Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1965, Page 13
Búnaðarskýrslur 1961—63
11*
reyndi Hagstofan í fj'rsta sinn að færa þessi mörk til samræmis, og hefur
það verið gert síðan. Við það hafa fallið úr tölu bænda noklcrir, er vafa-
laust þótti, að þar væru oftaldir samkvæmt þeim mörkum, sem eðlilegt
er að setja um það, hverjir eiga að teljast bændur. Er hér aðallega um
fjóra hópa að ræða, og er enginn þeirra stór: 1) Gamlir menn, sem hafa
afhent jörð sina í hendur annarra og hafa því raunverulega hætt bú-
skap, en telja þó fram örfáar kindur og e. t. v. hest. 2) Ungir menn, er
hafa athvarf hjá foreldrum sínum og eiga örfáar kindur og e. t. v. hest,
en hafa framfæri sitt aðallega af atvinnu utan heimilis. 3) Konur, er
skila sérstöku framtali, en bú þeirra er raunverulega hluti af sameigin-
legu búi þeirra og manns, sem þær búa með. Er hér aðallega um að
ræða bú systkina og bú manns og konu í óvígðri sambúð. 4) Menn, sem
ráða yfir lögbýli, en hafa framfæri sitt aðallega eða alveg af öðru en
búskap.
Hér fer á eftir tala bænda í sýslum landsins 1954, 1957, 1960 og 1963,
eins og Hagstofan telur komizt verði næst, þannig að samræmi sé milli
talnanna. Aðeins einn bóndi er talinn á hverju félagsbúi:
1954 1957 1960 1963
Gullbringusýsla 182 153 98 71
Kjósarsýsla 163 133 126 117
Borgarfjarðarsýsla 250 247 237 244
Mýrasýsla 221 218 206 203
SnæfeUsnessýsla 262 249 231 232
Dalasýsla 217 211 212 213
Austur-Barðastrandarsýsla 102 87 85 83
Vestur-Barðastrandarsýsla 124 119 102 92
Vestur-ísafjarðarsýsla 120 111 100 83
Norður-ísafjarðarsýsla 128 119 112 94
Strandasýsla 189 180 164 156
Vestur-Húnavatnssýsla 230 224 218 220
Austur-Húnavatnssýsla 277 286 265 247
Skagafjarðarsýsla 500 481 457 444
Eyjafjarðarsýsla 411 413 401 370
Suður-Þingeyjarsýsla 464 467 449 436
Norður-Þingeyjarsýsla 224 214 203 190
Norður-Múlasýsla 432 412 390 340
Suður-Múlasýsla 343 308 278 253
Austur-SkaftafeUssýsla 173 165 151 129
Vestur-SkaftafeUssýsla 227 207 200 192
RangárvaUasýsla 524 508 507 464
Árnessýsla 622 628 609 595
Kaupstaðir 132 109 128 92
Samtals 6 517 6 249 5 929 5 560
Bændum hefur fækkað langsamlega mest í Gullbringusýslu. Fækk-
unin síðan 1954 er þó raunverulega ekki eins mikil og tölurnar hér á
undan sýna. Árið 1954 voru taldir í Kópavogshreppi 13 bændur, er þá
voru í tölu bænda í Gullbringusýslu, en hafa síðan verið taldir í Kópa-
vogskaupstað. í annan stað voru 1954 taldir sem bændur i Gullbringu-
sýslu allir þeir, sem bjuggu á lögbýlum þar, þó að sumir þeirra hefðu