Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Blaðsíða 39
 39Helgarblað 18.–20. október 2013 morð og tvö hús voru tengd við Dennis Nilsen, breskan raðmorðingja og náriðil. Morðin framdi hann á árunum 1978 til 1983. Lík fórnarlamba sinna, ungra karlmanna, geymdi Dennis í ákveðinn tíma áður en hann losaði sig við þau. Morðin framdi hann í húsi við Melrose Avenue í Lundúnum og Cranley Gardens. Hann fékk viðurnefnið Vinalegi morðinginn.16 n Daniele vildi að Anthonia hætti í vændi n Anthonia endaði ævi sína í Pó D aniele Piampaschet dreymdi um að verða rit­ höfundur og það er í sjálfu sér ekki útilokað að sá draumur hans eigi eftir að rætast. Hann ætti í það minnsta að fá næði til skrifa þar sem hann dvelur á bak við lás og slá í fangelsi í Torínó á Ítalíu og hefur gert síðan í ágúst í fyrra. Daniele er grunaður um að hafa orðið Anthoniu Egbuna, tvítugri nígerískri vændiskonu, að bana árið 2011 og kastað líki hennar í ána Pó. Daniele þessi ku hafa hafa sérstakt dálæti á flestu því sem nígerískt er og þá ekki síst um­ ræddri vændiskonu. Kynni höfðu tekist með Anthoniu og Daniele í febrúar 2011 og áður en langt um leið varð Daniele heltekinn af af­ brýðisemi því Anthonia kaus að halda starfa sínum áfram. Sambandi þeirra lauk í ágúst 2011 en að sögn lögreglu fór því fjarri að Daniele hætti að hugsa um Anthoniu og má í ljósi mála­ lykta ætla að áhugi hans hafi að lok­ um tekið á sig óhugnanlega mynd. Ef grunsemdir lögreglunnar eru á rökum reistar þá stakk Daniele Anthoniu til bana í nóvember 2011 og, sem fyrr segir, losaði sig við lík hennar með því að kasta því í Pó. Rósin og ljónið Líkamsleifar Anthoniu fundust ekki fyrr en í febrúar í fyrra og tók það lögreglu nokkra mánuði að bera kennsl á þær. En að því loknu lá beinast við að kanna hvort ein­ hverjar vísbendingar væri að finna í íbúð hennar. Þar datt lögreglan heldur bet­ ur í lukkupottinn því hún fann smásögu; Rósin og ljónið, eftir Daniele Piampaschet. Sagan fjall­ ar um ungan karlmann sem verður ástfanginn af vændiskonu og reyn­ ir sitt ítrasta til að fá hana til að láta af þeirri iðju. En karlmaðurinn hefur ekki er­ indi sem erfiði og þegar hún ögrar honum með því að selja sig „sífellt ógeðslegri“ viðskiptavinum, eins og segir í smásögunni, kyrkir mað­ urinn vændiskonuna og sviptir sig lífi í kjölfarið. Ástfanginn af rangri manneskju Lögreglan fullyrðir að Daniele hafi skrifað söguna og sent Anthoniu til að skaprauna og ögra henni en auk sögunnar vísar lögreglan til yfirlits yfir símanotkun Daniele sem sýn­ ir að hann hringdi í stúlkugreyið oftar en þúsund sinnum. Til að bæta gráu ofan á svart sýna gögn að Daniele var skammt frá heim­ ili Anthoniu og þeim stað sem lík hennar fannst þegar hann hringdi í hana í síðasta skiptið. Sjálfur vísar Daniele Piampa­ schet fullyrðingum lögreglunnar til föðurhúsanna og segir það eina sem hann sé hugsanlega sekur um sé að hafa orðið ástfanginn af rangri manneskju. Smásaga hans, Rósin og ljónið, sé skáldskapur frá upphafi til enda og í reynd lýsing á því sem auðveldlega gæti hent hverja unga konu sem legði stund á jafnhættulega vinnu og vændi er. Eins og í sögu Lögfræðingur Daniele segir að skjólstæðingur hans hafi sent smásöguna til Anthoniu Egbuna til að vekja hrifningu hennar og að ástæðu þess að aðstæður ungu stúlkunnar í sögunni hafi verið Daniele hugleiknar megi rekja til hrifningar hans á afrískri og, eink­ um og sér í lagi, nígerískri menn­ ingu. Daniele Piampaschet heldur því fram að hann hafi bundið enda á samband sitt við Anthoniu þegar hann komst í kynni við aðra níger­ íska konu í ágúst 2011, en viður­ kenndi að hafa haldi sambandi við Anthoniu í gegnum síma allt til þess tíma þegar hún var myrt. Á það hefur verið bent í mál­ inu að því líki svolítið til sögu­ þráðarins í frægri kvikmynd með Sharon Stone í aðalhlutverki, Basic Instinct. Í myndinni er persóna Sharon sökuð um að hafa myrt ást­ mann sinn með íssting – morð­ aðferð sem lýst er í bók sem persóna Sharon hafði skrifað. n „Hún ögrar honum með því að selja sig „sífellt ógeðslegri“ við- skiptavinum Rósin og ljónið Smásagan sem vakti grunsemdir lögreglunnar. Eins og í sögu Daniele Pi- ampaschet Er grunaður um morðið á Anthoniu. Anthonia Eg- buna Var myrt og fleygt í Pó.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.