Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1919, Síða 9
19
Búnaðarskýrslur 1917
7
árið áður, en þó furðu margar (nál. 18°/o af öllum ánum). Annars
er tala geldu ánna í búnaðarskýrslunum æfinlega furðu há.
í eftirfarandi yfirliti má sjá fjölgun sauðfjenaðarins í hverjum
landshluta fyrir sig.1)
1916 1917 Fjölgun
Suðvesturland .... ... 104 693 110 719 6 °/o
Vestfirðir ... 56 320 59 028 5—
Norðurland ... 193 932 198 832 3—
Austurland ... 108141 106 304 -F- 2-
Suðurland ... 126 257 128 814 2—
Á Austurlandi hefur sauðfjenaðinum í heild sinni fækkað, en
annarsstaðar á landinu hefur lionum fjölgað, mest á Suðvesturlandi.
Hve miklu fjenu hefur fjölgað í einstökum sýslum sjest á 1.
yfirliti (bls. 8'). Fjölgunina i kaupstöðunum mun ekki vera vel
að marka. Búnaðarskýrslunum þaðan hefur oft verið töluvert ábóta-
vant. En nú er skepnuframtalið í Reykjavík þetta ár orðið gott, en
samanburður við undanfarin ár, er skýrslurnar voru frámunalega
slæmar, er auðvitað villandi. Mest hefur fjölgun sauðfjenaðarins
1916—17 orðið í Snæfellsnessjrslu (10°/o), ísafjarðarsýslu (8°/o) og
Gullbringu- og Kjósarsýslu, Mýrasýslu og Skagafjarðarsjslu (7°/o).
í 4 sýslum hefur fjenaður tækkað dálítið, í Suður-Múlasýslu (4°/o),
Þingeyjarsýslu (2%) og Norður-Múlasýslu og Strandasýslu (l°/o).
í fardögum 1917 töldust nautgripir á öllu landinu 25 653,
en árið áður 26 176. Hefur þeim þá fækkað um 523 eða um 2°/o.
Af nautgripunum voru:
1910 1917 Fjölgun
Kýr og kelfdar kvígur 18186 18 067 -i- i >
Griðungar og geldneyti 765 1 076 41—
Veturgamall nautpeningur .. 2411 2 740 14—
Kálfar 4 814 3 770 -1- 22-
Nautpeningur alls.. 26176 25 653 -4- 2°/o
Það er að eins kálfunum, sem hefur verulega fækkað, kýrnar
hafa hjer um bil staðið i stað, en þó heldur fækkað, en aftur á
móti hefur griðungum, geldneyti og veturgömlum naulpeningi
fjölgað töluvert.
1) Hjer er vikið frá liinni óeðlilegu skiftingu í landsfjórðunga, sein miðaðist við
önitin gömlu, og tekin upp skifling í 5 landsliluta, seni meira byggist á eðlilegri skiftingu
landsins 1 töflu I (bls. 2 3) sjest, hvaða sýslur koma á hvern landsliluta.