Hagskýrslur um landbúnað

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1915, Qupperneq 11

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1915, Qupperneq 11
Búnaðarskýrslur 1913 9 Naut Sauöfje Hross 1912 ......... 26 292 600 549 45 847 1913 ......... 26 963 634 964 47160 í sauðfjárlölunni eru lömb ekki meðtalin. Aftur á móti er í hinum dálkunum talið ungviði, kálfar og folöld, nema árin hS55 og 1871, því að frá þeim árum eru ekki skýrslur lil um tölu þess. Enda þótt framlalið á sauðfjenu liafi verið og muni enn vera mjög slakt, eins og áður er getið, mun samt nokkuð mega marka breyt- ingarnar á fjáreigninni af tölunum í búnaðarskýrslunum, því að engar ástæður eru til að ætla, að framtalið sje miklum mun belra eitt árið heldur en annað. Aftur á móti er líklegt, að framtalið á stórgripunum sje nálægt rjettu lagi. Árið 1703 er nautgripatalan töluvert hærri heldur en öll eftir- farandi ár, sem skýrslur eru til frá. Á síðari árum hefur hún komist hæst árið 1904, rúm 30 þúsund, eða líkt og árið 1770. Síðan fækk- aði nautgripum niður í rúm 23 þúsund árið 1908, en fjölgaði svo aftur dálílið næstu árin. Eins og áður er getið er sauðfjártalan í búnaðarskýrslunuin 1913 635 þúsund, liærri heldur en nokkru sinni áður. Áður hefur liún verið hæst árið 1912, 600 þús., og litlu lægri árið 1896, 595 þúsund, en lækkaði árin þar á eftir og var lægst árin 1901 — 03 (4S0—490 þúsund), en siðan 1905 hefur hún æfinlega verið yfir ]/1 miljón og það var hún einnig öll árin 1891—99. Á 19. öldinni komst fjárlalan samkvæmt búnaðarskýrslunum annars að eins tvisvar sinnum upp yfir ’/2 miljón, árin 1853 og 1854 (517 og 507 þúsund) og árið 1880 (501 þúsund). Fjártalan er nú meir en tvöföld á við það sem hún var í byrjun 19. aldarinnar. Hrossalalan hefur komist hæst árin 1905 og 1906, upp í 49 þúsund, en síðan hefur hrossum heldur fækkað, þangað til 2 siðustu árin, að þeim hefur aftur fjölgað nokkuð. Þegar skepnueignin er miðuð við mannfjölda, sjest að hún hefur ekki getað fylgst með mannfjölguninni á iandinu, sem varla er reyndar von, því að upp á síðkaslið hefur eingöngu bæjarbúum fjölgað, en sveitafólki ekki. Á hvert 100 manns hefur komið eftir- farandi tala af kvikfjenaði á ýmsum tímum. Nnut Sauðfje Ilross 1703 .......... 71 554 53 4770 .......... 65 303 70 1800 .......... 49 644 60 1834 .......... 49 712 70 1855 .......... 37 758 62 b

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.