Fréttablaðið - 06.02.2015, Side 44
6. febrúar 2015 FÖSTUDAGUR| MENNING | 28
Taugar er hluti af dagskrá
Reykjavík Dance Festival en
þetta er í fyrsta skiptið sem
flokkurinn tekur þátt í hátíðinni.
Annar af tveimur danshöfundum
sýningarinnar er Saga Sigurðar-
dóttir en síðustu átta ár hefur
hún starfað sem framsækinn
danslistamaður og hlotið fjölda
verðlauna og viður kenninga fyrir
verk sín. Verk Sögu sem frum-
sýnt er í kvöld kallast Blýkufl
og hún hefur unnið að því ásamt
dönsurum dansflokksins síðan
í haust en þetta er jafnframt
fyrsta verkið sem hún vinnur
fyrir dansflokkinn.
„Þegar ég byrjaði að vinna
þetta verk var ég ákaflega inn-
blásin af súfisma sem er ákveð-
inn angi af íslamstrú. Súfismi
felur í sér ákveðnar helgiat-
hafnir og það eru í raun nokkur
ólík form sem eru ástunduð. Það
þekktasta er líklega frá Tyrk-
landi þar sem iðkendurnir snú-
ast í hringi og kuflarnir sveifl-
ast í kringum þá. Þetta er ekki
allt svona sjónrænt en á það samt
sameiginlegt að vera alltaf lík-
amlegar athafnir. Að komast í
snertingu við almættið í gegnum
líkamlega hreyfingu og áreynslu.
Eitt af því sem vakti athygli
mína er að þetta er karlaheimur
sem er í raun að fást við það sem
er almennt álitið fremur kven-
lægt. Markmiðið er að sleppa
tökunum og nálgast alheims-
ást og kærleik í gegnum þessar
líkamlegu athafnir og ritúalið.
En svo eru súfistahreyfingarn-
ar óneitanlega jaðarhreyfingar
sem setur þetta allt í samhengi
við það sem við þekkjum þar sem
hið kvenlæga er jaðarsett í ver-
öldinni.“
Saga nam danssmíðar við
ArtEZ-listaháskólann í Hollandi
og kom heim fyrir átta árum og
á síðustu árum hefur hún lagt
stund á guðfræði samhliða því
að vinna að sinni listsköpun.
„Satt best að segja þá man ég
ekki hvernig stendur á því að
ég fór að hugsa um súfisma í
tengslum við dansinn. Eflaust er
það nú eitthvað tengt því sem ég
hef verið að lesa í guðfræðinni.
Ég lofa því nú ekki að ég komi
til með að verða dansandi prest-
ur þegar fram líða stundir, það
er reyndar alls ekkert víst að ég
verði prestur, en ég efast samt
ekki um að það er tenging á milli
dansins og almættisins. Þetta
er kannski orsök þess að í þessu
verki erum við að leita að fegurð
í gegnum áskoranir.“
Blýkufl eftir Sögu er hluti af
sýningunni Taugar ásamt verk-
inu Liminal eftir Karol Tyminski.
„Við unnum þessi verk alveg sitt
í hvoru lagi en það er svo skrýtið
að engu að síður er samt einhver
strengur á milli þeirra, einhver
sameiginleg taug. Framundan
er frumsýning í kvöld og svo er
bara að snúa sér að næstu verk-
efnum. Ég er að vinna með leik-
hóp sem kallast 16 elskendur og
þar eru saman komnir listamenn
úr ólíkum áttum. Verkið kallast
Minnisvarði og útgangspunktur
þess verkefnis er sjónarspilið
og sjálfið svo ég held áfram að
vinna á svipuðum slóðum án þess
að það hafi verið planað sérstak-
lega. Við stefnum að frumsýn-
ingu í mars svo það verður nóg
að gera á næstunni.“ - mg
Efast um að verða
dansandi prestur
Saga Sigurðardóttir frumsýnir í kvöld verk sitt Blýkufl sem er hluti af sýningunni
Taugar á vegum Íslenska dansfl okksins á Nýja sviði Borgarleikhússins.
SAGA OG DANSARARNIR Saga Sigurðardóttir og dansarar Íslenska dansflokksins hafa unnið saman að verkinu frá því í haust
með súfisma að leiðarljósi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Útvarpið er hátt stillt á vinnu-
stofunni hjá Daða, hann er að
hlusta á tónleika frá Myrk-
um músík dögum. „Hluti af því
að vera í þessum bransa er að
fylgjast með því sem verið er að
gera,“ segir hann. „Þannig fær
maður inspírasjón og nútímatón-
list getur verið stórskemmtileg.“
Hann er í óða önn að taka til
ný vatnslitaverk til hengja upp
á Mokka við Skólavörðustíg, þar
opnar hann sýningu í dag. „Ég
vil sýna þar sem fólk droppar
inn, er alþýðlegur að því leyti.
Mokka er heimavöllur latteliðs-
ins,“ segir hann og kveðst sjálf-
ur koma þangað ansi oft að hitta
félagana. „Þetta er næstum eins
og að sýna á kaffistofu vinnu-
staðar síns,“ segir hann glað-
lega.
Stundum kveðst Daði sitja
á Mokka með einum kennara
sínum úr barnaskóla, Hafsteini
Austmann. „Hafsteinn er eigin-
lega Íslandsmeistarinn í Akur-
eyrartækninni í vatnslitun sem
er þannig að hvíti liturinn er
alltaf pappírinn sjálfur. Það er
ekki eins og í olíunni þar enda-
laust er málað yfir og lagað,
heldur þarf maður að sjást fyrir
og vera heppinn. Í myndlist
verður samt auð vitað alltaf að
vera eitthvað óvænt, helst ein-
hver mistök sem þarf að redda.“
Daði kveðst nota tækni sem
Hafsteinn sé þekktur fyrir,
hún felist í að þvo myndirn-
ar. „Þegar málað er aftur yfir
kemur fínn tónn í bakgrunninn.
Þú getur ímyndað þér hvað þetta
er snyrtileg sýning, allar mynd-
irnar meira og minna þvegnar,“
segir hann hlæjandi og kveðst
hafa reynt að ná þessari vatns-
litatækni í þrjátíu ár, eiginlega
frá því hann byrjaði að mála.
Nú telur hann það vera að tak-
ast. „Ég geri samt ekki eins stór-
ar myndir og Hafsteinn, enda
erum við ólíkir listamenn,“ segir
hann. „Þarf líklega að drekka
aðeins meira latte áður!“
gun@frettabladid.is
Þarf líklega að drekka
aðeins meira latte
Daði Guðbjörnsson listmálari er meðal fastagesta á
Mokka við Skólavörðustíg. Nú með ný vatnslitaverk í
farteskinu og opnar sýningu á þeim í dag.
MYNDLISTARMAÐURINN „Þú getur ímyndað þér hvað þetta er snyrtileg sýning,
allar myndirnar meira og minna þvegnar!“ segir Daði léttur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
En svo eru súfista-
hreyfingarnar óneitan-
lega jaðarhreyfingar sem
setur þetta allt í sam-
hengi við það sem við
þekkjum þar sem hið
kvenlæga er jaðarsett í
veröldinni.
Ég vil sýna þar sem
fólk droppar inn, er
alþýðlegur að því leyti.
Mokka er heimavöllur
latteliðsins.
„Ég ákvað að hafa þessa dagskrá
bannaða fullorðnum því venju-
lega er allt bannað börnum,“ segir
Björk Bjarnadóttir þjóðfræðing-
ur um draugaleiðsögn í Þjóð-
minjasafninu sem hefst klukkan
19 í kvöld og tilheyrir safnanótt.
Björk hefur nafn Illugaskottu í
netfanginu sínu svo það kemur
ekki á óvart að hún sé kunnug
draugum. Hún ætlar samt ekki
að verða of drungaleg.
„Ég ætla bara að segja börn-
unum hvernig útliti íslenskra
drauga er lýst í sögum, mórarnir
í mórauðum peysum með barða-
stóra hatta og skotturnar í rauð-
um sokkum með húfurnar öfugar.
Svo ætla ég að lýsa aðeins mis-
muninum á uppvakningi og aftur-
göngu,“ segir Björk og vekur for-
vitni blaðamanns sem vill vita
meira.
„Uppvakningar eru þannig að
það býr þá einhver galdramaður
til en afturgöngurnar ganga aftur
vegna mikils tilfinningahita. Þær
eiga harma að hefna eða elska ein-
hvern svo mikið að þær geta ekki
skilið við hann. Sumar afturgöng-
ur geta ekki skilið við peningana
sína, þær verða fédraugar og ef
maður hittir fédraug þá á maður
ekki hleypa honum ofan í gröf-
ina sína fyrr en hann hefur sagt
hvar fjársjóðurinn er. Áður lætur
maður hann lofa því að koma ekki
aftur og draugar halda alltaf lof-
orð sín.“
- gun
Skottur í rauðum sokkum með húfurnar öfugar
Björk Bjarnadóttir þjóðfræðingur þefar uppi aft urgöngur og uppvakninga í Þjóðminjasafninu í kvöld.
ÞJÓÐFRÆÐINGURINN „Sumar aftur-
göngur geta ekki skilið við peningana
sína,“ segir Björk sem veit lengra en nef
hennar nær.
Nú á laugardaginn 7. febrúar kl.
17-19 verður opnuð fyrsta sýning
Hverfisgallerísins eftir samein-
ingu við gallerí Þoku þegar Rakel
McMahon ríður á vaðið með sýn-
inguna View of Motivation sem er
röð málverka unninna á pappír.
Í verkum sínum tekst Rakel
McMahon oft á við það hvernig
karlmenn og tilfinningar virðast
oft ekki eiga samleið. En á fót-
boltavellinum gildi aðrar reglur
um tjáningu karlmanna á tilfinn-
ingum sínum. Fótboltalið er hópur
ellefu karlmanna sem eru ímynd
karlmennskunnar; manna sem
samt sem áður hika ekki við að
sýna sterkar tilfinningar og hlý-
hug hver til annars á leikvellinum.
Þar má sjá kossa, faðmlög, fleng-
ingar, hopp hvers á annan ásamt
ágengni og öskrum. Völlurinn er
sannkallaður hrærigrautur tilfinn-
inga. Leikmenn fá tækifæri til að
vera nánir öðrum karlmönnum og
sýna tilfinningar sínar frammi
fyrir stórum áhorfendahópi án
þess að vera dæmdir.
Í verkum sínum gagnrýnir
Rakel McMahon staðalímyndir
karla á gamansaman hátt með því
að leggja áherslu á tengingu milli
samkynhneigðar og einlægrar
væntumþykju meðal karlmanna
sem brýst út í frekar fáránlegu
sögusviði. - mg
Karlmenn og tilfi nningar
MENNING
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
F
2
-4
D
3
8
1
7
F
2
-4
B
F
C
1
7
F
2
-4
A
C
0
1
7
F
2
-4
9
8
4
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
6
4
s
_
5
2
2
0
1
5
C
M
Y
K