Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Qupperneq 28
Fókus
Benni Hemm Hemm er tónlist-
armaður sem kom inn í íslenskt
tónlistarlíf af miklum krafti árið
2005. Síðan þá hefur hann verið
duglegur að búa til tónlist og flytja
með blásarasveit sinni. Murta St.
Calunga er fjórða skífa Benedikts
H. Hermannssonar sem leikur sem
fyrr á gítar og syngur í nokkrum lag-
anna. Sjálfur á hann flest laga og
texta á nýju skífunni ef frá eru tal-
in lögin Early Morning sem er eftir
Gordon Lightfoot og Whaling in the
North Atlantic sem er eftir Benna
ásamt Guðmundi Thoroddsen.
Hljómur plötunnar er eins og mað-
ur sé í ferðalagi sem er einmitt þema
hennar. Hljómsveitin leikur þétt og
hljómurinn er ríkur enda hljóðfæra-
leikararnir margir og góðir.
Fyrsta lagið er hið stórgóða
Beethoven í Kaupmannahöfn. Lag-
ið byrjar hægt og heldur manni
uppteknum við hlustun á meðan
spennan magnast smám saman
upp. Það er vel við hæfi að Kaup-
mannahöfn komi fyrir í titlinum
því stemningin er einhver blanda af
sumri, skrúðgöngu og tívolíi. Lagið
er svo skemmtilega jákvætt að eftir-
væntingin eftir fram-
haldinu verður nærri
áþreifanleg. Lögin
Whaling in the North
Atlantic og Veiði-
ljóð halda spenn-
unni áfram og eru
skemmtileg áheyrn-
ar. Þá fer að harðna á
dalnum. Fjórða lagið
er svo líkt hinum fyrri
að saman virkar tónlistin dálítið
mónótónísk, hljómurinn er stöðugt
sá sami og það vantar áþreifanlega
upp á fjölbreytnina. Eftirvæntingin
sem platan setti í upphafi slokknar
smátt og smátt þegar líður á og ró-
legri lögin taka yfir.
Sem söngvari hefur Benni mjög
þægilegan hljóm, ekki ósvipaðan
og Svavar Knútur í hljómsveitinni
Hraun sem heyrist best í lögunum
Allt sem það fer og Riotmand. Það
væri auðvelt að rugla þeim tveim-
ur saman, kannski
líka vegna hljómsins
í tónlistinni. Benni
syngur laglínurnar
áreynslulaust og fal-
lega en stundum full-
kæruleysislega fyrir
minn smekk. Tónlist-
in skipar meiri sess
en textarnir sem eru
oft dálítið innihalds-
lausir eða í það minnsta torskildir.
Það breytist þó í laginu Murta & El
Paso þar sem textinn gefur laginu
aukið vægi sem er góð tilbreyting og
hefði verið gaman að sjá oftar. Tón-
listin er vissulega myndræn ein og
sér en heldur manni ekki föngnum
þegar textarnir styðja ekki við bakið
á henni.
Sem fyrr er hljómurinn hans
Benna Hemm Hemm notalegur og
vekur vellíðan og þrá eftir einhverju
fallegu. Þeir sem eru ekki einlægir
aðdáendur tónlistarinnar gætu átt
erfitt með að njóta plötunnar í heild
sinni vegna síendurtekinna stefa
sem gera hana svolítið mónótón-
íska. Það verður samt ekki frá henni
tekið að Benni nær sannarlega að
skilja eitthvað eftir sig hjá öllum
hlustendum með laginu Beethoven
í Kaupmannahöfn, það á eftir að lifa
góðu lífi á næstu árum.
Lilja Guðmundsdóttir
MIÐVIKUDAGUR 16. júlí 200828
Útgáfutónleikar á Organ
Hljómsveitin Groundfloor heldur tónleika á orGan í kvöld til að fagna útkomu
fyrstu plötu sveitarinnar, Bones. Groundfloor var stofnuð fyrir fjórum árum af þeim
Ólafi TÓmasi GuðbjarTssyni og Haraldi ÆGi Guðmundssyni en söngkonan Harpa
ÞorvaldsdÓTTir hefur ósjaldan komið fram með hljómsveitinni ásamt fleiri
tónlistarmönnum. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.
Mónótónísk Með
falleguM hljóMi
rokkaður
djass í
ráðhúsinu
Skver-kvartettinn heldur tónleika í
Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld klukk-
an 20. Á efnisskránni er frumsamin
tónlist eftir meðlimi hljómsveitar-
innar en tónlistarstefna kvartetts-
ins er í rótina djass með áhrifum
víðs vegar að, þar á meðal í rokki
og poppi samtímans. Kvartettinn er
einn af skapandi sumarstarfshópum
Hins hússins þetta sumarið en hann
er skipaður Helga Rúnari Heiðars-
syni á saxófón, Höskuldi Eiríks-
syni á slagverk, Leifi Gunnarssyni
á kontrabassa og Steinari Guðjóns-
syni á gítar.
Handritið
komið í hús
Handritið að nýjustu bók Christoph-
ers Paolini í Eragon-bókaflokknum
barst Forlaginu, útgefanda bókanna
hér á landi, á dögunum. Guðni Kol-
beinsson þýðandi er kominn með
handritið í hendur en hann hefur
séð um að koma hinum tveimur
bókunum yfir á íslensku. Bókin,
sem heitir Brisingr en það þýðir
eldur á fornu tungumáli álfanna frá
Alagaesia, kemur út í haust. Mikil
leynd hvílir yfir textanum. Áður en
bókin kemur út í Bandaríkjunum
mega til að mynda einungis fimm
starfsmenn Forlagsins lesa textann.
Eragon hefur verið þýdd á fimmtíu
tungumál og samanlagt hafa bæk-
urnar tvær selst í yfir 12,5 milljón
eintökum.
fókusað á
fornleifar
Sigurlaugur Ingólfsson frá Minja-
safni Reykjavíkur leiðir göngu um
miðbæ Reykjavíkur annað kvöld
sem er hluti af hinum svokölluðu
Kvöldgöngum í Kvosinni. Áhersla
verður lögð á að kynna elstu
fornleifar borgarinnar, það er að
segja frá landnámsöld. Að venju
hefst kvöldgangan klukkan 20 og
er lagt af stað úr Grófinni milli
Tryggvagötu 15 og 17. Allir vel-
komnir og þátttaka ókeypis.
Mikið, blóðugt, sæðis- og saur-
blandað vatn hefur runnið til sjávar
síðan Hugleikur Dagsson, mynda-
söguhöfundur og leikskáld með
meiru, hóf að hefta saman teikni-
myndasögur sínar fyrir nokkrum
árum og selja þær á götum úti og í
Nexus. Telst mér til að nýjasta bók
Hugleiks, Ókei bæ tvö, sé níunda
bók hans á íslensku og að þrjár
bækur eftir hann hafi komið út á
ensku. Þá eru ónefnd þrjú leikrit.
Ókei bæ tvö sver sig algjörlega í
ætt við fyrri bækur Hugleiks. Teikn-
ingarnar eru einfaldar, svarthvítar,
persónurnar í örlítið „advanced“
Óla-prik-lúkki og neðanbeltishúm-
orinn og gróteskan áberandi. Mið-
að við fyrstu bækurnar virðist of-
beldið þó á undanhaldi. Til marks
um það sé ég ekki betur en einung-
is einn karakter sé drepinn í þess-
ari nýju bók. Barsmíðar og andlegt
ofbeldi er þó vissulega að finna á
blaðsíðunum. Nýtt af nálinni er
hins vegar snúningur sem Hug-
leikur tekur á þrautum barnablaða
og draumráðningum og gjörsam-
lega tilgangslausum brandarasíð-
um vikublaða. Myndin
sem birt er af húðflúri
augljóss aðdáanda
Hugleiks er svo óneit-
anlega nýjung.
Húmor Hugleiks er
flugbeittur sem aldrei
fyrr. Manni liggur við
að segja að það sé hreint með ólík-
indum hvað maðurinn hittir oft
beint í mark í fyndninni í sínum
einföldu rissum og talbelgjatext-
um. Sem fyrr deilir Hugleikur líka á
hitt og þetta, til dæmis væga dóma
yfir kynferðisbrotamönnum, inni-
haldslausar umræður spjallþátta
og fólk sem slekkur ekki á síman-
um sínum í bíó.
Þessi önnur bók
í Ókei bæ-bálknum
(fyrirheit eru gefin um
fleiri rit undir sama
nafni í lok bókar og
aftan á henni) er mun
betri en fyrsta bókin.
Sú bar augljósan keim
af því að afgöngum af vinnu höf-
undarins undanfarin misseri og
ár hafi verið safnað saman í eina
bók, og eru raunar ártöl við sumar
sagnanna þar því til staðfestingar.
Þessi nýjasta afurð Hugleiks sýnir
á hinn bóginn að sú húmormúsa
sem hann hefur lagt lag sitt við er
enn gjöful, góð og gild.
Kristján Hrafn Guðmundsson
Meira en ókei
bókadómur
ÓKeI Bæ TVö HHHHH
HöfUnDUR: Hugleikur Dagsson
úTGefAnDI: jPV útgáfa
plötudómur
MURTA ST. CAlUnGA
HHHHH
HöfUnDUR: Benni Hemm Hemm
á M i ð v i k u d e g i
Benedikt H. Hermannsson
falleg plata en einhæf á köflum.