Fréttablaðið - 06.02.2015, Page 28
2 • LÍFIÐ 6. FEBRÚAR 2015
ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Umsjón Friðrika Hjördís Geirsdóttir rikka@365.is ● Ábyrgðarmaður Erla Björg Gunnarsdóttir
erlabjorg@365.is ● Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is
Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ● Forsíðumynd Valgarður Gíslason
Lífi ð
www.visir.is/lifid
Sjá fleiri myndir á
ÓTRÚLEGT ÚRVAL
F E R M I N G Í F L A S H
Kjólar verð frá
9.990 kr.
Ermar verð frá
3.990 kr.
Í boði náttúrunnar býður landsmönnum að kynna sér hugleiðslu á
hugleiðsluhátíðinni Friðsæld í febrúar sem hefst með hóphugleiðslu
í Ráðhúsi Reykjavíkur á sunnudaginn klukkan 11.
Að sögn skipuleggjenda hátíðarinn-
ar þá er markmið hennar að: vekja
áhuga á hugleiðslu og mikilvægi þess
að vera til staðar í núinu. Friðsæld í
febrúar er ætlað að vekja athygli á
því að hugleiðsla er fyrir alla. Þeim fer
fjölgandi sem áhuga hafa á að kynnast
hugleiðslu af eigin raun og er hátíðinni
ætlað að kynna það sem í boði er og
kveikja áhuga hjá enn fleirum.
Vikan er þó ekki einungis fyrir nýja
hugleiðsluiðkendur heldur getur hún
einnig nýst sem innblástur fyrir þá sem
hafa áður iðkað hugleiðslu, til að gefa
aðeins í eða prófa nýjar aðferðir.
Fjöldi viðburða verður í boði víða um
land líkt og gongslökun í Nauthólsvík,
samflot í sundlauginni á Seltjarnarnesi,
gjörhygli og núvitund í Hveragerði og
Raja Yoga-hugleiðsla á Akureyri.
Nánari upplýsingar er að finna á
Facebook-síðu hátíðarinnar, Friðsæld í
febrúar, sem Í boði náttúrunnar stend-
ur fyrir.
Anna Tara Andrésdóttir er
flestum kunn sem skeleggur
rappari í Reykjavíkurdætrum
og söngkona hljómsveitarinnar
Hljómsveittrar þar sem sungið
er opinskátt um femínisma og
kynlíf. Lagalistinn hennar hrist-
ir þig inn í helgina.
THIS MUST BE THE
PLACE
TALKING HEADS
NEW YORK
ANGEL HAZE
CONCRETE
SCHOOL YARD
JURASSIC 5
MUSIC MAKES YOU
LOSE CONTROL
LES RYTHMES DIGITALES
SWEET JANE
VELVET UNDERGROUND
1991
AZELIA BANKS
GOT TO GIVE IT UP
MARVIN GAYE
DOIN IT
LL COOL J
CRIMSON AND
CLOVER
TOMMY JAMES & THE
SHONDELLS
STATE TROOPER
BRUCE SPRINGSTEEN
(TRENTEMØLLER REMIX)
ANNA TARA
KEMUR ÞÉR
Í STUÐ
LÍFIÐ MÆLIR MEÐ
HUGLEIÐSLU-HÁTÍÐINNI FRIÐSÆLD
Heimilið er griðastaður fjölskyld-
unnar og fátt eins gott og að koma
heim í kotið eftir annasama daga.
Nú til dags koma flestar fjölskyld-
ur uppgefnar heim til sín á kvöld-
in eftir verkefni dagsins. Það þarf
að keyra og sækja börnin, láta þau
læra og ala upp, reyna að eiga í
félagslegum samskiptum við full-
orðið fólk, halda heilsunni, bæði
líkamlegri og andlegri, réttum
megin við girðinguna og svo er
það heimilið, blessað heimilið,
sem situr alltaf á hakanum. Ég sat
eitt kvöldið í sófanum heima hjá
mér og horfði á allt þetta dót sem
hafði safnast saman í hverju horni
heimilisins. Hvernig get ég feng-
ið heimilisfólkið til að ganga frá
eftir sig og eftir mig líka, ef því
er að skipta? Ég hugsaði málið og
ákvað að í stað þess að pirra mig
yfir þessu ástandi að láta reyna á
húmorinn á heimilinu.
Ærsladraugurinn
Næsta dag komu drengirnir heim
eftir skóla og fóru að venju í eld-
hússkápana og á salernið án þess
að setja setuna niður og lok skápa-
hurðunum. Því næst dreifðu þeir
úr legókubbunum yfir stofugólf-
ið og gerðu sig líklega í leik eins og
ósköp eðlilegt er. Ég leit yfir orr-
ustusvæðið og hugsaði að nú væri
tækifærið til að koma inn með
nýja nálgun í stað þeirrar gömlu
tuggu, spurningarinnar um það
hvort þeir byggju í helli. Ég stillti
mér upp skelkuð á svip fyrir fram-
an þá og sagði; „Strákar, ég held
að það sé poltergeist (ærsladraug-
ur) í húsinu!“ Þeir horfðu með und-
arlegum svip hvor á annan. „Ha, er
draugur í húsinu?“ sagði sá eldri.
„Já, ég held það, sjáiði bara, hann
hefur komið hérna inn rétt eftir
að við komum heim og rifið upp
allar skápahurðirnar í eldhúsinu
og klósettsetuna inni á baði auk
þess sem hann hefur hent hand-
klæði á gólfið,“ sagði ég með ótta
í augunum. Ég sá það á svip þess
yngri að núna hélt hann að móðir-
in væri endanlega gengin af göfl-
unum. Svo áttaði hann sig og sagði
flissandi: „Mamma, það er ekki
draugur í húsinu, þetta vorum við.“
„Ó,“ sagði ég með dramatískum
hætti og greip um ennið. „Mikið
er ég fegin, strákar mínir, að þetta
voruð bara þið.“ Það var eins og við
manninn mælt, þeir bræður náðu
skilaboðunum og gengu frá eftir
sig, í þetta sinn allavega.
Maðurinn sem hvarf
Síðar þetta sama kvöld kom sam-
býlismaðurinn heim eftir langan
vinnudag. Fljótlega freistaði hann
þess að skríða undir sæng, hálf-
dofinn eftir annasaman dag. Hann
fór úr fötunum þar sem hann stóð
og liðaðist upp í rúm, uppgefinn.
Þar sem hann var rétt við það að
festa svefn kom ég inn í herbergi
og ákvað að leika sama leik og fyrr
um daginn. „Heyrðu, ástin mín,“
sagði ég með óttann í augunum.
Hann muldraði eitthvað en rankaði
við sér og reis upp þegar ég sagði
honum að það hefði verið maður
sem stóð hérna rétt áðan inni í
svefnherberginu okkar. „Ha, hér?“
sagði hann. „Já, hann stóð hérna
og svo bara gufaði hann upp fyrir
framan mig og það eina sem eftir
er af honum eru fötin hans sem
liggja hérna á gólfinu,“ sagði ég. Að
sjálfsögðu fékk ég sömu viðbrögð
og hjá strákunum mínum, hlátur og
gleði en það er það sem gerir hús
að heimili og fólk að fjölskyldum.
Húsið mitt er síður en svo skipu-
lagðara eða hreinna eftir gjörning-
inn en það er hamingjuríkt og her-
menn hússins eru vígbúnir gleði.
LEYNIST ÆRSLADRAUGUR
LÍKA HEIMA HJÁ ÞÉR?
Heimilið er athvarf í augum flestra fjölskyldna og er það dagleg barátta okkar flestra að halda því
réttum megin við ruslahaugana. En hver er besta leiðin til þess að fá heimilisfólkið í lið með sér?
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
Umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is
„Heyrðu, ástin mín,“
sagði ég með óttann
í augunum. Hann
muldraði eitthvað en
rankaði við sér og reis
upp þegar ég sagði
honum að það hefði
verið maður sem stóð
hérna rétt áðan inni í
svefnherberginu okkar.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
2
-4
D
3
8
1
7
F
2
-4
B
F
C
1
7
F
2
-4
A
C
0
1
7
F
2
-4
9
8
4
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
6
4
s
_
5
2
2
0
1
5
C
M
Y
K