Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1965, Side 40

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1965, Side 40
38* Búnaðarskýrslur 1961—63 Tekjur af húseignum eru að mestu leyti reiknaðar leigutekjur af eigin húsnæði. Þessar leigutekjur eru mjög lágt reiknaðar, aðeins um helmingur af fyrningu og viðhaldskostnaði eignanna (sjá 3. dálk heildar- gjalda í töflu XV). Aðrar tekjur eru tekjuliðir 8—14 á aðalframtalsskýrslu til skatta- yfirvalda, aðallega styrkir og bætur frá almannatryggingum, en einnig sértekjur konu, ef nokkrar eru, svo og ýmsar tekjur af öðru en búskap. Þessar tekjur hafa farið mjög vaxandi á síðustu árum, aðallega vegna aukinna tryggingabóta. Voru þær árið 1954 aðeins fram taldar 13,7 millj. kr. hjá bændum, 1957 17,3 millj. kr., 1960 41,2 millj. kr. og 1963 78,5 millj. kr. Af heildargjöldum er fyrst talinn tilkostnaður við búnaðarfram- leiðsluna, og hefur þegar verið gerð grein fyrir honum í skýringum við töflu XIII. Næst eru taldir vextir af skuldum bænda. Þeir eru taldir hér, en ekki í töflu XIII, vegna þess að þeir eru ekki allir vegna landbúnaðarins, heldur oft að verulegu leyti vegna byggingar á íbúðarhúsi o. fl. óviðkomandi bú- rekstrinum. Vaxtagreiðslur bænda hafa annars farið mjög vaxandi á siðustu árum, voru 1954 fram taldar 8,0 millj. kr., 1957 16,6 millj. lcr., 1960 32,2 millj. kr. og loks 1963 48,1 millj. kr. Þessi aukning vaxta- greiðslnanna stafar bæði af auknum skuldum, er siðar verður gerð grein fyrir, og hækkuðum vöxtum. Meðalvextir af skuldum bænda, ef reiknað er af skuldarupphæð í árslok, voru 1954 3,5%, 1957 4,1%, 1960 5,6% og 1963 5,9%. Kostnaður við liúseignir eru fasteignagjöld (þar með talin brunabóta- gjöld), önnur gjöld af húseignuum, viðhald og fyrning. Vinna húseigenda sjálfra við viðhald luiseigna er ekki talin. Hins vegar er hér talinn kostn- aður bæði við íbúðarhús og útihús. Kostnaður þessi hefur, eins og annað, farið hækkandi síðustu ár. Var fram talinn 1954 6,0 millj. kr„ 1957 10,2 millj. kr„ 1960 18,0 millj. kr. og 1963 22,2 millj. kr. Ýmis gjöld eru frádráttarliðir 3—12 á aðalframtalsskýrslu til skatta- yfirvalda. Hér er um að ræða eignarskatt, tryggingagjöld ýmisleg — þar á meðal ólögbundin iðgjöld vegna persónutrygginga — sjúkrasamlags- gjald, stéttarfélagsgjald o. fl. Þessi gjöld hafa mjög farið hækkandi síð- ustu ár, m. a. vegna aukinna trygginga. Voru þau fram talin af bændum 1954 10,4 millj. kr„ 1957 15,7 millj. kr„ 1960 37,5 millj. kr. og 1963 64,6 millj. kr. Þessi gjöld eru hér eigi talin með heildargjöldunum, heldur sérstaklega vegna samanburðar við framtal annarra atvinnustétta á brúttótekjum þeirra. Fyrir fjárfestingu i landbúnaði verður gerð grein síðar, í skýringum við töflur XXIV—XXVI. Af töflu þessari og af fjölda bænda, eins og þeir eru taldir í töflu I, á að mega reikna meðalbrúttótekjur bænda í hverri sýslu landsins, tekjur þeirra af búskapnum sérstaklega, með því að deila tölu bændanna í mis- mun verðmætis afurðanna (1. dálkur) og tilkostnaðar við búnaðarfram-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.