Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1968, Side 13

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1968, Side 13
Sveitarsjóðareikningar 1963—65 11 stætt reikningshald í stjórnarkostnaði kemur til frádráttar, ef um hann er að ræða. 8. Löggæzla. Þessi liður sýnir nettóútgjöld sveitarfélagsins til lög- gæzlu, þar með talinn kostnaður við fangahús. !). Framfærslumál. I 5. kafla eyðublaðsins undir sveitarsjóðsreikn- inga er form fyrir sundurliðun á framfærsluútgjöldum. Ætlunin var að fá fram nokkra sundurliðun á þessuin útgjöldum, skiptingu þeirra eftir einstökum greinum framfærslulaga, heildargreiðslur annars vegar og endurgreiðslur hins vegar, o. s. frv. Reyndin varð sú, að færslu þessa kafla í reikningum sveitarfélaganna var svo ábótavant, að ýtarlegri sundurliðun en fram kemur i þessum 9. lið var ekki með sæmilegu móti unnt að gera. I mörgum reikninganna var ekki um neina sundurliðun þessara útgjalda að ræða, og eru þá öll útgjöldin færð í undirliðinn „annað og ósundurliðað“. Af þessum sökum hefur sú sundurliðun, sem er á þessum lið, takmarkað gildi. Athygli skal vakin á því, að hér eiga að vera færð öll framfærsluútgjöld nettó, hvort sem þau eru endurkræf eða ekki, enda eru þá endurkræf framfærsluútgjöld ekki talin til eigna á viðskiptamannareikning, shr. almennar skýringar fyrr í þessum kafla. 10. Almannatnjggingar. 1 4. undirlið færast eftirlaun, framlög til eftirlauna- eða lífeyrissjóðs, hluti sveitarfélagsins af hækkun elli- og örorkulífeyris samkvæmt 21. gr. almannatryggingalaga, ýmis trygg- ingaiðgjöld o. 11. 11. HeilbrigSismál. Hér eru færð nettóútgjöld til heilsuverndar- stöðvar, styrkur til sjúkrahúsa, rekstrarkostnaður læknisbústaðar, laun hjúkrunarkvenna og ljósmæðra o. fl. Útgjöld til heilbrigðisstarisemi í skólum færast ekki hér, heldur í 12. gjaldalið, nema þau séu greidd af heilsuverndarstöð. 12. Fræðslumál. Hér eru tilfærð öll útgjöld til rekstrar skóla og annarrar beinnar fræðslustarfsemi. Endurgreiðslur ríkissjóðs koma til frádráttar. Fjárfestingárútgjöld, sem eru eignfærð, færast að sjálfsögðu ekki hér frekar en í aðra liði á rekstrarreikningi. 13. Ýmis félags- og menningarmál. I þennan lið eru saman dregin útgjöld til ýmiss konar félags- og menningarstarfsemi, lýðhjálpar o. fl. Hér koma framlög til íþróttastarfsemi, safna, lestrarfélaga, hljóm- listar og margs konar félaga, til heimilis- og mæðrahjálpar, barna- heimila og barnaleikvalla, skrúðgarða, kirkna og kirkjugarða, framlög til Byggingarsjóðs verkamanna, bjargráðasjóðsgjald, greiðslur til félags- heiinihi. sem ekki eru eignfærðar, o. fl„ o. fl. / lí.\ Ýmis opinber þjónusta. Hér eru færð útgjöld til ýmissar al- ménnrar þjónustu. I töflunni er þessum lið skipt í 7 undirliði. Fyrst eru tilfærð útgjöld til gatna/vega og holræsa, þar með talin útgjöld til gangstétta, götuljósa, umferðarinerkja o. þ. h. Hér er bæði um að ræða nýbyggingu vega, sem yfirleitt er ckki eignfærð, og vegaviðhald. Út- gjöld til vega og holræsa, sem eignfærð eru af viðkomandi sveitar- stjórn, koma ekki hér, heldur á eignabreytingareikning. Þess ber þó að

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.