Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1915, Blaðsíða 8
6*
Búnaðarskýrslur 1913
Sjálfseignarbændur.......... 2 261
Leiguliðar.................. 3 773
Samtals 6 034
Vantar þá 31 manns í bændatöluna, sem áður er getið; munu
eigi hafa verið nægilegar upplýsingar fyrir hendi um þá til þess að
skipa þeim í þessa flokka. Samkvæmt þessum upplýsingum eru
62—63°/o hænda leiguliðar, en 37—38°/o sjálfseignarhændur. Hvernig
sjálfseignarbændur og leiguliðar skiftust eftir sjrslum er sýnt í mann-
talinu (Manntal á íslandi 1. desember 1910, bls. 172) og víðar í
því riti má íinna ýmsan fróðleik um þann mannfjölda, er á land-
búnaði lifir.
Bændatalan er örlítið hærri samkvæmt skýrslunum 1913 heldur
en næstu árin á undan, en ekki er samt mikið á þeirri fjölgun
byggjandi, því að hún gelur stafað af því, að fleiri þurrabúðarmenn,
sem grasnyt liafa, hafi þetta ár verið taldir ineð bændum, heldur
en árin á undan.
Fækkunin á öðrum framteljendum 1913 mun eingöngu stafa
af því, að þetta ár hafa að eins verið laldir þeir framteljendur, sem
töldu fram einliverja gripi, en áður hafa verið taldir með þeir, sem
enga gripi töldu fram, lieldur að eins einhvern garðávöxt. Þó hefur
tala þeirra framteljenda verið mjög óáreiðanleg, því að sumsstaðar
hefur allur garðávöxlur verið talinn í einu lagi án þess að sæist á
hve marga liann skiflist, og svo hafa víst víða fallið í burlu þeir,
sem ekkert höfðu annað fram að telja en garðávöxl. Hefur því þótt
rjellast að tilfæra lijer að eins tölu þeirra, sem telja fram gripi, því
að hún mun vera nokkurn veginn áreiðanleg, en við þessa breylingu
fækkar framteljendum nokkuð, einkum í kauptúnum og sjóplássum.
Samkvaímt jarðamatinu 1861 og síðara mati á fáeinum jörðum er
tala ábúðarhundraöa á landinu alls .................. 86 189.3 hundr.
Samkvæmt búnaðarskýrslunum hefur árið 1913 verið búið á 85 184,o
Mismunur 1 005.3 hundr.
Mikið af þessurn mismun er orðinn að kaupstaðarlóðum, en
nokkuð eru eyðijarðir. En annars er hæpið að byggja nokkuð á
hreytingunum á tölum þessum frá ári til árs, þvi að skýrslurnar
virðasl víða liarla ónákvæmar að þessu leyti.