Fréttablaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 20
6. febrúar 2015 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 20 Við Íslendingar erum öll saman kóngar. Við búum á eyju, við höfum í fermetr- um meira pláss en flest allir aðrir í heiminum og við erum sjálfhverf. Við tökum pláss, við viljum eiga land- skika, við viljum vera sjálf- stæð. Við viljum vera frjáls. Margir hverjir hafa í áranna rás lofsamað skáldsagna- persónuna Bjart í Sumar- húsum sem setur sjálfstæð- ið og frelsið hærra öllum öðrum gildum, og gengur ansi langt til að ná markmið- um sínum. En hvað kostar þetta frelsi hans? Það kostar manns- líf og það kostar lífsgæði margra, og þá er spurningin, hvaða gildi eiga að koma fyrst? Óskert frelsi og sjálf- stæði, eða mannúð? Margir virðast missa af því að sennilega hefur Hall- dór Laxness skrifað þennan mann með kaldhæðnislegum grunntóni enda missir Bjartur allt sitt. Hugmyndir margra um frelsi tengjast hugmyndum um ameríska drauminn. Ameríski draumurinn varð til á 19. öld með miklum inn- flytjendastraumi til Banda- ríkjanna í leit að betra lífi, þar sem til var gras í haga og möguleikar fyrir flesta, þar sem hægt var að rísa úr fátækt í velsæld með dugn- aði og vinnusemi. Í ameríska draumnum óma orð Sjálf- stæðisyfirlýsingar Banda- ríkjanna frá 1776 um að allir menn séu skapaðir jafnir. Samkvæmt þessum orðum eigum við öll jafna möguleika og getum öll komist jafn langt. En er það í raun svo? Ég vil benda á ástandið í landi ameríska draumsins, Banda- ríkjunum. Stéttaskipting eykst frá ári til árs og það er nær ómögulegt fyrir fátækan einstakling að færast yfir í miðstétt, hvað þá í yfirstétt auðugra. Ameríski draumurinn er þar með molnaður, dauður, grafinn. Samt er hann enn nýttur í pólitískum tilgangi þar sem ríkir vilja enn frekari mögu- leika til að verða ríkari, þar sem þeir vilja deila minna og minna með sér. Og þetta kallast þar „frelsi“. En er það frelsi þegar flestir fæðast inn í samfélagsstétt og halda sig að öllum líkindum þar í gegnum ævina? Þar sem örlög þín ákvarðast við fæðingu? Dr. Martin Luther King jr. sagði að enginn væri frjáls fyrr en allir væru frjálsir, og ég er því sammála. Hvar er hreyfanleikinn sem ameríski draumurinn snýst um? Ef menntun kostar blóðprís mun aðeins yfirstétt- in geta menntað sig og í nútímasam- félagi er menntun nánast nauðsynleg til að komast í áhrifamiklar stjórn- unarstöður og þannig er staðan í Bandaríkjunum. Ef heilbrigðiskerf- ið verður einkavætt mun skapast stéttaskipting í gæðum læknisþjón- ustu, þeir ríku fá betri lækningu en hinir. Er það frelsi, og ef svo er, frelsi hverra? Ég vil skilja á milli tveggja hug- mynda um frelsi. Á milli frelsis til og frelsis frá. Hugmyndin um frelsi til snýst um að hinir ríku fái frelsi til að verða ríkari og gefa minna til sam- félagsins. Frelsi frá snýst um að allar manneskjur njóti frelsis frá fátækt og eymd þar sem allar manneskjur hafa jafna möguleika. Í samfélögum þar sem menntakerfið og heilbrigðis- kerfið er opinbert og niðurgreitt hafa flestar manneskjur möguleika á að færa sig á milli stétta, þar getum við verið jöfn. Svona hefur ástandið verið árum saman í Skandinavíu og því legg ég til að endurnefna ameríska drauminn skandinavíska drauminn. Ísland á tímamótum Ísland er á tímamótum. Fjöldinn allur af ungu fólki vill flytja á brott því það hræðist framhaldið. Marg- ir sem eru nýskriðnir úr námi eru í barneignahugleiðingum og eiga erf- itt með að sjá fyrir sér góða fram- tíð þar sem hagsmunir þeirra rík- ustu fá að ráða öllu. Þetta land þarf þessa kynslóð og hún er á förum. Því miður hefur það verið svo að íslensk- ir kjósendur kjósa með gleraugum ameríska draumsins þá flokka sem munu þjóna þeim þegar þeir kom- ast á leiðarenda í velmegun og ríki- dæmi. Þetta gerir það að verkum að þessi leiðarendi fjarlægist með öruggum takti. Hvort viljum við aukna stéttaskiptingu og aukið bil á milli ríkra og fátækra þar sem hinir ríku verða ríkari og eymdin eykst meðal hinna fátæku eins og í Banda- ríkjunum, eða jöfnuð þar sem allir geta unnið sig upp og látið drauma sína rætast, eins og í Skandinavíu? Það er augljóst hvert ríkisstjórnin stefnir með okkur. Kæri kjósandi, kæri pólitíski kraftur, kæri aktivisti, þetta er í þínum höndum. Hvernig samfélag viltu skapa? Hvað viltu mér með þetta frelsi þitt? SAMFÉLAG Dóra Björt Guðjónsdóttir B.A. í heimspeki og alþjóðafræðinemi við Óslóarháskóla og Freie Universität í Berlín ➜ Ég vil skilja á milli tveggja hugmynda um frelsi. Á milli frelsis til og frelsis frá. Samfélagsleg ábyrgð íslenskra fyrirtækja og stofnana á ekki aðeins að ná til þeirra sem hér búa hverju sinni heldur ber okkur sem einni ríkustu þjóð veraldar einnig að stuðla að framþró- un annars staðar – sér í lagi þar sem neyðin er sárust. Samkvæmt nýrri skýrslu Oxfam á eitt prósent jarðar- búa nálega helming auðs veraldar og tuttugasti hluti á 95 prósent eignanna. Því miður er fátækt enn útbreidd eins og raunin er víða í Afríku. En rannsókn- ir sýna að í baráttunni gegn fátækt bítur menntunin best – með menntun fær fólk tæki til að berjast úr örbirgð til bjargálna. Í viðleitni til að leggja þeirri grundvallarbaráttu lið ræðst Háskól- inn á Bifröst nú í það verkefni að flytja námskeiðið „Máttur kvenna“ út til Tansaníu og veita efnalitlum konum í þorpinu Bashay í Norður- Tansaníu ókeypis menntun. Mark- miðið er að búa þær tækjum til að koma auga á viðskiptatækifæri í nær- umhverfi sínu og færni til að koma þeim í framkvæmd. Rannsóknir sýna ótvírætt að besta leiðin til að draga úr vannæringu barna er að mennta mæður þeirra. Fjölskyldan öll nýtur góðs af atvinnusköpun kvenna, bætir hag heimilisins, veitir aðgang að heil- brigðisþjónustu og umfram allt stuðl- ar að menntun barna sem er lykillinn að árangri til fram- tíðar. Styrkjum konurnar á heimavelli Nálega þúsund íslenskar konur hafa farið í gegnum námskeiðið Máttur kvenna sem Háskólinn á Bifröst hefur haldið úti í áratug en því er ætlað að skóla konur til aukinnar þátttöku í nýsköpun og atvinnuupp- byggingu. Samkvæmt endurmati íslensku kvennanna styrkti nám- skeiðið þær verulega sem einstak- linga, starfsmenn, frumkvöðla og atvinnurekendur. Hlutverk Háskólans á Bifröst er að mennta samfélagslega ábyrga leiðtoga og endurspeglast sú áhersla í Mætti kvenna. Og nú þegar áratug- ar reynsla er komin á þessa aðferð viljum við veita fleirum álíka tæki- færi og prófa verkefnið í Afríku, þótt aðstæður séu vissulega öðruvísi og kennsluna þurfi að laga að háttum heimamanna. Valið á Bashay í Tansaníu kemur til vegna tengsla minna við þorpið. Þar hef ég búið og rekið fyrirtæki í ferðaþjónustu (Tanzanice Farm) sem hefur skapað fjölda starfa fyrir heimamenn. Þau tengsl sem þar hafa skapast nýtast við að ná sem bestum árangri við yfirfærslu verkefnisins. Til að undirbúa fyrsta námskeið- ið í Tansaníu núna í apríl kemur ung kona, Resty, frá Tansaníu til Íslands og dvelur hér í 7 vikur. Hún mun fá handleiðslu hjá kennurum Háskól- ans á Bifröst sem munu kynna fyrir henni verkefnið og aðferða- fræði þess. Resty mun í framhald- inu aðstoða kennarana sem fara til Tansaníu við að miðla námsefninu til kvennanna og taka þátt í hand- leiðslu verklegrar þjálfunar. Þetta skemmtilega verkefni felur í sér sam- starf ólíkra heima, frumkvæði og gagnkvæma virðingu þar sem þátt- takendur munu læra hver af öðrum. Til verkefnisins í Bashay legg- ur Háskólinn á Bifröst fram kenn- ara og umsýslu heima fyrir. En við getum þetta ekki ein. Og leitum því til Íslendinga. Mikilægt er að fá fyrir tæki og einstaklinga til liðs við okkur og styrkja verkefnið. Tanz- anice Farm, Íslandsbanki og Bern- hard Laxdal hafa þegar boðið fram stuðning og við eigum í viðræðum við fleiri góð fyrirtæki. En við vonum að fleiri fyrirtæki og einstaklingar vilji leggja málinu lið. Máttur kvenna til Tansaníu MENNTUN Anna Elísabet Ólafsdóttir aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst ➜ Hlutverk Háskólans á Bifröst er að mennta sam- félagslega ábyrga leiðtoga og endurspeglast sú áhersla í Mætti kvenna. Skattrannsóknarstjóri hefur undanfarið verið áberandi í fjölmiðlum vegna stolinna gagna sem hann hyggst kaupa að utan og geta hugsan- lega upplýst um skatt- svikara sem geyma fé í skattaskjólum þar. Svona fregnir fylla mann bjartsýni á að raunverulega eigi nú að virkja skatteftirlit í land- inu þannig að ekki bara sumir heldur allir standi skil til sam- félagsins á því sem þeim ber. Það vekur hins vegar furðu að skattyfirvöld í landinu skuli ekki sjá skóginn fyrir trján- um í þessum efnum og hefja vinnslu á þeim gögnum sem fyrir liggja á heimavelli áður en farið er að æða til útlanda í leit að skattsvikurum. Emb- ættismenn ríkisins, þ.m.t. þeir sem eiga að fylgja eftir skatt- eftirliti, búa ásamt öðrum að gríðarlegu skattaskjóli innan- lands. Hér er um að ræða dag- peningagreiðslur vegna ferða á vegum vinnuveitenda en heim- ilt er að færa kostnað á móti þeim undan tekjuskattstofni að uppfylltum ákveðnum skilyrð- um og að ákveðnu hámarki sem nemur tugum þúsunda fyrir hvern ferðadag. Meðal skilyrða er að um sé að ræða tilfallandi ferð utan venjulegs vinnustaðar og að um sé að ræða kostnað sem sann- anlega er vegna ferða á vegum vinnuveitanda. Þrátt fyrir þetta líða skattyfirvöld að þeir aðilar sem njóta færi í flest- um tilfellum hámarksfjárhæð til frádráttar án þess að hafa orðið fyrir kostnaði nema að litlu eða engu leyti og njóta því skattfrelsis á þessar greiðslur. Í raun er rangt að kalla þetta skattfrelsi því hér er auðvitað um að ræða undanskot í víðasta skilningi þó þau séu stunduð með vitund og blessun skatt- yfirvalda. Nú hafa skattyfir- völd hnykkt á reglum um þessa hluti og gera þeim einum sem stunda eigin atvinnurekstur að skila inn gögnum í samræmi við frádrátt. Hvers vegna aðilar eru dregnir í dilka hvað þetta varð- ar liggur í augum uppi – sumir eiga að komast upp með það sem öðrum er ekki ætlað og þar hugsa þessir aðilar fyrst og fremst til eigin hagsmuna. Það þarf ekki margar háskóla- gráður til að sjá hvers vegna þessi skattsvik eru látin átölu- laus í ljósi þess hverjir njóta og af hverjum sá samtryggingar- hópur sem þeir tilheyra saman- stendur. Flugliðar í millilanda- flugi njóta þess einnig að fá að stunda þessi skattsvik jafnvel þó ferðir þeirra séu ekki tilfall- andi utan venjulegs vinnustað- ar sem hlýtur eðli málsins sam- kvæmt að vera flugfarið sjálft. Ekki traustvekjandi Er ekki tímabært að skattyfir- völd uppræti hin leyndardóms- fullu skattaskjól innanlands jafnframt þeirri útrás sem nú liggur fyrir? Þingmenn hafa almennt engan áhuga á að beita sér fyrir breytingum á núver- andi fyrirkomulagi enda hegg- ur það í þeirra eigin hagsmuni. Ég átti samtal við formann efnahags- og viðskiptanefnd- ar Alþingis um skattaskjól í útlöndum fyrir nokkru en áhugi hans á upprætingu skatt- svika dó algjörlega þegar sam- talið fór inn á hin innlendu skattaskjól. En verði hin stolnu gögn keypt frá útlöndum, hver á þá að hafa eftirlit með að skatt- yfirvöld grisji ekki úr þeim aðila sem þeim er þóknanlegt að sleppi undan rannsókn? Skattyfirvöld hafa sýnt í verki að þeim er ekki treystandi til að opna slíkar upplýsingar án eftirlits frá almennum þegn- um sem valdir yrðu handa- hófskennt úr Þjóðskrá. Það er ekki beint traustvekjandi að láta ríkisskattstjóra eða skatt- rannsóknarstjóra eina um að opna þessi gögn í einrúmi í ljósi þess hvernig þessir aðilar hafa liðið elítunni í landinu að svíkja undan í gegnum dagpen- ingagreiðslur gegnum tíðina. Hvernig hafa æðstu embættis- menn skattyfirvalda talið fram þær dagpeningagreiðslur sem þeir hafa notið? Hafa þeir fært undan tekjuskattstofni meira en sannanlega er kostnaður, jafnvel hámarksfjárhæð án heimilda? Er ekki rétt að þessir aðilar taki ærlega til í eigin ranni áður en þeir flengjast til útlanda á skattsviknum dag- peningum til að elta uppi aðra skattsvikara? Hin leyndardóms- fullu skattaskjól ➜ Hvers vegna aðilar eru dregnir í dilka hvað þetta varðar liggur í augum uppi – sumir eiga að komast upp með það sem öðrum er ekki ætlað og þar hugsa þessir aðilar fyrst og fremst til eigin hagsmuna. Hvernig má það vera? Hver gerir svona? Stundum gerast greinilega undarlegir hlut- ir og það jafnvel í dómum felldum af dómstólum. Nýlega var byggðasamlagið Sorpa dæmt til að greiða 45 milljóna króna sekt vegna misnotkunar á „markaðs- ráðandi stöðu“. Í lögum um úrgang nr. 55 frá árinu 2003 segir að sveitarfélög skuli sjá um að starfræktar séu söfnunar- og móttökustöðv- ar fyrir allan úrgang sem fellur til í sveitarfélaginu. Heimilt er að gera það í samvinnu við önnur sveitarfélög og einmitt þess vegna var Sorpa stofn- uð fyrir um 25 árum. Sorpa hefur sinnt þessari lög- bundnu skyldu fyrir átta sveitarfé- lög á höfuðborgarsvæðinu, en þau eru nú sjö, eftir sameiningu sveitar- félagsins Álftaness og Garðabæjar. Í úrgangslögum er ekki minnst á samkeppni, heldur er einu stjórn- valdi, sveitarfélögum, gert að stofna og reka þjónustufyrirtæki. Þessu hlýtur að fylgja sú krafa að rekstur þessarar þjónustu sé sem hagkvæm- astur, þjónustuþegum til hagsbóta. Það er því eðlilegt að eigendur þess- arar þjónustuveitu, sveitar- félög, njóti bestu kjara. En sveitarfélög, það erum við, íbúar þessa lands. Við höfum kosið að hafa þetta skipulag. Meðhöndlun úrgangs er ekki bara einhver þjónusta, held- ur grunnþjónusta, sem allir þurfa á að halda. Löggjaf- inn hefur staðfest hlutverk sveitarfélaga með ábyrgðar- ákvæðum í áðurnefndum lögum um úrgang. Svo kom allt í einu Sam- keppniseftirlitið og taldi að Sorpa bryti lög um sam- keppni með því að veita eigendum sínum betri kjör en öðrum. Eðlilega gerði Sorpa athugasemdir við þessa skoðun og var málinu skotið til dóm- stóla. Samkeppni hvað? Ef einum aðila er gert að veita tiltekna þjón- ustu, hvar er samkeppnin? Sam- keppni og markaður ríkja þar sem það á við, og er það vel. Á Íslandi og reyndar víða í veröldinni er sveitar- félögum veitt forræði yfir skipulagi á meðhöndlun úrgangs. Misskilningur Sums staðar, eins og t.d. á Írlandi, hafa menn reynt að hafa meðhöndl- un t.d. heimilisúrgangs „á mark- aði“ eins og það heitir. Hver sem hafði áhuga gat þá keppt við aðra um að fá að taka úrgang og nýta sér til hagsbóta. Það leiddi til ringul- reiðar og verri þjónustu fyrir íbúa og var því breytt og sveitarfélögum veitt forræði yfir skipulagi á með- höndlun úrgangs. Forræði þýðir ekki sjálfkrafa að sveitarfélag geri þetta sjálft. Í höfuðborg Írlands, Dublin, var sorphirðuþjónustan boðin út, en í Reykjavík ákvað borgin fyrir löngu að veita hana og gerir það enn. Í þessu ljósi er það undarlegt svo ekki sé meira sagt, að samkeppnis- yfirvöld og nú dómstóll hér á landi hafi séð samkeppni þar sem hún er ekki fyrirhuguð og hafi úrskurð- að að hefta eigi eðlilegar og hag- kvæmar vinnuaðferðir. Eigum við, íbúar sveitarfélaga á þjónustu- svæði Sorpu, að borga fyrir mis- skilning þessara aðila, ekki bara með dýrari þjónustu heldur með sektargjöldum í ofanálag? Ég vona að þessi skilningur á samkeppni og markaðshugsun breiðist ekki út á kostnað hagkvæmni. Það verður að leiðrétta þennan misskilning sem allra fyrst. Að vera dæmdur fyrir að vinna vinnuna sína – og vinna hana vel! DÓMSMÁL Lúðvík E. Gústafsson starfar hjá Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga og er íbúi í Reykjavík FJÁRMÁL Örn Gunnlaugsson atvinnurekandi 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 F 1 -C C D 8 1 7 F 1 -C B 9 C 1 7 F 1 -C A 6 0 1 7 F 1 -C 9 2 4 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 6 4 s _ 5 2 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.