Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Síða 32
É
g hef sjaldnast fengið einhver
gríðarleg laun fyrir plöturnar
sem ég hef gefið út. Tekjurnar
mínar hafa nær alltaf komið
af spilamennsku og tónleika-
haldi. Þetta er íslenskur veruleiki,“
segir Páll Óskar sem hefur gefið út
sitt eigið efni frá árinu 1995.
Milljónir í myndbönd
Páll Óskar segist koma tónlist sinni á
framfæri með áhugaverðum mynd-
böndum í stað þess að gefa út og
auglýsa smáskífur. „Ég kýs frekar að
gera frekar dýr og flott músíkvídeó
og eyði í það kannski 2–3 miljónum.
Þetta er sami peningurinn og maður
myndi hvort eð er eyða í auglýsingar
fyrir eina fyrirferðarmikla plötu.
Myndbandið á Youtube kemur í stað
smáskífu. Öllum er frjálst að horfa og
hlusta á myndbandið og sumir eru
að umbreyta því yfir í mp3-skrá og
deila þannig efninu áfram. Ég segi
ekkert við því, fólk má dreifa smá-
skífunum eins og því sýnist. Þarna er
smáskífan að sinna hlutverki sínu, og
það hafa aldrei verið neinar tekjur af
smáskífum á Íslandi hvort sem er.“
Setur mörk
Páll Óskar segist ekki setja nýjar
plötur í ókeypis dreifingu á netinu.
„Þar set ég mörkin því að þarna er
verið að hafa af mér tekjur sem ég
þarf á að halda til þess að stóra platan
gangi upp. Platan verður að fá frið til
að seljast á íslenskum markaði, hvort
sem það er á föstu formi eða gegnum
löglegar tónlistarveitur á netinu. Ég
verð að fá peninginn til baka af plöt-
unni sem ég er að gera svo að verk-
efnið borgi sig upp. Annars vita allir
hvernig fer, fyrirtækið mitt mun fara
á hausinn. Aftur á móti get ég sagt
það að þegar að platan er búin að
borga sig upp, þá er mér alveg sama
hvað verður um hana í kjölfarið. Þá
má hún mín vegna fara inn á netið
og fólk má deila og dreifa eins og því
sýnist,“ segir Páll Óskar og bendir á
að allt gamla efnið hans sé aðgengi-
legt á vefnum.
Smáskífumarkaður á Youtube
Þekkt er að myndbandavefurinn
Youtube geri skriflegan samning
við stærstu útgefendurna í heimin-
um sem fái því þóknun fyrir áhorf á
Youtube-reikningum sínum. „Miley
Cyrus fær feitan pening fyrir að hafa
slegið met í áhorfi á Youtube fyrir
lagið Wrecking Ball. Það er ljóslif-
andi smáskífumarkaður þarna beint
fyrir framan nefið á okkur á hverjum
degi,“ segir Páll Óskar en við vinnslu
viðtalsins er áhorf á Wrecking Ball
komið upp í 233 miljónir. „Hún hlýt-
ur að geta keypt sér mínipils fyrir
þann pening á meðan íslenski tón-
listarmaðurinn er að spá í hvernig
hann geti borgað símareikninginn.
Ef forráðamenn Youtube myndu
nenna að borga fólki á Íslandi ein-
hverja pínulitla þóknun fyrir það
streymi sem er í gangi þá væri kom-
inn smáskífumarkaður á Íslandi með
tekjum,“ segir Páll Óskar sem bendir
á að lagið Leyndarmál, með Ásgeiri
Trausta, sé til að mynda með 540.000
í spilun.
Halar sjálfur niður
Páll Óskar segist sjálfur hala niður
efni fyrir dansgólfið. „Málið er svo
sannarlega ekki svart eða hvítt frá
mínum bæjardyrum séð. Þegar glæ-
nýtt efni kemur á markaðinn sem ég
veit að verður beðið um á ballinu í
kvöld þá þarf ég stundum að „down-
loada“ því ef efnið er ekki aðgengilegt
með öðrum hætti,“ segir Páll Óskar
og nefnir þar remix af vinsælum lög-
um sem aðrir plötusnúðar hafi skellt
á netið. „Mér finnst stundum re mixið
miklu flottara en frumútgáfan og það
er hvergi fáanlegt í heiminum af því
að plötusnúðurinn setti það sjálf-
ur inn á netið. Plötusnúðurinn gef-
ur mér þetta remix með því að setja
það þarna inn og um leið er hann er
að auglýsa sjálfan sig. Ég umbreyti
síðan svona Youtube-skrám með re-
mixinu í mp3 og spila á böllum án
þess að skammast mín. Vegna þess
að þessi mix eru hvergi til sölu hvort
eð er. Það er engin önnur leið að
nálgast þetta. Plötusnúðarnir fá síð-
an stærri og stærri gigg til að spila á
eftir því sem eftirspurnin eykst og ef
þeir sanna getu sína á þennan hátt.“
Nörd með söfnunaráráttu
„Ég vil ekki hala niður bíómyndum
og breiðskífum inn á harða diskinn
hjá mér. Ég kaupi þetta allt. Nýjar
kvikmyndir kaupi ég á blu-ray, göml-
um bíómyndum safna ég á filmum
sem ég finn á eBay, rétt eins og ég
kaupi nýja tónlist á geisladiskum og
eldri á vínyl.
Oft fylgir því stemning að hlusta
á tónlist beint af vínylplötum eða
horfa á kvikmynd beint af filmu.“ Páll
Óskar segist eiga stórt filmusafn með
uppáhaldskvikmyndunum sínum.
„Ég er bæði nörd og safnari. Ég á allar
uppáhaldsmyndirnar á filmu. Ég get
lofað þér því að söfnunaráráttan fer
ekki neitt. Ef þú ert safnari þá þarftu
að sætta þig við það,“ segir Páll Óskar
í léttum dúr.
Snarkið í nálinni
„Ég vil hlusta á Dusty Springfield-
plöturnar mínar beint af vínyl, ég
vil heyra snarkið þegar nálin snert-
ir vínylinn, það er ákveðin stemning
sem fylgir þessu. Ég vil vera með tólf
tommu plötuumslag fyrir framan mig
og spá í útlitið og lesa textana. Þetta er
mun dýpri upplifun en að hala plöt-
unni niður í tölvunni heima hjá sér og
hlusta á hana þar,“ segir Páll Óskar og
segir markaðinn hafa uppgötvað nýjan
markhóp í nördunum. „Það er gert í
því núna að endurútgefa gamlar plötur
og bíómyndir í eins flottum gæðum
og hægt er með aukaefni í stálboxum.
Vegna þess að nörd eins og ég elskar
einhverja bíómynd, eins og Barbar-
ellu með Jane Fonda, þá kaupi ég bíó-
myndina aftur næst þegar hún kemur
á einhverju öðru formi. Nördin munu
halda lífi í fasta forminu.“
Hátíð vonar
Mikil umræða fór af stað í samfé-
laginu í kjölfarið á Gleðigöngunni og
Hátíð vonar nú í haust og segist Páll
Óskar ekki hafa viljað tjá sig um mál-
ið á sínum tíma. „Ég ákvað að sitja
hjá og fylgjast með Samtökunum ´78
og því teymi taka þá umræðu. Ég ætl-
aði hins vegar að skrifa biskupi bréf
til að ítreka að svona hatursorðræða í
garð minnihlutahóps varðar við lög á
Íslandi. Þetta er löngu neglt í stjórn-
arskrá okkar Íslendinga. Mér finnst
það alvarlegt mál þegar biskup á veg-
um íslensku Þjóðkirkjunnar kemur
og leggur blessun sína yfir samkundu
þar sem stjarnan á auglýsingaskiltinu
rígheldur í sinn úrelta haturs áróður
gegn samkynhneigðum, og bend-
ir svo með puttanum á Biblíuna og
segir að Guð hafi sagt honum að
segja þetta. Pottþétt fjarvistarsönnun
fyrir eigin fordæmingu. Í rauninni
væri biskupinn þá að leggja bless-
un sína yfir lögbrot,“ segir Páll Óskar
sem segist hafa hætt við að senda
bréfið þegar biskup Íslands ákvað
sjálf að koma með yfirlýsingu. „Hún
tók þennan góða fund með tilætl-
uðum ræðumanni á hátíðinni og
gerði honum grein fyrir því að hann
væri staddur á landi þar sem réttindi
samkynhneigðs fólks eru mjög langt
á veg komin og að fyrirhugaður mál-
flutningur væri flestum landsmönn-
um hreinlega framandi. Ég segi
„thumbs up“ fyrir henni.
Partur af sköpunarverkinu
En hvaða afstöðu hefur Páll Óskar
gagnvart trú almennt. Trúir hann
sjálfur á Guð? „Ég er bara á fullu að
trúa á æðri mátt. Þú mátt alveg kalla
hann Guð ef þú vilt. Ég hef ekki þörf
fyrir það að fara í kirkju til að öðlast
andlega vakningu. Ég upplifi and-
lega vakningu um leið og ég vakna
á morgnana. Mér finnst svo mikið
kraftaverk að það sé kominn nýr
dagur. Svo fer ég fram úr rúminu. Þá
þakka ég fyrir að geta staðið í lapp-
irnar, því það er til fullt af fólki sem
getur það alls ekki. Svo þakka ég fyrir
það að ég sé heill heilsu, hafi vinnu,
geti unnið hana, eigi eftir að borða í
dag og geti borgað reikningana mína.
Það eru of margir í þessum heimi
sem geta ekki gengið að þessu öllu
vísu. Ég kem auga á Guð alls staðar.
Ég er bara einn lítill punktur af öllu
sköpunarverkinu og það er yndis-
leg tilfinning. Ég trúi því að Guð búi
í hjörtum fólks en ekki í kirkjum. Ég
er langt frá því að vera bókstafstrúar-
maður. Guð er fullkomlega persónu-
leg upplifun mín. Mín eigin útgáfa
af honum. Ég trúi því ekki að
„Ég hef engan áhuga
á því að eignast börn“
32 Fólk 18.–20. október 2013 Helgarblað
Tuttugu ár eru liðin frá því að skærasta poppstjarna
Íslands, Páll Óskar Hjálmtýsson, gaf út fyrsta
sólódiskinn sinn Stuð, sem kom út árið 1993. Páll Óskar
hefur átt glæstan feril og í dag lifir hann af tónlistinni
þótt einu sinni hafi hann komist í hann krappan og
gjaldþrot vofað yfir. Svala Magnea Georgsdóttir
ræddi við Pál Óskar um bransann, ástina og réttindi
samkynhneigðra.
Svala Magnea Georgsdóttir
blaðamaður skrifar svala@dv.is
„Ég er bara einn lít-
ill punktur af öllu
sköpunarverkinu og það
er yndisleg tilfinning. Ég
trúi því að Guð búi í hjört-
um fólks en ekki í kirkjum.
Vampírukastali í bígerð
Páll Óskar verður með hrekkja-
vökuball á Rúbín 2. nóvember.
MYNd SiGtrYGGur Ari