Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1967, Blaðsíða 80
r
Hagstofa Islands
gefur út cftirtalin rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ýtarlegar skýrslur um þau efni, sem Hag-
stofan tekur til meðferðar. Hagskýrslur koma út í sjálfstæðum, tölusettum
heftum, og eru til sölu í Hagstofunni, Arnarhvoli (Lindargötu-inngangur),
Reykjavík, sími 24460. Menn geta gerzt áskrifendur að Hagskýrslum. Er áskrif-
endum tilkynnt útkoma hagskýrsluhefta, jafnóðum og þau koma út, með ósk
um, að þeir sendi greiðslu. Að henni móttekinni er áskrifanda sent heftið í
pósti.
H. Hagtíðindi, mánaðarrit. Eru þar birtar mánaðarlegar skýrslur um innflutning
og útflutning, fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu og margt fleira,
sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. Enn fremur
birtast þar bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma um ýtarlegri
skýrslur. Áskriftargjald er 75 krónur fyrir árið.