Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1968, Síða 12
10
Sveitarsjóðareikningar 1963—65
inn í lögin. Jafnframt var fjárhagsgeta þess sjóðs efld með því, að
ákveðin var álagning svo nefndra landsútsvara, er Áfengis- og tóbaks-
verzlun ríkisins, Síldarverksmiðjur rikisins, nokkur önnur ríkisfyrir-
tæki, og olíufélögin, skyldu greiða til Jöfnunarsjóðs.
Hér fara á eftir nánari skijringar um reikningsliði taflnanna. Er þar
miðað við töflu II, og tölnr og bókstafir við liði hér á eftir vísa til
lína i þeirri töflu. Þessar skýringar eiga jafnframt við sömu liði eða
samsafn liða i öðrum töflum.
1. Útsvör. Hér eru færðar allar útsvarstekjur nettó (sjá þó 5. lið),
þ. e. á lögð útsvör cftir hækkanir og lækkanir, afslætti o. fl. Til frá-
dráttar í þennan lið koma útsvör til annarra sveitarfélaga, og það,
sem burt er fellt af eftirstöðvum útsvara fyrri ára.
2. Aðstöðugjald. Tekjur af aðstöðugjaldi færast nettó á sama hátt
og útsvörin. — Aðstöðugjald var fyrsl lagt á 1962 (sbr. III. kafla laga
nr. 69/1962). Voru tekjur af því 1962 taldar með tekjum af „öðrum
sköttum og gjöldum" i töflum skýrslu Hagstofunnar um sveitarsjóða-
reikninga 1953—62.
3. Fasteignaskattar. Hér er einvörðungu um að ræða fasteigna-
skatta á lagða samkvæmt gildandi lögum um tekjustofna sveitarfélaga.
h. Aðrir skattar og gjöld. Hér koma allar tekjur sveitarfélagsins af
sköttum og gjöldum, sem ekki heyra undir liði 1—3 (sjá þó 5. lið),
svo sem gatnagerðargjöld, byggingarleyfisgjöld, skemmtanaleyfisgjöld
o. fl. Um færslu þeirra gildir sama og um útsvörin.
5. Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Hér koma framlög úr Jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga.
Landsútsvar er einn tekjustofn Jöfnunarsjóðs, en síðan rennur það til
sveitarfélaganna sem hluti af framlagi sjóðsins til þeirra, og er því
talið í þessum lið. Hins vegar munu nokkur sveitarfélög hafa fært
landsútsvarshluta jöfnunarsjóðsframlags með „öðrum sköttum og gjöld-
um“ í 4. lekjulið, og getur þvi fjárhæð færð í lið 5 verið of lág í þeim
tilvikum, þegar leiðréttingu var ekki við komið, vegna þess að ekki
var séð, á hvorn veginn fært hafði verið.
6. Aðrar rekstrartekjur. Allar aðra rekstrartekjur færast hér, svo
sem tekjur af fyrirtækjum, nettótekjur af fasteignum, vaxtatekjur, o. fl.,
o. l'I. Athuga ber, að rekstrarhalli sveitarsjóðs, ef fyrir kemur, er færð-
ur sem minustala í liðinn „rekstrarafgangur“ gjaldamegin. — Endur-
greiðslur á útgjöldum koma til frádráttar viðkomandi útgjaldaliðum,
sbr. almennar skýringar hér að framan.
7. Stjórnarkostnaður. Hér færist allur kostnaður við stjórn sveitar-
félagsins, nema hann tilheyri sérstökum gjaldaflokki og unnt sé að
greina hann frá almennum stjórnarkostnaði. Hér færisl m. a. kostn-
aður við nefndir, endurskoðun, niðurjöfnun og við innheimtu útsvara
og annarra skatta. Enn fremur laun á skrifstofu fastráðins verkfræð-
ings, sími, húsnæði, ferðalög, málflutningskostnaður, árgjald til Sam-
bands íslenzkra sveitarfélaga, o. fl„ o. fl. Hluldeild fyrirtækis með sjálf-