Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1968, Page 100

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1968, Page 100
Hagstofa Islands gefur út eftirtaliu rit: 1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar eru birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verzlun- arskýrslur, Búnaðarskýrslur, Iðnaðarskýrslur, Manntal, Mannfjöldaskýrslur, Alþingiskosningar, Sveitarsjóðareikningar, o. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna, sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951, hafa komið út 44 rit. — Áskrifendum Hagskýrslna er tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau koma út, og þeir eru beðnir að senda greiðslu. Að henni móttekinni eru rit send þeim í pósti. 2. Hagskýrslur íslands, aukaflokk. í honum eru sams konar rit og í aðalflokki Hag- skýrslna, nema hvað þau eru í öðru broti (kvartbroti) og „off-set“-fjölrituð. 3. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar erubirtarmánaðarlegar skýrslur um utanríkisverzlun, fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu o. fl., og árlegar skýrslur um ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Ár- legt áskriftargjald Hagtíðinda er 75 kr. 4. Statistical Bullctin er sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands. Það er á ensku — enda ætlað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og með 1963, þar áður var það mánaðarrit). — í Statistical Bulletin eru hirtar ýmsar töflur úr Hagtíðindum, og úr Fjármálatíðindum, riti Seðlabanka íslands. — Erlendir áskrifendur þessa rits fá það ókeypis, en innanlands er árlegt áskrift- argjald þess 45 kr. 5. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur næsthðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeirn upplýsingum, sem hún hefur að geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1967 var 1312 bls., og verð 1800 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað, enda við það miðað, að hún seljist upp. Afgreiðsla ofan greindra rita er í Hagstofunni, Arnarhvoli (inngangur frá Lindar- götu), Reykjavík. Sími 24460.

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.