Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1970, Side 12

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1970, Side 12
10 Sveitarsjóðareikningar 1966 -68 arheild, me6 tekjnr og gjöld, sem gerður er sérstakur rekstrar- og efnahagsreikningur fyrir. Allar afturkræfar greiðslur milli slíkra fyr- irtækja og sveitarfélagsins sjálfs færast scm lán, útlán eða á við- skiptareikninga, og koma þar með á eignabreytingareikning. Allar óafturkræfar greiðslur frá fyrirtæki til sveitarfélagsins (nema um sé að ræða endurgreiðslur á ákveðnum útgjaldaflokkum) færast í tekjuflokkinn „aðrar tekjur“ á rekstrarreikningi sveitarfélags- ins. Óafturkræfar greiðslur frá sveitarsjóði lil fyrirtækis (t. d. rckstrarhalli, styrkur o. s. frv.) færast í þá gjaldaflokka, sem fyr- irtækið heyrir undir“. Þcss skal getið, að núverandi skipan tekjuöflunar sveitarfélaga var ákveðin með löguin nr. 69/1962, um tekjustofna sveitarfélaga. Þau lög voru endurútgefin litið breytt árið 1964 (lög nr. 51/1964). Lög nr. 69/1962 komu til framkvæmda við álagningu gjalda þegar á árinu 1962. Helztu breytingar l'rá þvi, sem áður hafði gilt, voru þessar: í stað þess að úlsvör væru lögð á eftir efnum og ástæðum sltyldu nú út- svör í öllum sveitarfélögum lögð á eftir einum lögboðnum útsvarsstiga. Jafnframt var kveðið svo á, að lækka skyldi eða hækka hlutfallslega hvert útsvar, et i ljós kæmi, að áætluð heildarútsvör væru hærri eða lægri en fjárhagsáætlunin segði lil um, þó skyldi liækkun útsvara ekki mega vera meiri en 50%. í stað veltuútsvars kom aðstöðugjald, sem sveitarstjórnum var heimilað að innheimta tijá atvinnurekendum og öðrum þeim, sem sjálfstæða atvinnu hafa i sveitarfélaginu. Þá voru og í lögum þessum heildarákvæði um fasteignaskatt sveitarfélaga, og ákvæði laga nr. 19/1960, um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, voru telcin inn í lögin. Jafnframt var fjárhagsgeta þess sjóðs efld, m. a. með því, að ákveðin var álagning svo nefndra landsútsvara, er Áfengis- og tóbaks- verzlun ríkisins, Síldarverksmiðjur ríkisins, nokkur önnur rikisfyrir- tæki, og olíufélögin, skyldu greiða til Jöfnunarsjóðs. Hér fara á eftir nánari skýringar um reikningsliði taflnanna. Er þar miðað við töfln II, og tölur og bókstafir við liði hór á eftir visa til lína í þeirri töflu. Þessar skýringar ciga jafnframt við sömu liði eða samsafn liða í öðrum töfluni. 1. Útsvör. Hér eru færðar allar útsvarstekjur nelló (sjá þó 5. lið), þ. c. á lögð útsvör eftir hækkanir og læklcanir, afslætti o. fl. Til frá- dráttar í þennan lið koma útsvör til annarra sveitarfélaga, og það, sem burt er fellt af eftirstöðvum útsvara fyrri ára. í reikningum Reykjavíkurborgar fyrir árin 1965—68 eru innhcimt útsvör (og aðstöðu- gjöld) færð til tekna, en ekki á lögð útsvör, eins og tíðkast hjá öðrum sveitarfélögum. Hér er þessu breytt til samræmis við færslur i öðrum reikningum, en af þeim sölcum er upphæð útsvara (og aðstöðugjalda) önnur í töflum en birtum reikningum Reykjavíkurborgar. Rekstraraf- gangur verður því einnig annar. 2. Áðstöðiigjald. Tekjur af aðstöðúgjaldi færast nettó á sama liátl og útsvörin. Aðstöðugjald var fyrst lagt á 1962 (sbr. III. kafla laga

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.