Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Blaðsíða 21
Fréttir 21Helgarblað 18.–20. október 2013
Hrekkur fór
úr böndunum
Sænsk unglingsstúlka með
hnetuofnæmi var mjög hætt
komin þegar bekkjarfélagi henn-
ar laumaði hnetum út í drykkinn
hennar í skólanum. Lögreglan
er komin í málið sem litið er
grafalvarlegum augum.
Atvikið átti sér stað í mennta-
skóla í bænum Värnamo í suður-
hluta Svíþjóðar. 1.300 nemend-
ur á aldrinum 16 til 19 ára stunda
nám við skólann.
Átti stúlkan mjög erfitt með að
anda fljótlega eftir að hafa tekið
sopa af drykknum. Skömmu áður
hafði stúlkan látið kennara sinn
og bekkjarfélaga vita að hún væri
með svæsið hnetuofnæmi. „Við
tökum þetta mjög alvarlega. Ef
viðkomandi nemandi vissi að
hún væri með ofnæmi þá er þetta
ekkert annað en tilraun til mann-
dráps,“ segir Bernt Ralfnert skóla-
meistari. Það var kennari við
skólann sem hringdi á sjúkrabíl
og var stúlkan flutt mjög hætt
komin á sjúkrahús. Hún hefur nú
náð sér að fullu.
Lifði af Útey en
rekinn úr landi
Þrjátíu og sjö ára karlmanni,
Khaled Ahmed Taleb, hefur
verið vísað úr landi í Noregi.
Ástæðan er sú að hann hefur
játað að hafa sagt ósatt um fortíð
sína þegar hann kom til Noregs
sem flóttamaður fyrir ellefu
árum. Khaled, sem starfað hef-
ur með ungliða hreyfingu norska
Jafnaðarmanna flokksins, var í
Útey þegar hryðjuverkamaður-
inn Anders Behring Breivik hóf
þar skotárás með þeim afleiðing-
um að 69 manns létust. Khaled
missti bróður sinn í árásinni.
Hann kom til Noregs árið
2002 og sagðist hafa gert það
til að flýja borgarastyrjöldina í
heimalandi sínu Sómalíu. Fyrr á
þessu ári játaði hann þó að hafa
komið frá hinu tiltölulega frið-
sæla ríki Djíbútí sem á landa-
mæri að Sómalíu í norðvestri. Þá
játaði hann að vera fjórum árum
eldri en hann sagðist vera. Eft-
ir að upp komst um svikin sagði
hann sig frá starfi í þágu jafnað-
armanna og var í maí síðastliðn-
um dæmdur í fjögurra mánaða
fangelsi. Nú hefur honum verið
gert að yfirgefa Noreg. Enn á eftir
að taka ákvörðun um hvort for-
eldrar Khaleds og tveir bræður
hans hljóti sömu örlög, en eftir
að hann kom til Noregs aðstoð-
aði hann þau við að komast
þangað.
Háskólanemar
neyddir til vinnu
n Stórfyrirtækið Foxconn vekur enn deilur n Lofar bót og betrun
E
nn eitt hneykslismálið hefur
nú komið upp varðandi vinnu-
aðstæður í verksmiðjum stór-
fyrirtækisins Foxconn í Kína.
Samkvæmt frétt kínversku
fréttaveitunnar Dongfang Daily voru
yfir þúsund kínverskir háskólanem-
ar skyldaðir til að vinna í verksmiðju
Foxconn við að búa til PlayStation 4
leikjatölvur í ár. Sem kunnugt er kem-
ur leikjatölvan í verslanir undir lok
ársins.
Samkvæmt fréttinni var nemend-
um hótað að þeir yrðu ekki útskrif-
aðir úr skólanum ef þeir ynnu ekki í
tvo mánuði í verksmiðjunni. Starfinu
var lýst sem „reynslu- og þjálfunar-
starfi“ en nemendur fengu sömu
laun greidd og aðrir starfsmenn verk-
smiðjunnar, 1.600 júan á mánuði,
eða um 30.000 krónur.
„Gripið var samstundis til aðgerða
til að láta skólann fara algjörlega
eftir reglum okkar,“ segir talsmað-
ur Foxconn, sem segir að fyrirtækið
hafi látið gera úttekt á vinnuaðstæð-
um. Hún leiddi í ljós að nemendur
hefðu unnið yfirvinnu og næturvakt-
ir, sem sé í ósamræmi við reglur fyrir-
tækisins. Þá bætti talsmaðurinn við
að nemendur mættu hætta í starfinu
hvenær sem væri samkvæmt reglum
fyrirtækisins.
Stærsti atvinnuveitandi Kína
Foxconn, sem framleiðir meðal
annars vörur fyrir Apple, er stærsti
atvinnuveitandi Kína en yfir milljón
manns starfa fyrir fyrirtækið. Þetta er
langt frá því að vera í fyrsta skipti sem
Foxconn vekur deilur vegna vinnuað-
stæðna í verksmiðjum fyrirtækisins.
Þónokkrir starfsmenn hafa framið
sjálfsmorð í verksmiðjum þeirra á
síðustu árum og í fyrra hófst verkfall
í einni verksmiðju þar sem þúsundir
óánægðra starfsmanna gengu út.
Þá ásökuðu kínversk launþega-
samtök fyrirtækið í fyrra um að neyða
háskólanemendur til að búa til iPho-
ne-síma í verksmiðjum þess. Tals-
menn Foxconn sögðu þá sama hlut-
inn – að nemendur mættu hætta í
starfinu að vild. „Foxconn hefur lengi
átt í samstarfi við nokkra iðnháskóla í
Kína,“ sagði talsmaður fyrir tækisins í
svari við þessum ásökunum og bætti
við að allir nemendurnir væru á lög-
legum vinnualdri.
Leikjatölvufyrirtækið Nintendo
staðfesti hins vegar í fyrra eftir rann-
sókn sína að Foxconn hefði fengið
starfsmenn undir löglegum vinnu-
aldri til að starfa í verksmiðjum fyrir-
tækisins við að framleiða Wii U-
leikjatölvuna.
Aukin eftirspurn eftir vinnufólki
Í fyrra óskaði Apple eftir því að út-
tekt yrði gerð á aðstöðu starfsmanna
í verksmiðjum Foxconn í Kína.
Skýrslan, sem sagði að „raunveru-
leg umbreyting stæði nú yfir“ var
harkalega gagnrýnd af Economic
Policy Institute-samtökunum, sem
berjast fyrir réttindum láglauna-
fólks. Í skýrslu EPI sagði að verk-
smiðjur Foxconn stæðust ekki reglur
um vinnustaðaöryggi, að fyrirtækið
borgi stundum ekki starfsmönnum
og neyði þá til að vinna aukavinnu.
Samkvæmt stofnanda Foxconn,
Terry Gou, hefur fyrirtækið átt í erfið-
leikum seinustu ár með að finna
starfsmenn til að vinna í verksmiðj-
um sínum. „Unga kynslóðin vill ekki
vinna í verksmiðjum, hún vill vinna
þjónustu- og upplýsingastörf eða
önnur létt og afslöppuð störf,“ sagði
hann í viðtali við Financial Times
í síðustu viku. „Margir starfsmenn
færa sig nú um set yfir í þjónustu-
geirann. Í framleiðslugeiranum er
eftirspurnin eftir vinnufólki orðin
meiri en framboðið.“ n
Þórður Ingi Jónsson
blaðamaður skrifar thordur@dv.is
Mótmæli Vinnuað-
stæðum verkamanna frá
Foxconn og Apple í Hong
Kong mótmælt árið 2011.„Gripið var sam-
stundis til aðgerða
til að láta skólann fara
algjörlega eftir reglum
okkar.
Foxconn
Fyrirtækið
framleiðir
meðal annars
PlayStation
4-leikjatölv-
urnar fyrir
Sony.
„Ótrúlegur stuðningur“
n Gengilbeina varð fyrir kynþáttahatri í vinnunni
T
oni Christina Jenkins, nítján
ára gengilbeina hjá Red Lob-
ster-veitingahúsakeðjunni í
Bandaríkjunum, fékk óvæntan
glaðning á dögunum eftir að mynd
sem hún birti á Facebook fór sem
eldur í sinu um netheima.
Myndin var af kvittun sem við-
skiptavinur veitingastaðarins hafði
skilið eftir, eða öllu heldur skila-
boðunum sem viðskiptavinurinn
skildi eftir. Á miðanum var farið niðr-
andi orðum um hörundslit Christinu
og tekið skýrt fram að hún fengi ekki
krónu í þjórfé – væntanlega vegna
hörundslitar hennar.
Atvikið sem um ræðir átti sér
stað í september síðastliðnum
og vakti birting hennar á kvittun-
inni mikla athygli. Svo fór að hópur
einstaklinga, undir forystu Matthew
Hanson, stofnanda vefsíðunnar
Addictinginfo.org, hóf söfnun svo
Christina fengi veglegt þjórfé fyrir
að þurfa að þola niðurlægingu við-
skiptavinarins. Markmiðið var að
safna 10 þúsund dölum, 1,2 millj-
ónum króna, á 30 dögum. En aðeins
72 klukkustundum eftir að söfnunin
hófst hafði markmiðinu verið náð.
Þó svo að sagan hafi endað vel
var Christinu vikið frá störfum fyrir
að birta mynd af kvittuninni á Face-
book. Hún hefur nú verið ráðin aftur
til starfa.
„Ég hélt í raun að fólki yrði alveg
sama þar sem hlutir sem þessir ger-
ast á hverjum degi um allan heim. En
ástin og stuðningurinn sem ég hef
fengið er ótrúlegur,“ hefur Huffington
Post eftir þessari nítján ára stúlku. n
einar@dv.is
Niðrandi Á miðan-
um var farið niðrandi
orðum um Christinu.