Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Síða 12
Neytendurmiðvikudagur 16. júlí 200812
Lof&Last
n lofið fær
gæðabón ehf. í
Ármúla. viðskipta-
vinur hringdi og
hafði farið með bíl
sinn í alþrif í gær.
verkið reyndist mun meira en útlit var
fyrir og því gerði
hann ráð fyrir að
greiða hærri upphæð
en miðað var við
upphaflega. Það reyndist ekki vera og
fékk hann bílinn til baka, skínandi
hreinan, fyrir afar sanngjarnt verð.
n lastið fær Nóatún.
Nóatún í Smáralind
var með rýmingar-
sölu um helgina og
þar voru margir sem nýttu
sér afslátt á þurrvörum. í
ljós kom á laugardaginn að
marg-
ar vörur voru
útrunnar.
kvartað var til
verslunarstjóra en samt sem áður var
hægt að fylla heila innkaupakörfu af
útrunnum vörum á mánudag.
Sparaðu þér ferðina niður í bæ og sæktu um skattkort á netinu:
Nýtt skattkort á skattur.is
Margir sumarstarfsmenn
kannast við það að vakna við þann
vonda draum að hafa gleymt að
skila inn skattkorti á nýja vinnu-
staðinn. Þá er hægt að hringja
á gamla vinnustaðinn til að láta
póstsenda skattkortið á nýja
vinnustaðinn. Ef skattkortið er
týnt þarftu að sjálfsögðu að fá nýtt.
Áður þurfti maður að sækja nýtt
til Skattstofunnar eða Ríkisskatt-
stjóra. Núna geturðu sótt um nýtt
skattkort á skattur.is.
Á vefnum skráir þú inn kenni-
tölu og setur inn vefpóst og vel-
ur hvort þú viljir skipta prósentu
skattkortsins. Einnig þarf að
greina frá því hvort það hafi verið
notað síðasta ár. Að því loknu er
hægt að velja hvort þú fáir það sent
heim eða bara beint til vinnuveit-
anda þíns. Þetta er ótrúlega góð
og fljótleg leið til að fá nýtt skatt-
kort og aðeins tekur tvo daga að fá
það sent heim eða í vinnuna. Með
þessu spararðu tíma og peninga,
sparar bensín og þarft ekki að
borga í stöðumæli. Þú þarft heldur
ekki að fara úr vinnunni.
Gullinbrú 176,80 194,80
Bensín dísel
Bíldshöfða 175,20 192,70
Bensín dísel
Bústaðavegi 176,40 194,30
Bensín dísel
Miklubraut 175,10 192,60
Bensín dísel
Grafarholti 175,20 192,70
Bensín dísel
Fellsmúla 175,20 192,70
Bensín dísel
Lækjargötu 176,80 194,80
Bensín díselel
d
sn
ey
t
i
Öll olíufyrirtækin bjóða upp á sams konar afslætti fyrir almenning. Ekki fékkst upp-
gefið hvað sérafslættir til einstaklinga og fyrirtækja eru háir. Dælulykla er að fá hjá
öllum olíufyrirtækjum.
FÁÐU AFSLÁTT
AF BENSÍNINUÓdýrast í sund í Hveragerðigerð var verðkönnun á því hvað kostar í sund fyrir einn fullorðinn. Nú eru margir að ferðast um landið og forvitnilegt er að sjá hvað kostar í sund annars staðar en í sundlaug-
um íTr. af þeim stöðum sem voru
skoðaðir var ódýrast í sund í
Hveragerði.
Öll olíufélögin gefa afslátt af bens-
íninu en maður þarf að bera sig eft-
ir því. DV leitaði eftir upplýsingum
um það hvaða fyrirtæki og einstakl-
ingar fengju sérafslætti en ekkert
olíufélaganna vildi gefa það upp.
Þó er víst að stór hópur fyrirtækja
og einstaklinga fær bensínið á betri
kjörum en almenningur.
Vildarpunktar og aukakrónur
Olís er með ÓB á sínum snærum
og þar er hægt að fá ÓB lykil sem
veitir 2 krónu afslátt á lítrann. „Að
auki er hægt að safna vildarpunkt-
um, við bjóðum upp á tvö vildar-
kerfi með ÓB, í fyrsta lagi er hægt
að tengja lykilinn við Visa-vildar-
kort og þannig við vildarpunkta Ice-
landair en til þess að safna þeim
vildarpunktum þarft þú að vera
meðlimur í vildarklúbbi Icelandair,“
segir Sigurður Pálsson, markaðs-
stjóri Olís.
„Í öðru lagi er hægt að tengja lyk-
ilinn við Saga-kortið og þá ertu að fá
1,5 prósent af upphæðinni til við-
bótar í formi vildarpunkta. Auka-
krónukerfi Landsbankans gefur líka
út svokölluð kredikort sem heita
aukakrónukreditkort. Með því vild-
arkerfi er hægt að nota aukakrónur
til að kaupa eldsneyti því aukakrón-
urnar safnast upp á debetkortið,“
segir Sigurður. ÓB frelsi er fyrirfram-
greitt kort og hægt er að leggja inn á
það í gegnum heimabankann til að
fá 3 krónu afslátt. Sigurður segir að
mörg fyrirtæki séu með aukaafslátt
af bensíni. „Ég hef ekki hugmynd
um hvað þau eru mörg. Sérafslættir
til fyrirtækja eru mjög mismunandi
og það er trúnaðarmál hversu háir
afslættir þetta eru,“ segir Sigurður.
Fyrstir með dælulykil
Atlantsolía var fyrsta olíufyr-
irtækið á Íslandi sem bauð upp á
dælulykla en það var 1. desember
árið 2005. í desember síðastliðnum
hækkaði Atlantsolía afsláttinn upp í
tvær krónur. „Þeir sem eru í FÍB fá
3 króna afslátt með dælulyklinum,“
segir Hugi Hreiðarsson, markaðs-
stjóri Atlantsolíu. „Það fylgja margir
skemmtilegir kostir þessum dælu-
lyklum, þú getur læst lyklunum fyrir
bensín eða dísil, þannig að þú dælir
ekki óvart röngu eldsneyti á bílinn.
Við erum eina olíufyrirtækið í Evr-
ópu sem býður upp á slíkt. Á hverj-
um degi lendir einn einstaklingur í
því að dæla röngu eldsneyti á bílinn
og það getur kostað frá 12 til 15 þús-
und krónum. Þetta er gríðarlegt ör-
yggi og getur sparað tugi til hundr-
uð þúsunda. Að auki færðu kvittun
í tölvupósti þegar þú notar lykilinn
og er það gott aðhald til að sjá hvað
þú ert að nota mikið,“ segir Hugi.
Hvenær hækkar afslátturinn?
Aðspurður af hverju afsláttur-
inn hækki ekki í takt við hækkun á
bensínverði segir Hugi að hækkan-
ir á álagningu séu ekki prósentuleg-
ar samanborið við hækkanir á inn-
kaupsverði. „Ef við ættum að hækka
álagninguna samhliða hækkunum
á innkaupsverði væri innkaups-
verðið ansi mörgum krónum hærra
en það er í dag. Þannig hækkar af-
slátturinn ekki samhliða því sem
verðið hækkar,“ segir Hugi.
Sérafsláttur er matsatriði
Skeljungur er með staðgreiðslu-
kort sem gefur tveggja krónu afslátt.
Orkan er með svokallað frelsi en
það veitir þrjár krónur í afslátt. Lúð-
vík Björgvinsson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækjasviðs Skeljungs,
segir að sérafslættir fyrir fyrirtæki
og einstaklinga séu metnir í hvert
og eitt skipti eftir umfangi. „Það er
allur gangur á því hvernig afslætt-
irnir eru, en einn af þeim hóp-
um sem fær aukaafslátt eru starfs-
mannafélög,“ segir Lúðvík. Að auki
eru veittir punktar á vildarkort eða
þeir nýttir til að leysa út ferðir hjá
Icelandair.
N1 og Egó eru með mjög svipaða
afslætti og hin olíufélögin.
Sundlaugar
sundlaugar Ítr 360
sundlaugin akureyri 370
sundlaug Egilsstaða 350
sundlaugin Laugaskarði (Hveragerði) 270
sundlaugin suðureyri 370
sundlaug tálknafjarðar 300
sundhöllin á Ísafirði 370
Mælir eindregið
Með Sólon
„Ég mæli eindregið með Sólon í hádeg-
inu,“ segir auðunn Blöndal sjónvarps-
maður. „Ég hef farið reglulega í tvö ár og
þar er alltaf jafn gott að borða og þar er
æðislega góð þjónusta. Ég ætla að halda
áfram að fá mér að borða þar í hádeginu,
það er ekki spurning,“ segir auðunn. neytendur@dv.is umSjóN: ÁSTrúN FriðBjÖrNSdóTTir
Neytendur
Skattkort Á þessari vefsíðu getur
þú sótt um nýtt skattkort.
áStrún FriðbjörnSdóttir
blaðamaður skrifar: astrun@dv.is
neytandinn