Fréttablaðið - 06.02.2015, Síða 54
6. febrúar 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 38
BAKÞANKAR
Guðmundar
Kristjáns Jónssonar
Í nútímasamfélagi standa og falla þjóðir með öflugum borgarsamfélögum sem
eru miðstöðvar stjórnsýslu, menntunar og
menningar, auk þess að vera drifkraftur
nýsköpunar og nýrra tækifæra. Það er
því alltaf jafn sláandi að bera saman
borgir heimsins og átta sig á því hve
langt Reykjavík á í land til að geta tal-
ist samkeppnishæf borg á ótal sviðum.
Í Vatnsmýrinni í Reykjavík felst eitt
allra besta tækifærið til að gera
Reykjavík að betri borg. Það
skiptir ekki máli hvar gripið
er niður, byggð í Vatnsmýri
mundi bæta höfuðborgar-
svæðið samkvæmt öllum
þeim viðmiðum sem notuð
eru til að meta borgarsam-
félög. Sjálfbærni, hagkvæmni,
öryggi og lýðheilsa vega jafn-
an þyngst í þeim efnum. Með
öðrum orðum, samkeppnis-
hæfni og lífsgæði Íslend-
inga munu aukast með byggð í
Vatnsmýri. Hið sama á við um
aðra fyrirhugaða þéttingarreiti á
höfuðborgarsvæðinu.
Í ljósi þessa er dapurlegt að fylgjast
með stjórnmálamönnum, sem margir
hverjir eru með örfá atkvæði á bak við
sig, leggja fram frumvörp og tjá sig líkt
og helsta víglína landsins liggi á milli
Reykjavíkurflugvallar og landsbyggð-
arinnar. Fyrir okkur unga fólkið sem
höfum eytt síðustu árum í að mennta
okkur erlendis með ærnum tilkostnaði
liggur víglínan vissulega um flugvöll, en
sá er ekki í Vatnsmýri heldur í Keflavík.
Staðreyndin er sú að ef þjóðinni mistekst
að nútímavæða einu borgina á Íslandi
svo hún standist samanburð við bestu
borgir heimsins þá þarf ekki að spyrja að
leikslokum.
EF ekkert breytist verður hins vegar gott
að vita til þess að þegar við fjölskyldan
komum til Íslands í sumarfrí getum við
tekið rútuna frá Keflavík beint niður á
BSÍ og leyft börnunum að smakka sviða-
kjamma. Með kjálkabeinin að vopni
getum við svo kennt þeim að leika sér á
þjóðlegan hátt og það er aldrei að vita
nema einn kjamminn endi sem forystu-
sauður í furðulegri hjörð. Sá verður
sennilega nefndur Höskuldur.
Forystusauður framtíðarinnar
„Við erum ákaflega sátt en nú
tekur um það bil fimmtán mínút-
ur að breyta salnum úr standandi
tónleikasal yfir í sitjandi sal og
öfugt,“ segir Ása Berglind Hjálm-
arsdóttir, markaðs- og verkefna-
stjóri hjá Gamla bíói.
Miklar framkvæmdir hafa farið
fram í Gamla bíói undanfarna
mánuði en um síðustu helgi var
lokahönd lögð á ný færanleg sæti
í salnum. „Salurinn tekur aðeins
minna en þegar gömlu sætin voru,
en það fer þó mun betur um fólk,“
segir Ása um sætin.
Gamla bíó tekur nú 320 manns
í sæti og getur hýst 750 manns á
standandi viðburðum. Þá er einn-
ig hægt að hafa sætin á efri hæð-
inni í halla og standandi niðri.
Spurð út í gömlu sætin segir
Ása Berglind þau hafa verið seld.
„Þau sæti sem voru á efri hæð-
inni voru seld hingað og þang-
að en við höldum utan um hvert
sætin á neðri hæðinni voru seld.
Þetta voru samt ekki uppruna-
legu sætin.“
Talsverð pressa var á Gamla
bíói að koma upp sætunum áður
en Eddan var frumsýnd um síð-
ustu helgi. „Gámurinn með sæt-
unum tafðist út af óveðri í janúar,
þannig að við urðum öll frek-
ar stressuð en pössuðum okkur
að vera jákvæð. Við náðum ekki
að byrja að setja upp sætin á til-
settum tíma en að því var unnið
dag og nótt. Síðustu skrúfurnar
voru skrúfaðar í korter í frum-
sýningu.“
Síðastliðið föstudagskvöld
sýndu framkvæmdirnar hversu
vel hægt er að nýta salinn þegar
afhending vefverðlaunanna fór
fram en sá viðburður var sitj-
andi og svo átján mínútum eftir
að afhendingu verðlaunanna lauk
hýsti salurinn standandi kokteil-
boð. „Fólk sat í halla á vefverð-
laununum og þegar þeim lauk þá
fór fólk fram í anddyri og salnum
var lokað. Þá var sætunum rúll-
að saman og átján mínútum síðar
kom sama fólkið inn í kokteilboð
í gjörbreyttan sal,“ útskýrir Ása
Berglind.
Í gólfinu sést glitta í þak á lyftu
en í kjallaranum er mótttöku-
eldhús og geymsla fyrir borð og
stóla. Lyftan opnar því möguleika
á að gjörbreyta salnum án þess að
fólk verði þess vart á meðan það
hinkrar fyrir utan dyr salarins.
„Einnig er unnið við að koma
fyrir lyftu sem fer úr kjallaran-
um og upp á þriðju hæð, svo allir
ættu að geta komist leiðar sinnar í
Gamla bíói, óháð hreyfigetu.“
Mikið er um að vera í húsinu á
næstunni líkt og Hlustendaverð-
laun 365 miðla sem fram fara í
kvöld og úrslitakvöld Reykjavík
Cocktail Weekend á sunnudags-
kvöld.
gunnarleo@frettabladid.is
Nýr salur á korteri
Lokahönd lögð á miklar framkvæmdir í Gamla bíói með nýjum sætum og öðru.
SÁTT MEÐ NÝJU SÆTIN Ása Berglind er markaðs- og verkefnastjóri Gamla bíós. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLL
m.a. BESTA MYND ÁRSINS
Besti Leikari í aðalhlutverki - Bradley Cooper
M.A. BESTA MYNDIN – BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI
BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI – BESTI LEIKSTJÓRI
“AN INSTANT CLASSIC”“BENEDICT CUMBERBATCH IS OUTSTANDING”
“THE BEST BRITISH FILM OF THE YEAR”
“EXCEPTIONAL”
“FASCINATING
& THRILLING”
INSPIRING
T H E I M I TAT I O N G A M E
m.a. Besta myndin - Besti leikari í aðalhlutverki
Besta leikkona í aukahlutverki - Besti leikstjóri
ÁLFABAKKA
TIME
SEVENTH SON 8, 10:10
SVAMPUR SVEINSSON 2D 3:50, 6
SVAMPUR SVEINSSON 3D 3:50
MORTDECAI 8
PADDINGTON ISL TAL 3:50, 6
BLACKHAT 10:15
HOBBIT 3 3D (48R) 6, 9
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
Miðasala á:
SEVENTH SON KL. 8 - 10.40
BIRDMAN KL. 5.30 - 8 - 10
ÓLI PRIK KL. 6 - 8 - 10.20
PADDINGTON - ÍSL TAL KL. 5.30
ÖMURLEG BRÚÐKAUP KL. 5.30 - 8 - 10.20 ÍSL . TEXTI
SEVENTH SON KL. 8 - 10.20
BIRDMAN KL. 8 - 10.40
BIRDMAN LÚXUS KL. 8 - 10.40
ÓLI PRIK KL. 5.45 - 8
SVAMPUR SVEINSSON 3D KL. 3.30 - 5.45 - ÍSL TAL
SVAMPUR SVEINSSON 2D KL. 3.30 - 5.45 - ÍSL TAL
THE WEDDING RINGER KL. 8 - 10.20
TAKEN 3 KL. 10.10
PADDINGTON - ÍSL TAL KL. 3.30 - 5.45
THE HOBBIT 3 LÚXUS 3D 48R KL. 4
NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 3.30
„Gámurinn með sætunum tafðist
út af óveðri í janúar, þannig að
við urðum öll frekar stressuð en
pössuðum okkur að vera jákvæð.
Við náðum ekki að byrja að setja
upp sætin á tilsettum tíma en því
var unnið dag og nótt. Síðustu
skrúfurnar voru skrúfaðar í korter
í frumsýningu.“
HURÐ SKALL
NÆRRI HÆLUM
Whiplash 18.00
Ida 18.00
Of mice and men 20.00
Boyhood 20.00
Vonarstræti 20.00
FRUMSÝNING:
Jimmýs Hall 18.00, 22.20
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-20
FROM THE DIRECTOR KEN LOACH & SCREENWRITER PAUL LAVERTY
OF THE WIND THAT SHAKES THE BARLEY
WHERE ANYTHING GOES AND EVERYONE BELONGS
BASED ON A TRUE STORY
© SIXTEEN JIMMY LIMITED, WHY NOT PRODUCTIONS, WILD BUNCH, ELEMENT PICTURES, CHANNEL FOUR TELEVISION CORPORATION, THE BRITISH FILM INSTITUTE AND BORD SCANNÁN NA HÉIREANN/THE IRISH FILM BOARD 2014
BARRY WARD SIMONE KIRBY JIM NORTON FRANCIS MAGEE AISLING FRANCIOSI ANDREW SCOTT BRÍAN F. O’BYRNE SIXTEEN FILMS WHY NOT PRODUCTIONS WILD BUNCH ELEMENT PICTURES
BFI FILM4 BORD SCANNÁN NA HÉIREANN/IRISH FILM BOARD FRANCE 2 CINÉMA CANAL + CINE + LE PACTE LES FILMS DU FLEUVE CINEART LONGRIDE INC. FRANCE TÉLÉVISIONS
PRODUCTION
DESIGNER FERGUS CLEGG RECORDIST RAY BECKETT CASTING KAHLEEN CRAWFORD COSTUME DESIGNER EIMER NÍ MHAOLDOMHNAIGH PHOTOGRAPHY ROBBIE RYAN PRODUCTION MANAGER EIMHEAR MCMAHON EDITOR JONATHAN MORRIS
MUSIC GEORGE FENTON EXECUTIVE PRODUCERS ANDREW LOWE PASCAL CAUCHETEUX GRÉGOIRE SORLAT VINCENT MARAVAL SCREENPLAY PAUL LAVERTY PRODUCER REBECCA O’BRIEN DIRECTOR KEN LOACH A BRITISH/IRISH/FRENCH CO-PRODUCTION
➜ Gamla bíó
tekur nú 320
manns í sæti
og getur hýst
750 manns á
standandi við-
burðum.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
F
2
-2
5
B
8
1
7
F
2
-2
4
7
C
1
7
F
2
-2
3
4
0
1
7
F
2
-2
2
0
4
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
_
5
2
2
0
1
5
C
M
Y
K