Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1968, Blaðsíða 17
Sveitarsjóðareikningar 1963—65
15
tækja eru hins végar oftast gefnir út með aðalreikningum sveit-
arfélagsins.
Raunar er um að ræða fleiri tilvik hvað þetta snertir í reikningum
sveitarfélaganna. Hagstofan hefur ekki samræmt þessi atriði i þeim
skýrslum, sem hér birtast, heldur látið við það sitja, sem var í reikn-
ingum viðkomandi sveitarfélags. Samræming var illmöguleg eftir þeim
gögnum, sem fyrir lágu, sérstaklega á þetta við um reikninga kaupstað-
anna. Að sjálfsögðu rýrir þetta ósamræmi gildi skýrslnanna, en við
því verður ekki gert að svo komnu máli.
Ef litið er á töflu II má sjá, að í 37. lið (hrein eign eigin fyrir-
tækja) kaupstaða eru færslur aðeins hjá Reykjavík og tveim kaup-
stöðum. Stafar þetta ýmist af því, að eignir fyrirtækjanna eru færðar
með eignum kaupstaðarins í öðrum eignaliðum (og þá skuldir fyrir-
tækjanna með skuldum kaupstaðarins), eða reikningar fyrirtækjanna
eru alls ekki færðir á aðalreikninga. Sama er að segja um tekjur og
útgjöld fyrirtækja, þau eru ýmist fau’ð á aðalreikning eða ekki.
Til þess að bæta að einhverju leyti úr þessum vanköntum á skýrsl-
unum, eru birtar í töflum II og V helztu niðurstöður úr reikningum
stærstu og algengustu fyrirtækja sveitarfélaganna, þ. e. hafnarsjóða,
vatnsveitna og rafveitna, hvort sem þessi fyrirtæki eru í aðalreikningi
sem eign viðkomandi sveitarfélags eða ekki. Því miður eru þessar upp-
lýsingar ekki tæmandi, aðallega vegna þess að ekki reyndist unnt að
afla reikninga allra slikra fyrirtækja. Þegar vitað er, að um fyrir-
tæki með sjálfstætt reikningshald er að ræða, en ekki hefur reynzt
unnt að afla reikninga þess, er þetta gefið til kynna með 3 púnktum
(= upplýsingar ekki fyrir hendi) í viðkomandi talnalínu. I öllum öðr-
um tilvikum, þegar tölur vantar, eru strik (-) í talnalínunni, og er
þá um að ræða eitt af þrennu: 1) Sveitarfélag starfrækir ekki höfn/
vatnsveitu/rafveitu. 2) Tekjur og gjöld „fyrirtækis“ eru innifalin í
rekstrarreikningi viðkomandi sveitarfélags og ekki unnt að greina
rekstur þess frá almennum rekstri sveitarfélagsins (svo er tiltölulega
oft um vatnsveitu). 3) Ekki er vitað, hvort um er að ræða starfrækslu
hafnar/vatnsveitu/rafveitu af hálfu viðkomandi sveitarfélags. — Vænt-
anlega vantar fáa hafnarsjóði í töfluna, en meira mun vera um það,
að vatnsveitur og rafveitur með sjálfstætt reikningshald — aðeins
þær eiga að koma í töfluna — vanti í hana.