafa tekið út sinn skammt af kúkableyjum á uppeldis­ árunum og sé lítið spenntur fyrir barneignum í dag eins og er. „Ég er yngstur af sjö systkinum og var lát­ inn passa öll barnabörnin þegar systur mínar og bræður fóru að eign­ ast börn. „Ég er nú þegar búinn að skipta á mörg hundruð kúkableyjum og ég held að ég hafi bara hreinlega fengið nóg. Ég hef ekki þessa þörf sjálfur akkúrat núna að eignast börn. Bara alls ekki. En tökum hlutina í réttri röð. Ef ég hitti einhvern gaur sem er frábær og ég vil verja restinni af ævi minni með, hvað veit mað­ ur? Svo er það líka hitt, á meðan ég er svona einn ætla ég ekki að fara að ala upp barn. Það væri bilun, ég myndi aldrei gera það! Það yrðu að vera tveir á heimilinu. Kannski eign­ ast ég kærasta sem á börn nú þegar. Ég hef séð það gerast. Ég ætla fyrst að ganga út, tékka svo á hvernig gaurinn er samanskrúfaður. Athuga svo hvort hann vilji eignast börn eða ekki, ég meina kannski viljum við það bara ekki. Svo skulum við tala um brúð­ kaup eftir tíu ár. En eins og staðan er hjá mér núna hef ég ekki áhuga á því,“ segir Páll Óskar sem er að von­ um þétt bókaður í sinni vinnu. Samstarfið með Moniku „Við bara smellpössum saman og rekum fyrirtækið saman, eitthvað sem við höfum bæði ofboðslega gaman af. Ég get sko lofað þér því að þetta er mjög vel rekið fyrirtæki. Það sleppur ekkert í gegnum smá­ sjána hjá Moniku,“ segir Páll Óskar og brosir. „Við kynntumst árið 2001 þegar Hreiðar Ingi Þorsteinsson tónskáld kynnti okkur. Við þekktum hann bæði og hann langaði til að halda tónleika þar sem hans eigin lög yrðu flutt og hann stakk upp á því við myndum taka nokkur lög eftir hann. Þarna var sleginn einhver hljómur sem við fíluðum bæði mjög vel, við höfum unnið mjög mikið saman síð­ an og höfum haldið nokkra sitjandi tónleika sem er alltaf jafn gaman. Við verðum með jólatónleika ásamt strengjakvartett í Háteigskirkju 5.–8. desember og ég held að miðarnir séu bara rétt að fara í sölu.“ Fótbrotnaði á sviði Böllin hafa gengið slysalaust fyrir sig í gegnum tíðina að sögn Páls Óskars en hann man þó sérstaklega eftir einu atviki. „Þetta var í fyrsta sinn sem ég steig inn í Sjallann á Akur­ eyri, svona 1991 eða 1992, og þar var hljómsveit sem heitir Svartur pipar og Margrét Eir var þar söngkonan. Hún togaði í mig og við náðum að syngja eitt eða tvö lög saman, óæfð, uppi á sviði. Í hasarnum þá kom ein­ hver og togaði í buxnaskálmina mína sem varð til þess að ég hrundi niður af sviðinu, lenti mjög illa og ég var mjög kvalinn í rútunni með Svarta piparnum alla leiðina til Reykjavík­ ur. Þá kom í ljós að ég var fótbrotinn. Fyrsta heimsóknin á Sjallann á Akur­ eyri endaði á Slysó í Reykjavík. En fall er fararheill því Sjallinn er það hús sem ég hef spilað mest í og við erum tengd miklum tryggðaböndum.“ Harpa ekki fyrir grasrótina Páll Óskar vill sjá meiri fjölbreytni í tónleikahaldi. „Harpa er auðvitað svo mikil höll sem minnir eiginlega meira á flugstöð en tónleikahús. Gallinn við Hörpu er að það er ekki fyrir hvern sem er að fara þarna inn. Bara startkostnaður er svo gríðarlega hár að það er ekki séns fyrir gras­ rótina í íslenskri músík að halda tón­ leika. Ung og upprennandi hljóm­ sveit sem er að stíga sín fyrstu skref kæmist aldrei inn hjálparlaust. Þess vegna er mjög brýnt að það verði opnaður tóneikastaður á borð við Nasa og Faktorý þar sem hægt er að halda tónleika með litlum tilkostnaði fyrir áhorfendahóp á bilinu 300–800 manns. Þetta vantar núna í Reykja­ vík. Harpa þjónar ekki öllum, allra síst grasrótinni.“ Vampírukastali í bígerð Nú þegar hrekkjavakan nálgast er Páll Óskar að undirbúa sérstakt ball á Rúbín sem mun eiga sér stað 2. nóvember næstkomandi en sjálfur segist hann ekki ætla að koma fram á Airwaves í ár. „Þetta verður val­ kostur fyrir þá sem ætla ekki að fara á Airwaves. Ég verð með „halloween partí a´la Palla stæl“. Við erum búin að undirbúa þetta nú þegar og ætl­ um að breyta Rúbín í vampírukast­ ala. Þetta er fullkomið, ég meina staðurinn er hogginn inn í klett og svo eru gullfallegar ljósakrónur hangandi í loftinu, alveg risastórar. Ég ætla bara að vera aðalvampíran og bíta í plöturnar.“ Treður upp fyrir alla þjóðina Páll Óskar fagnar sem fyrr segir 20 ára starfsafmæli frá því að fyrsta sólóplata hans kom út árið 1993. Þá stendur til að endurútgefa sex gaml­ ar plötur af gömlu efni sem hingað til hefur verið ófáanlegt í föstu formi í 15 ár. Það er nokkuð ljóst að vinsæld­ ir poppstjörnunnar hafa hvergi dvín­ að og höfðar tónlist Páls Óskars til breiðs hóps í þjóðfélaginu. „Það má vel vera að ég sé undantekningartil­ felli í þessum íslenska veruleika af því að ég fæ tækifæri til að gera svo fjölbreytt gigg. Ég get haldið tón­ leika fyrir sitjandi áhorfendur og líka dansiböll, sem eru tveir gjöró­ líkir markaðir. Stundum hef ég feng­ ið að troða upp fyrir valdamikið fólk og auðmenn Íslands í glæsileg­ um partíum. en daginn eftir er ég að troða upp fyrir þá sem minna mega sín í samfélaginu, kannski aldraða, geðsjúka og jafnvel lítil börn. Ég hef fengið að troða upp fyrir alla þjóð­ ina,“ segir Páll Óskar þakklátur að lokum áður en hann stekkur af stað fyrir næsta tónleikahald. n „Ef ég hitti einhvern gaur sem er frábær og ég vil verja restinni af ævi minni með, hvað veit maður? Páll Óskar Hjálmtýsson „Mér finnst réttindabarátta samkynhneigðra ekki ganga út á umburðarlyndi. Við erum að krefjast samþykkis. Það er stór munur á umburðarlyndi og samþykki.“ Mynd SiGTryGGur Ari Fjölbreytt gigg „Stundum hef ég fengið að troða upp fyrir valdamikið fólk og auðmenn Íslands í glæsilegum partíum, en daginn eftir er ég að troða upp fyrir þá sem minna mega sín í samfélaginu.“ Mynd SiGTryGGur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.