Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.02.2015, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 06.02.2015, Qupperneq 6
6. febrúar 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA ÍSLENSK HÖNNUN 1 par - kr. 1.969 LANDINN ÍSLENSKIR ULLARSOKKAR HLÝIR, ÞÆGILEGIR OG ENDINGAGÓÐIR FÁST LOKSINS Í VERSLUNUM HAGKAUPS SMÁRALIND / SKEIFAN / KRINGLAN SELFOSS / AKUREYRI ORKUMÁL Landsvirkjun hefur hann- að nýjan kost til hliðar við Norð- lingaölduveitu, en hún hefur verið gríðarlega umdeild vegna nálægðar við núverandi friðlandsmörk Þjórs- árvera og áhrifa á fossaröð neðar í ánni. Kjalölduveita, eins og hún er kölluð, er meðal þeirra virkjana- kosta sem Orkustofnun sendi inn til verkefnastjórnar 3. áfanga ramma- áætlunar í janúar. Norðlingaöldu- veita er á sínum stað meðal þeirra virkjanakosta sem sendir voru verk- efnisstjórninni, en með þeirri breyt- ingu þó að verkhönnuninni hefur nú verið breytt þannig að lónið hefur verið lækkað frá því sem það áður var. Á gögnum Orkustofnunar sést að Kjalölduveita er sett fram sem val- kostur við Norðlingaölduveitu, en þar segir orðrétt: „Kjalölduveita getur komið í stað Norðlingaöldu- veitu en hagkvæmni er minni […] Þannig er lón veitunnar fært neðar í Þjórsá frá friðlandsmörkunum og flatarmál lónsins lækkað niður í 55% af því sem áður var fyrirhug- að með Norðlingaölduveitu.“ Stefán Gíslason, formaður verk- efnisstjórnar rammaáætlunar, seg- ist lítið geta sagt um þessar hug- myndir. Hann hafi aldrei heyrt á Kjalölduveitu minnst fyrr en verk- efnastjórn barst listi Orkustofnun- ar á dögunum. Spurður hvort fjallað verði um Kjalölduveitu á þeim tíma sem er til að dreifa, en skila á ráð- herra tillögum um flokkun virkj- unarkosta á næsta ári, segir Stef- án: „Sé þetta ný hugmynd eða mjög breytt útfærsla á Norðlingaöldu- veitu verður væntanlega fjallað um þetta. Annars ekki.“ Í skriflegu svari Landsvirkjunar kemur fram að báðar tillögurnar, Norðlingaölduveita og Kjalölduveita, Nýr virkjunarkostur í stað Norðlingaöldu Landsvirkjun hefur kynnt tvær nýjar hugmyndir frá 2. áfanga rammaáætlunar – breytta Norðlingaölduveitu og Kjalölduveitu. Báðar hugmyndirnar þýða lægri lónhæð og minni umhverfisáhrif, segir Landsvirkjun. ÞJÓRSÁRVER Svæðið hefur verið bitbein um áratuga skeið vegna hugmynda um orkunýtingu og verndarsjónarmiða. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Tilgangur Kjalölduveitu er að veita vatni úr Þjórsá yfir í Þórisvatn til að auka orkuframleiðslu raforkukerfisins. Þjórsá er stífluð norðvestan við Kjalöldur, en mesta hæð Kjalöldustíflu er 28 metrar. Þar myndast lón er nefnist Kjalöldulón með yfirfallshæð 555 metra yfir sjávarmáli. Stærð lónsins er að jafnaði um 2,7 ferkílómetrar. Vatni er miðlað í Þórisvatn þaðan sem það rennur í gegnum allar virkjanir neðar á Tungnaár-Þjórsár- svæðinu sem gefa þar með 44 megavött til viðbótar. Í nóvember 2004 var lokið við verkhönnun Norðlingaölduveitu fyrir lónhæð 566-567,5 metra yfir sjávarmáli. Með Kjalölduveitu er lónið fært neðar í ána frá friðlandsmörkum og lækkað niður í vatnsborðshæð 555 m yfir sjávarmáli en þá minnkar flatarmál þess niður í 55% af því sem áður var fyrirhugað að vetrarlagi við 567,5 m yfir sjávarmáli. KJALÖLDUVEITA MYNDI GEFA 44 MEGAVÖTT NEYTENDAMÁL Síminn hefur beðist velvirðingar á framsetningu auglýs- ingar sinnar í kjölfar þess að Fjar- skipti hf., móðurfélag Vodafone, sendi Neytendastofu í gær kvörtun vegna auglýsingar Símans. Í kvörtuninni var kvartað undan útvarpsauglýsingu Símans þar sem fullyrt er að Vodafone hafi slökkt á hliðrænum útsendingum RÚV og að 70,6% landsmanna segi Sjónvarp Símans standa helsta keppinautn- um, Vodafone, framar. Í kvörtun Fjarskipta kom fram að fullyrðingar í auglýsingu Sím- ans séu rangar og villandi. Jafn- framt kemur fram í kvörtuninni að fullyrðinguna beri að banna og að Síminn hafi gerst brotlegur við lög. Í tilkynningu frá Símanum sem fylgdi í kjölfarið kemur fram að mistök hefðu verið að vísa til 70,6% landsmanna heldur hefði átt að vísa til viðmælenda í skoðanakönnun gerðri fyrir Símann. Í tilkynningu biðst Síminn velvirðingar á fram- setningunni og mun breyta auglýs- ingunum. - srs Viðurkenna að hafa haft uppi rangar fullyrðingar í útvarpsauglýsingum: Síminn sér eftir auglýsingum SÍMINN Síminn mun breyta framsetn- ingu auglýsinga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FLJÓTSDALSHÉRAÐ Hallormsstaða- skóli verður ekki starfræktur frá og með næsta hausti. Fram kom í bæjarstjórn Fljóts- dalshéraðs þar sem ákvörðun um þetta var tekin að þrátt fyrir að Hallormsstaðaskóli eigi farsæla sögu frá árinu 1967 hefði börnum í skólahverfinu fækkað stöðugt og sum þeirra sæki aðra skóla. „Nemendur Hallormsstaðaskóla fylla á skólaárinu 2014-2015 aðeins einn tug. Þar sem ekki eru vísbend- ingar um breytingar á þessari þróun er það mat þeirra sem að skólanum standa, það er sveitar félaganna Fljótsdalshéraðs og Fljótsdals- hrepps, að ekki séu lengur forsend- ur fyrir að skólahaldi í Hallorms- staðaskóla verði haldið þar áfram,“ segir í bókun bæjarstjórnar. „Maður getur ekki varist því að hugsa út í það hvort bæjaryfir- völd hér hafi með einhverjum hætti brugðist skólanum og íbúum á svæðinu,“ sagði Stefán Bogi Sveinsson, einn fulltrúa minni- hluta Framsóknarflokks, þegar bæjarstjórn ræddi málið. - gar Endi bundinn á sögu barnaskóla í Hallormsstað í haust eftir 48 ára starf: Of fá börn í Hallormsstaðaskóla HALLORMSSTAÐASKÓLI Nemendum hefur fækkað mjög hratt undanfarin ár. FR ÉT TA BL AÐ IÐ /V AL LI eru nýjar hugmyndir frá 2. áfanga rammaáætlunar og þar tekið tillit til athugasemda verkefnastjórnar- innar. Lónið hefur verið lækkað og við það minnkar flatarmál þess við hæstu rekstrarhæð um nær helm- ing eða í um 53% af því sem áður var fyrirhugað að vetrarlagi, „sem tryggir að Norðlingaölduveita hefur engin áhrif á Eyvafen eða Þjórsár- ver. Kjalölduveita er ný hugmynd og annar valkostur við Norðlingaöldu- veitu, en í þeirri tillögu hefur lónið verið fært um þrjá kílómetra neðar í Þjórsá frá friðlandsmörkum.“ svavar@frettabladid.is SVEITARSTJÓRNARMÁL Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti sam- hljóða í gær að fela bæjarstjóra að taka upp viðræður við ríkið sem miðuðu að því að bærinn fái fullt forræði yfir húsnæði St. Jósefs- spítala. Fasteignir ríkisins aug- lýstu húseignirnar til sölu, en ekki bárust viðunandi kauptil- boð í eignirnar, segir á heima- síðu Hafnarfjarðarbæjar. Í dag er St. Jósefsspítali í Hafnar firði að einum sjötta hluta í eigu bæjarins á móti eignarhaldi ríkisins. - shá Spítalinn selst ekki: Vilja forræði yfir St. Jósefs 1.506 ferkílómetrar lands eru þaktir birkiskógum á Íslandi, eða 1,5% landsins. SVONA ERUM VIÐ VIÐSKIPTI Gildi lífeyrissjóður keypti tíu milljónir hluta í Marel í gær. Miðað við gengi hluta í Marel við lokun markaða, sem var 145 krónur á hlut, er heildarverð- mæti viðskiptanna 1,45 milljarðar króna. Viðskipti með bréf í Marel í Kauphöll Íslands námu í heild 3,7 milljörðum króna og hækkaði gengi bréfa um 0,69 prósent. Marel birti ársreikning í fyrra- dag. Þar kemur fram að tekjur ársins 2014 námu 712,6 milljónum evra, um 107 milljörðum króna, og hækkuðu um 7,7% frá fyrra ári, þegar þær voru 661,5 milljón evra. Hagnaður á árinu 2014 nam 11,7, milljónum evra, eða 1.755 milljón- um króna. Hann var 20,6 milljónir árið á undan. Í afkomutilkynningu kom fram að stjórn Marel myndi leggja til að hluthafar fengju samtals greiddar um 525 milljónir króna í arð. - jhh Gildi keypti bréf í Marel fyrir 1,5 milljarða króna: 3,7 milljarða velta FORSTJÓRINN Árni Oddur Þórðarson var ánægður með síðasta ársfjórðung, enda hefur sala aldrei verið meiri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 F 2 -2 5 B 8 1 7 F 2 -2 4 7 C 1 7 F 2 -2 3 4 0 1 7 F 2 -2 2 0 4 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 6 4 s _ 5 2 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.