Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1965, Blaðsíða 43
Búnaðarskýrslur 1961—63
41*
talin nema að nokkru, mat á búfé er vafasamt og mat á öðrum eignum
handahóf. Því hefur það orðið að ráði að birta ekki að þessu sinni töflur,
er verið hafa í fyrri Búnaðarskýrslum, um eignir bænda og annarra
framleiðenda landbúnaðarafurða, heldur aðeins töflu um skuldir bænda,
sem munu taldar fram nokkurn veginn að fullu.
Framtal skuldanna er þó að því leyti ónákvæmt, að föstu lánunum
eða veðlánunum er talsvert ruglað milli lánaflokka, og verður ekki við
því gert. Þetta stafar m. a. af nafnbreytingum, er orðið hafa á lána-
sjóðum Iandbúnaðarins, og hafa bændur eigi allir glöggvað sig á því, að
telja skyldi B-lán Stofnlánadeildar með Byggingarsjóðslánum og A-
lán Stofnlánadeildar með Ræktunarsjóðslánum. Sumir hafa einnig
blandað saman lánum úr Stofnlánadeild og veðdeildarlánum til greiðslu
á lausaskuldum. Einnig er „öðrum veðskuldum" — en til þeirra átti
aðeins að telja veðskuldir utan lánasjóða Búnaðarbankans — að ein-
hverju leyti ruglað saman við alla hina lánaflokkana. Hins vegar hefur
aðgreiningar skuldanna í veðskuldir („föst lán“) og lausaskuldir verið
gætt nokkuð vandlega, og skiptir sú greining allmiklu máli.
Aukning skulda bænda hefur orðið allhröð hin síðustu ár. Alls hafa
fram taldar skuldir bænda*) numið (í þús. kr.):
Aðrar
Veðskuldir skuldir Samtals
1954 ............................ 138 122 91 814 229 936
1957 ............................ 265 344 137 616 402 960
1960 ........................... 355 611 196 423 552 034
1961 ........................... 388 350 211 141 599 491
1962 ........................... 479 971 217 384 697 355
1963 ........................... 530 448 289 184 819 632
Árið 1962 veitti veðdeild Búnaðarbankans lán til lúkningar á lausa-
skuldum, alls 65 874 þús. kr. Fram taldar lausaskuldir bænda lækkuðu
þó ekki það ár, heldur hækkuðu um 6 243 þús. kr. Eitthvað af þessum
veðdeildarlánum mun hafa gengið til greiðslu á vangoldnum vöxtum
og afborgunum af veðskuldum við bankann, er talið hefur verið með
veðskuldunum í árslok 1961, og enn annað til greiðslu á óframtöldum
skuldum við einstaklinga, svo að gera má ráð fyrir, að lausaskuldirnar
hafi raunverulega lækkað eitthvað á árinu 1962.
16. Jarðabætur 1961—63.
Improvements of estates 1961—63.
í töflum XVIII—XXIII á bls. 58—67 er yfirlit yfir jarðabætur sam-
kvæmt skýrslum Búnaðarfélags Islands og Landnáms rikisins. Töflur
XVIII—XX eru um styrkhæfar jarðabætur aðrar en skurðgröfuskurði,
en töflur XXI—-XXIII um skurðgröfuskurði.
*) f fyrri Búnaðarskýrslum eru í samsvarandi yfirliti taldar skuldir allra framleiðenda landbúnaðarafurða.
f