Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1945, Blaðsíða 24
22
Búnaðarskýrslur 1942
IV. Jarðabætur.
Améliorations fonciéres.
Trúnaðarmenn Búnaðarfélagsins mæla allar jarðabætur á landinu,
og eru XV.—XVII. tafla hdr í skýrslunum (bls. 54—73) teknar eftir skýrsl-
um þeirra um þær mælingar. í skýrslum mælingamanna eru yfirleitt tald-
ar allar jarðabætur, að svo miklu leyti, sem um þær hefur verið kunnugl
eða til þeirra hefur náðst. En líklega má búast við, að skýrslur um þær
jarðabætur, sem ekki njóta styrks samkv. II. kafla jarðræktarlaganna,
séu ónákvæmari heldur en um styrkhæfu jarðabæturnar. Yfirlitsskýrsl-
urnar fyrir allt Iandið og sýslurnar (tafla XV—XVI) eru gerðar jafn-
nákvæmar og sundurliðaðar eins og skýrslur trúnaðarinanna Búnaðar-
félagsins, en skýrslurnar um jarðabætur í hverjum hreppi (tafla VIII)
hafa verið dregnar nokkuð saman, svo að þær eru ekki eins mikið
sundurliðaðar.
Síðustu árin hefur tala búnaðarfélaga, sem skýrslur hafa komið
frá um jarðabætur, tala j ar ðab ótamanna og tala dagsverka,
sem unnin eru af þeiin við jarðabætur, verið sem hér segir:
Jaröahóla- Dagsverk
Félög raenn' alls á raann
1938 ................. 216 5 008 592 þús. 118
1939 ................. 220 5 059 593 — 117
1940 ................. 218 4 291 308 — 72
1941 ................. 219 3 328 203 — 61
1942 ................. 218 2 965 302 — 102
Tala jarðabótamanna hefur verið hæst 1932, 5 516. Dagsverkatalan i
beild sinni og dagsverkatalan á mann var aftur á móti hæst 1931, 760
þús. dagsverk alls, 153 dagsverk á mann að meðaltali. Arið 1942 var tala
jarðabótamanna rúml. 10% lægri heldur en árið á undan, en dagsverka-
talan tveim þriðjungum hærri. Það sem aðallega hefur hleypt fram dags-
verkatölunni 1942, er hlöðubyggingar og gróðrarskálar.
Fram að 1936 var jarðabótastyrkurinn miðaður við dagsverk. Var
þvi öllum jarðabótum breytt í dagsverk eftir þar um settum reglum, og
þau síðan talin saman fyrir livert jarðabótafélag, fyrir hverja sýslu
og fyrir allt landið í heild sinni. En í jarðræktarlögunum frá 1936 var
horfið frá þessari reglu og styrkurinn fyrir hverja tegund jarðabóta
miðaður beinlínis við metratölu. Var þá hætt að leggja jarðabæturnar i
dagsverk, eins og áður tíðkaðisl, og féll því liðurinn uin dagsverkatöl-
una niður úr jarðabótaskýrslunum. En með því að dagsverkatalan er
eini sameiginlegi mælikvarðinn á jarðabætur af ýmsum tegundum, og þvi
leitt að missa hann alveg, þá hefur hagstofan lagt heildarupphæðir jarða-
bótanna fyrir alt landið i dagsverk eftir sömu reglum, sem áður tíðk-
uðust. Samkvæmt þvi hefur dagsverkatalan 1941 og 1942 við ýmsar teg-
undir jarðabóta verið svo sem hér segir: