Fréttablaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 62
6. febrúar 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
Sýningin er mjög
hávær og ég öskra
talsvert í henni. Á fyrsta
rennsli brjálaðist sú litla
hreinlega inni í mér.
Sigríður Soffía Níelsdóttirx
Curver Thoroddsen, Frímann
Kjerúlf, eðlisfræðingur og mynd-
listarmaður, og Kristján Leós-
son, doktor í rafmagnsverkfræði,
hafa þjappað mánaðarlöngum
sveiflum og titringi ljósleiðara
niður í 40 mínútna tónverk.
„Þetta eru þung hljóð, svona
drunur og stöðugur bassi.
Gríðar lega flott,“ segir Frímann,
sem telur líklegt að enginn hafi
áður nýtt ljósleiðara á þennan
máta. Tæknin er þó þekkt, því
hana notar geimferðastofnunin
NASA við að mæla rafsegul-
bylgjur út frá iðrum jarðar utan
úr geimnum.
Leysi-ljósgeislum var kastað
eftir ljósleiðara Mílu frá Vogum
á Vatnsleysuströnd í símstöð í
Breiðholti. „Í raun má segja að
ljósleiðarinn sé ekki hugsað-
ur sem hljóðfærið sjálft held-
ur hljóðneminn, því umhverfið
hafði áhrif á ljósið á leiðinni,“
segir Frímann. „Við ferðalagið
kom flökt á ljósið og það sveifl-
aðist til. Því var svo beint inn í
mæli sem nam breytingarnar
á ljósinu á leiðinni, sem við svo
breyttum í hljóð.“
Hugmyndina fékk Kristján og
bar undir Frímann. Þeir fengu
Curver til liðs við sig en hann
hefur kennt hljóðlist í Listahá-
skólanum.
Tónverkið verður flutt í Nor-
ræna húsinu á Vetrarhátíð 5.–8.
febrúar. Bakhjarlar verksins eru
Síminn, Háskóli Íslands, Míla og
Nýsköpunarsjóður Íslands.
- fb
Tónverk úr rafsegulbylgjum ljósleiðara
Óvenjulegt samstarf Curvers Thoroddsen, Frímanns Kjerúlf og Kristjáns Leóssonar er hluti af Vetrarhátíð.
FRÍMANN OG CURVER Bjuggu til 40
mínútna tónverk úr titringi ljósleiðara.
MYND/SIGURJÓN RAGNAR
Það er sjaldan lognmolla hjá dansar-
anum Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Þegar
hún var komin 32 vikur á leið tók hún
þátt í danssýningu á Ítalíu og fram
undan er opnunarverk Listahátíðar í
Reykjavík.
„Ég mistaldi örlítið og hélt ég ætti
fleiri vikur eftir en raun bar vitni,“
segir Sigríður en í ágúst síðastliðnum
var hún partur af sýningunni Inn að
beini sem sýnd var við Garda-vatn á
Ítalíu.
„Sýningin er mjög hávær og ég
öskra talsvert í henni. Á fyrsta rennsli
brjálaðist sú litla hreinlega inni í mér,“
en Sigríður dansar hálf galinn þolfimi-
kennara í sýningunni. Stelpan, sem
fæddist í október og fékk nafnið Ísold
Freyja, virðist hafa vanist látunum því
hún átti í ekki minnstu vandræðum
með að sofa af sér áramótin.
Það var ekki í fyrsta skiptið sem hún
þurfti að sætta sig við flugeldaspreng-
ingar en móðir hennar var listrænn
stjórnandi flugeldasýningar Menn-
ingarnætur.
Í lok janúar var sýningin sýnd í
Frakklandi og fór Sigríður með dótt-
ur sína í þá ferð. Hún segist ekki alveg
hafa gert sér grein fyrir því hve ung
hnátan væri en hún beið baksviðs
meðan móðirin dansaði. „Ég fæ kort-
ers pásu þar sem ég er ekki á sviðinu
og þá vippaði ég mér úr búningnum og
gaf henni að drekka.“
Það er ekki mikið um hlé hjá Sigríði
því í maí mun sýning eftir hana verða
opnunarverk Listahátíðar í Reykja-
vík. „Verkið kallast Svartar fjaðrir
og er byggt á ljóðum Davíðs Stefáns-
sonar,“ svarar hún aðspurð um verkið.
Það verður sýnt á stóra sviði Þjóðleik-
hússins en fátítt er að danssýningar
rati þangað.
Markmiðið er að taka uppbygg-
ingu ljóðanna og færa yfir í dans-
formið. Dansararnir dansa ljóð-
stafina, bragliðir koma til með
að hafa áhrif á taktinn og hægt
verður að greina rímið í hreyf-
ingum þeirra.
Tónlist sýningarinnar er í
höndum Jónasar Sen og Valdi-
mars Jóhannssonar. Tólf dans-
arar og leikarar taka þátt. Þar
má nefna Dóru Jóhannsdótt-
ur, Lovísu Ósk Gunnarsdótt-
ur, Ásgeir Helga Magnússon,
Sögu Garðarsdóttur, Ingvar
E. Sigurðsson og Atla Rafn
Sigurðsson.
„Þessir leikarar verða nú að
hreyfa sig eitthvað,“ grínast Sigríð-
ur með en hún gerir ráð fyrir því að
taka sjálf þátt. Dóttir hennar hefur
þó úrslitaatkvæði í þeirri ákvörðun.
„Það nefna allir andvökunætur
og erfiði kringum barneignir en það
gleymist alveg að segja frá því hvað
maður verður yfir sig ástfanginn af
krílinu,“ segir hún hæstánægð í nýja
hlutverkinu. johannoli@frettabladid.is
Tók þátt í danssýningu
komin átta mánuði á leið
Dansari sýndi verk erlendis undir lok meðgöngu sinnar. Í maí opnar hún Lista-
hátíð í Reykjavík með danssýningu byggðri á ljóðum Davíðs Stefánssonar.
EFTIR Í Frakklandi í janúar. MYND/ MARINO THORLACIUSFYRIR Gengin átta mánuði. MYND/NANNA DÍS
„Mér finnst endurvinnsla bara
mjög skemmtileg og sniðug,“ segir
Sandra Borg Bjarnadóttir, sálfræði-
nemi og fatahönnuður. Hún saum-
ar fjölnota poka sem hún vinnur úr
fánaefni.
„Þetta eru fánar sem hafa prent-
ast vitlaust, efnið sjálft er í góðu
lagi,“ segir Sandra og bætir við:
„Í staðinn fyrir að þessu efni sé
hent þá sker ég það niður og geri
litla poka. Efnið er rosalega sterkt,
fánaefnið er búið til til þess að þola
veður og vind.“
Hugmyndin kviknaði þegar hún
heimsótti Fánasmiðjuna á Ísafirði.
„Ég rak augun í allt efnið sem átti að
henda og fannst alveg hræðilegt að
henda því bara.“ Sandra ákvað því
að taka málin í sínar hendur og búa
til eitthvað nothæft úr efninu.
Hún er fatahönnuður en vinnur þó
ekki sem slíkur. „Ég lærði fatahönn-
un en ég nenni ekkert að vinna sem
slíkur. Mér finnst skemmtilegra að
kenna fólki að nota listina,“ segir hún
og bætir við: „Það er í rauninni þess
vegna sem ég er í sálfræðinni, mig
langar til þess að læra listmeðferð.“
Sandra gerir auk pokanna tón-
listarhálsmen úr plexígleri. Hægt
verður að sjá hönnun og handverk
Söndru í menningarhúsinu Molan-
um í Kópavogi á sýningunni Slag-
brandi sem verður opnuð klukkan
átta í kvöld. - gló
Endurvinnsla úr ónýttu fánaefni
Sandra Borg Bjarnadóttir sálfræðinemi hannar og saumar fj ölnota poka.
SANDRA Með fjölnotapokana sem hún
hefur saumað um nokkurt skeið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég verð að segja lagið Milljón
augnablik, sem verður frumflutt á
morgun í undankeppni Eurovision.
Það er víst einhver fjallmyndar-
legur ungur maður að fara að flytja
lagið.“
Haukur Heiðar Hauksson, tónlistarmaður
FÖSTUDAGSLAGIÐ
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
F
1
-3
D
A
8
1
7
F
1
-3
C
6
C
1
7
F
1
-3
B
3
0
1
7
F
1
-3
9
F
4
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
6
4
s
_
5
2
2
0
1
5
C
M
Y
K